Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Síða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Síða 3
 Fimmtudagur 3. apríl 1997 -15 » í LANDINU Kaupmaðurinn við kassann. ■; •;:. lÍCÉí TTtg l ; • <.■ Æ , llll Verslunarlífíð á Kópaskeri „Fólk man þá tíma þegar engin verslun var starfrækt á staðnum“ Aðeins í verkföllum kynnast höfuðborgarbúar þeirri „ein- stöku“ tilfinningu að eiga ekki í neina verslun að venda eftir varningi, eða í það minnsta brýnustu nauðþurftum. En það þarf ekki verkföll til á ýmsum smærri stöðum úti á landi. T.d. á Kópaskeri, þar sem fyrir nokkrum árum var engin versl- un starfrækt í nokkra mánuði. Kaupfélag Norður-Pingey- inga rak verslun á Kópaskeri um áratugaskeið, en þegar reksturinn sigldi í strand tók Kaupfélag Þingeyinga matvöru- verslunina upp á sína arma og í framhaldi af því einstaklingar sem komu úr Reykjavík. Þeir hurfu einnig á brott innan tíðar og þá var engin verslun á Kópa- skeri um skeið og voru þá margar kaupstaðarferðir farnar til aðfanga úr héraði. í kjallaranum í júní 1993 tóku þeir bræður og bændur Gunnar og Björn Vík- ingur Björnssynir frá Sandfells- haga og fjölskyldur þeirra við verslunarrekstri á Kópaskeri og hafa síðan starfrækt af myndar- skap verslunina Bakka í fyrrum húsnæði kaupfélagsverslunar- innar. Dagur-Tíminn leit inn í Bakka á ferð um Kópasker fyrir skömmu og hitti Gunnar Björnsson að máli. Kjallarar gamalla verslana eru Aladíns- hellar í augum blaðamanns og hann krafðist þess að fá að kíkja niður. Og varð ekki fyrir vonbrigðum, þarna voru kassar með gömlum skóm sem voru svo gamlir að þeir eru aftur komnir í vælandi tísku og seld- ust ugglaust eins og volgir klattar ef til sölu væru. Þarna voru klassísk olíulampaglös og handvirk ljósritunarvél frá upp- hafi ljósritunaraldar og minnti helst á hugmyndir manna um tímavél H.G. Wells. Og þarna voru nokkrir kassar fullir af þeirri merku bók Sögu Kaupfé- lags-Norður-Þingeyinga með myndum af öllum starfsmönn- um félagsins frá upphafi, og mátti þar m.a. sjá afa og ömmu og pabba núverandi verslunar- eigenda. Bændur í bisness Úr kjallaranum í kaffið og kjaft- æðið. Og við spurðum Gunnar hvernig gengi að reka fjöl- breytta matvöruverslun á Kópaskeri í samkeppni við vold- uga nágranna á Húsavík og Ak- ureyri. „Þetta er auðvitað alltaf bar- átta. Og við getum alls ekki keppt við Akureyri í verðlagi og eigum erfitt uppdráttar gagn- vart Húsavík líka. En við reyn- um bara að þjóna viðskiptavin- um okkar því betur og teljum okkur vera á réttri leið. Við er- um að auka hlutdeild okkar í versluninni og auka veltuna, sem staðfestir að við erum á réttri braut. Fólk hér á Kóapskeri man þá tíma þegar engin verslun var starfrækt hér og það kann að meta það sem við erum að gera og ég held við njótum velvildar íbúa hér í Öxarfirði." Gunnar segir að auðvitað haldi menn áfram að gera tölu- verð innkaup á Húsavík og Ak- ureyri. Og aðspurður tekur hann undir þá skoðum að Öx- firðingar sæki meira til Akur- eyrar en Keldhverfingar meira til Húsavíkur. „Og þetta skil ég mæta vel,“ sógir hann og glottir en neitar að útskýra sneiðina nánar. Að ná ferðamönnum austur fyrir Ásbyrgi Hann segir að s.l. sumar hafi verslun ferðamanna verið óvenju mikil en sumarið 1995 hefði verið steindautt. „Við leggjum mikla áherslu á að ná ferðafólki austur fyrir Ásbyrgi, en þar hættir því til að stoppa og fara ekki lengra, og það virðist hafa tekist nokkuð vel í fyrrasumar." En hvernig eru horfurnar framundan, eru blikur á lofti? „Það má kannski segja að það séu alltaf blikur á lofti í svona rekstri. En ég held að horfurnar séu þolanlegar. Það er næga atvinnu að hafa og frekar skortur á fólki en hitt, með tilkomu fyrirtækja eins og Silfurstjörnunnar og Fjalla- lambs, og þetta er auðvitað já- kvætt fyrir verslunina. Reyndar hefur leigusamningi við okkur verið sagt upp. Samvinnusjóður íslands á húsnæðið og Lands- bankinn fer með mál sjóðsins. Við höfum gert kauptilboð í húsnæðið og ég held það verði ofan á að við kaupum það,“ sagði Gunnar Björnsson, sem stundar búskap með verslun- arrekstrinum eða verslunar- rekstur með búskapnum og hefur í nógu að snúast. Klukkan er að verða eitt og tími til kominn að opna Bakka fyrir viðskiptavinum. Og Gunn- ar þarf einnig að svara í sím- ann og greinilega einhver hestakaupmaður á línunni, því verslunarstjórinn biður hann að gera tilboð í merina og lofar að setja ekki strikamerkingar á klárinn. „Bjóddu tvær milljónir og ég skal skoða málið," segir hann og hlær, skellir á og hleypur svo fram í búð til að opna. js

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.