Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.03.1997, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.03.1997, Blaðsíða 10
22 - Þriðjudagur 25. mars 1997 íl;tgur-'3ItmtiOT RADDIR FOLKSINS eiðis... Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri Jesús Kristur hefur hvergi boðað að skíra ungbörn eða ferma eldri börn,“ segir í greininni. Eftirfarandi frásaga er í bókinni „Frá myrkri til ljóss“, ævisögu Ólafíu Jó- hannsdóttur, boðbera kærleik- ans, eins og hún var kölluð. Skrifað var um hana í Degi- Tímanum þann 11. febrúar sl. Arthur Gook, kristniboði á Ak- ureyri, gaf bókina út árið 1925. Olafía skrifar (á bls. 16-17): „Eitt atriði er mér minnisstæð- ast í sambandi við fermingu mína. Eins og venja er fór systir mín með mér til að neyta heil- agrar kvöldmáltíðar, sunnudag- inn eftir að ég var fermd. Eg man vel, að við sátum innar- lega að sunnanverðu. Meðan ég sat þarna, varð mér það ein- hvern veginn alveg ljóst, að væri það rétt, sem ég hafði lært um kvöldmáltíðina, þá ætti ég engan rétt á að neyta hennar og drýgði beina synd með því. Ég fann alveg skýrt, að ég trúði ekki á Jesúm eins og ritningin talaði um að trúa á hann. Ég fann ég átti ekki að fara inn að altarinu, mig langaði til að komast hjá því. Mig langaði að fara burt úr kirkjunni. Ég hafði, held ég, aldrei fyrr á æfl minni fundið eins skýrt, að ég væri að syndga, en þegar ég hugsaði til fóstru minnar, sem sat við hlið- ina á mér, að hún mundi ekki geta skilið mig og halda að ég væri ekki með sjálfri mér, og svo yrði henni lagt þetta út til minnkunar, þá brast mig áræði til að fylgja samvisku minni og ég gekk inn að grátunum með hinu fólkinu." Hér lýkur þessari athyglis- verðu frásögn. Ég segi burt með allar blekkingar, sem byggðar eru á mannaboðorðum einum, og munu þess vegna falla fyrr eða síðar, eins og húsið, sem byggt var á sandi, og lesa má um í 7. kafla Matteusarguð- spjalls. Upp með sannan krist- indóm, sem byggður er á orð- um Jesú Krists, á bjarginu, sem mun standa, þrátt fyrir sterkan blástur ýmissa kenningarvinda. Halleiúja! Kirkjunnar kennimenn segja að fermingin sé staðfesting á barnaskírninni. Minnast skul- um við þess, að það stendur ekkert um skírn ungbarna í Nýja testamentinu. Biblíutext- inn, sem þeir byggja barna- skírnina á er í guðspjalli Matte- usar 28:19. Þar stendur: „Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda.“ Þýðing 1981. Að sjálfsögðu er þarna átt við bibiíulega niður- dýflngarskírn. Sýnir þessi texti ekki alveg greinilega, að þarna er ekki átt við ungbörn? Jú, vissulega. Það er víst um það, að Jesús Kristur hefur hvergi boðað að skíra ungbörn eða ferma eldri börn. Sóley Jónsdóttir, Akureyri. .. .og drukknaði - Sagan er búin * Iblaðinu fyrir nokkrum dögum var birtur botn á vísu þar sem auglýst var eftir fyrri parti. Parturinn sá reyndist í lengri kant- inum og eiga sér skemmtilega sögu. Margir lesendur Dags-Tím- ans þekktu þá sögu og hringdu með hraði að láta mönnum hana í té. Hér á eftir fer sú útgáfa sem virðist réttust af þessari sögu: Fjórir snillingar sátu yfir spilum og kváðu: Steingrímur Eyfjörð byrjaði: Sönn frásaga í sam- bandi við fermingu Við sögunni af Þorláki hugur mér hrýs, hann er af guðs vegum snúinn. Páll Vatnsdal bætti við: Hann getur sín börn eins og mýs geta mýs, um tneðlag er hreppurinn rúinn. Davíð Stefánsson lagði til næstu tvær hendingar: Öllu sem hangir er ógœfan vís sé örlagaþráðurinn fúinn. Gunnfaugur