Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Blaðsíða 15
^Dagur-Ctittirat
Fimmtudagur 3. apríl 1997 - 27
AHltGAVERT
Stöð 2 - Fimmtudagurinn 3. apríl kl. 21.00
Grínmynd með Dom DeLuise
Dom DeLuise leikur aðalhlutverkið í grínmyndinni Svínin þagna, eða Silence
of the Hams, sem er á dagskrá Stöðvar 2. í öðrum helstu hlutverkum eru
Billy Zane, Joanna Pacula, Charlene Tilton, Bubba Smith, Shelley Winters og
Enzio Greggio sem einnig leikstýrir. Jo Dee Fostar er nýlega genginn til liðs við
bandarísku alríkislögregluna (FBI) og hefur fengið sitt fyrsta stóra mál til rann-
sóknar. Fostar er ætlað að hafa uppi á geðveikum raðmorðingja og koma hon-
um bak við lás og slá. í myndinni, sem er frá árinu 1994, er gert óspart grín að
stórmyndum á borð við Lömbin þagna og Psycho.
FJÖLIVIIÐLARÝNI
Óvissa um efni
Utvarpið er og verður líklega uppá-
halds miðill rýnis þrátt fyrir að
hann hafi sárafá tækifæri til þess að
hlusta á útvarpið. En allir vilja drepa
elskuna sína og því er rétt að agnúast
aðeins út í útvarpið. Einmitt vegna
anna og yfirtöku annarra ijölmiðla þá
fer það í taugarnar á rýni að fá aldrei
neinar upplýsingar um hvað verður
tekið fyrir í nokkrum föstum þáttum á
Rás 1 (sem ber auðvitað höfuð og
herðar yfir aðar útvarpsstöðvar). Þar
á bæ er algengt að skeleggt fólk tali
um eitthvað sem því liggur á hjarta í
einn klukkutíma eða svo. Einn svona
þáttur hefur heitið Frjálsar hendur og
er réttnefni því umsjónarmenn fá al-
gjörlega frjálsar hendur við efnisval
sem er vel. - En þegar dagskrárliður-
inn er kynntur er hvergi minnst á
hvað verður tekið fyrir hverju sinni.
Einungis er greint frá því að Guð-
mundur Andri ætli að rimsí ramsa
eða fremja Andrarímur, nú eða að 111-
ugi Jökulsson verði með morgunpistil
sinn og þannig mætti telja lengi.
Auðvitað eru þetta menn og konur
augnabliksins sem geta ekki neglt
niður það sem þau fýsir að tala um
löngu fyrirfram en þá vill rýnir benda
á að Dægurmálaútvarpið telur upp
áhugaverðustu gulræturnar á
hverjum degi. Rýnir hélt reyndar að
fyrr myndi hann dauður liggja en
hann færi til þess að hvetja ijölmiðla
til að auglýsa dagskrá sína enn frek-
ar. - En þegar lítill er tíminn þá skipu-
leggur maður hann betur og ef maður
veit af einhverju sem maður hefur
virkilegan áhuga á í útvarpinu þá
man maður eftir því að opna tækið,
svo einfalt er nú það. Og rýnir er mik-
ið fyrir fólk með frjálsar hendur.
UPPAHALPS ÚTVARPS- OG SJÓNVARPSEFNIÐ
„Karlakórinn Hehnir
í uppáhaldi“
Fréttir og fréttatengt
efni læt ég helst ekki
fram hjá mér fara,
hvorki í útvarpi nó sjón-
varpi, því ég vil fylgjast með
því sem er að gerast á líð-
andi stund innalands sem
utan.
Þá hef ég sérstaklega
mikið yndi af kórsöng og set
mig aldrei úr færi við að
hlýða eða horfa á kórsöng í
útvarpi og sjónvarpi. Og þar set ég
Karlakórinn Heimi í Skagafirði öllu
ofar. Raunar ber ég sérstakar taugar
til Skagfirðinga og mér finnst ég vera
kominn á aðra plánetu þegar ég nálg-
ast Silfrastaði, því þá fmnst mér sem
söngurinn og hinn hreini tónn komi í
fangið á mér. Skagfirðingar eru, að
öllum öðrum ólöstuðum, merkilegasti
og skemmtilegasti þjóðflokkurinn í
þessu landi.“
Guðmundur segist einnig leggja sig
í framkróka við að fylgjast
með þáttum sem fjalla um
söguna, stjórnmálin, þjóð-
hætti og menn og málefni á
þessari öld innan lands sem
utan.