Tryggvi lauk síðan kveðskapnum: Svo drakk hann sig fullan og datt niðrum ís og drukknaði. - Sagan er búin. Þannig er Ijóðið í heild Við 'sögunni af Þorláki hugur mér hrýs, hann er af guðs vegum snúinn. Hann getur sín börn eins og mýs geta mýs, um meðlag er hreppurinn rúinn. ÖUu sem hangir er ógœfan vís sé örlagaþráðurinn fúinn. Svo drakk hann sigfullan og datt niðrum ís og drukknaði. - Sagan er búin. Makar sem ekki leyfa kreistingar, á þeirri for- sendu að sá sem svo elskulega býðst til að losa makann við allan þennan hvíta faflega massa ' sem safnast saman í álitlegar bungur og op um allan líkama, kunni ekki til verka, eru illa þolandi. Svitamettað og súrefnissnautt andrúmsloftið JPk sem fórnarlömb líkamsræktaráróðurs berjast ^ um að anda að sér, hefur vissan sjarma. Það /r hefur púlið sem fleytir svitanum út um holurnar hins vegar alls ekki. Líkamsþjálfun sem gengur út á að láta sér líða illa í öndunarfærum og vöðvum er hverjum viti bornum manni argasta skapraun. Og það versta er að mað- ur lætur sig hafa það. ^ Svo var meinhorni farið að lítast vel á tilhugsun- ina um lamað þjóðfélag. Þögn í nokkrar vikur. Fá að hlusta á suðið í ísskápnum í friði. En þá /K ætla þeir að hafa af manni allsherjarverkfallið þessir fjandar. Gegn viöteknum gildum Fyrr á árum var sérstakur þáttur á dagskrá Útvarps- ins sem hét Úr leiðurum landsmálablaðanna. Hið sama gerum við hér og nú. í leiðara Austurland í Nes- kaupstað segir Hjörleifur Guttormsson. „Fréttir af sí- auknum erfðabreytingum lífvera og einræktun hafa fengið marga til að staldra við og spyrja hversu langt eigi að ganga í krafti tækni og vísinda. Með erfðabreyt- ingum eru menn að fikta við sjálft stafróf lífsins með ófyrirsjáanlegum afleiðing- um. Með einræktun er gengið gegn öllum viðtekn- um gildum og aftengt það öryggi sem lífheimurinn nýtur með fjöfbreytni og náttúrulegri blöndun erfðavísa. Blind og siðlaus hagnaðarvon knýr menn til tilrauna og síðan fram- leiðslu með þessum aðferð- um... Löngu er tímabært að svara því hvort skyn- samlegt sé að að feta áfram þessa braut.“ Þingeyri má ekki blæða út „Það er grátlegt að horfa upp algjört úrræðaleysi ráðamanna hvað Þingeyri varðar. Það þurfti að taka til höndum strax síðasta sumar. Það vita allir það sem vilja vita að kvótalaust tíu þúsund tonna frystihús- ið Éáfnir verður ekki end- urreist í sinni fyrri mynd. Menn tuldra sín á milli að það þurfl að gera Fáfnis- dæmið upp, en enginn þor- ir að segja það upphátt, ekki heldur þingmenn Vestflrðinga. Hér verða menn að fara að taka sér tak. Það er ekki hægt að horfa aðgerðalaust á Þing- eyri blæða út,“ segir Hörð- ur Kristjánsson í leiðara Vestra. Endumýja þarf varðskipin Sæmundur Stefánsson seg- ir í leiðara Fjaðarpóstsins. „Sjálfsagt er mörgum enn í fersku minni allar þær um- ræður sem urðu um þyrlu- kaupamálið á hinu háa Al- þingi fyrir nokkrum árum og hvernig reynt var að gera menn tortryggilega í tengslum við það. Land- helgisgæslan hefur mátt lifa við aukinn niðurskurð á síðustu árum og við blas- ir að skipakostur hennar er úr sér genginn og þarfn- ast endurnýjunar. Atburðir síðustu daga verða vonandi til þess að opnar sjónir ráðamanna fyrir því hve nauðsynlegt það er að búa vel að gæslunni og hugsa þar djarfmannlega til framtíðar í stað þess að einblína á niðurskurðinn sem hinn eina stóra sann- leik.“ Umsjón: Sigurður Bogi Sœvarsson.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.