Hann kveðst aftur á móti
afskaplega lítið fylgjast með
erlendum kvikmyndum og
framhaldsþáttum í sjónvarpi
og hafi ýmislegt þarfara við
tímann að gera.
Guðmundur G. Halldórsson telur
hinsvegar að útvarpið megi gera
meira af því að flytja vísnaþætti og
lileypa hagyrðingum að hljóðneman-
um. Guðmundur, sem er sjálfur lands-
þekktur hagyrðingur, segir að fátt sé
skemmtilegra en að setjast niður og
hlýða á snillinga eins og Hákon Aðal-
steinsson í Húsum og aðra vísnamenn
leiða saman sína hagmælsku-hesta og
hleypa á skeið.
ÚTVARP • SJONVARP
S J Ó N V A R P I Ð
10.30 Alþingi Bein útsending frá þingfundi.
16.45 Leiöarljós
17.30 Fréttlr.
17.35 Auglýsingatími - Sjónvarpskringlan.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Stundin okkar.
18.25 Tumi
18.55 Ættaróðaliö (12:13) (Brideshead
Revisited). Breskur myndaflokkur frá
1981 í tólf þáttum geröur eftir sam-
nefndri sögu breska rithöfundarins
Evelyn Waugh (1903-1966). Áður á
dagskrá 1983.
19.50 Veöur.
20.00 Fréttir.
20.30 Dagsljós.
21.00 Landsleikur í handbolta. Bein útsend-
ing frá seinni hálfleik í viðureign íslend-
inga og Kínverja.
21.40 Frasier (3:24). Bandarískur gaman-
myndaflokkur um útvarpsmanninn Frasi-
er og fjölskylduhagi hans. Aðalhlutverk:
Kelsey Grammer. Þýðandi: Guðni Kol-
beinsson.
22.10 Ráögátur (3:6) (The X-Files IV). Ný syrpa
í bandarískum myndaflokki um tvo
starfsmenn alríkislögreglunnar sem
reyna aö varpa Ijósi á dularfull mál. Að-
alhlutverk leika David Duchovny og Gilli-
an Anderson. Þýöandi: Gunnar Þor-
steinsson. Atriöi í þættinum kunna aö
vekja óhug barna. Þátturinn verður end-
ursýndur á föstudagskvöld kl. 0.20.
23.00 Ellefufréttir.
23.15 Þingsjá. Umsjónarmaöur er Helgi Már
Arthursson.
23.40 Dagskrárlok.
^STÖÐ 2
09.00 Línurnar í lag
09.15 Sjónvarpsmarkaöurinn
13.00 Vargur í véum (5:8) (Profit) (e)
13.45 Lög og regla (1:22) (Law and Order) (e)
14.30 Stjörnustriö (Star Wars Trilogy) (e)
15.15 Oprah Winfrey (e)
16.00 Maríanna fyrsta
16.25 Steinþursar
16.50 Meö afa
17.40 Sjónvarpsmarkaðurinn
18.00 Fréttir
18.05 Nágrannar
18.30 Stuttmyndadagar (3:7)
19.00 19 20
20.00 Bramwell (7:8)
21.00 Svínin þagna (Silence Of The Hams)
Bandarisk gamanmynd frá 1994 þar
sem gert er stólpagrín að spennutryll-
um á borð við Lömbin þagna og Psycho.
Hér segir af Jo Dee Foster, fulltrúa í al-
rikislögreglunni, sem leitar aö geöveik-
um raömorðingja. Vesalings Jo Dee veit
ekki sitt rjúkandi ráð og leitar því góöra
ráða hjá geðsjúkum glæpamanni að
nafni doktor Dýri en sá hefur veriö orð-
aður viö mannát. Aðalhlutverk: Dom
DeLuise, Ezio Greggio, Billy Zane og
Joanna Pacula. Leikstjóri: Ezio Greggio.
22.30 Kvöldfréttir
22.45 Lög og regla (2:22) (Law and Order)
23.35 Dómsdagur (Judgment Night) Fjórir ung-
ir menn villast í Chicago og keyra inn í
óhugnanlegan heim þar sem þeir verða
bráð næturhrafnanna. Aöalhlutverk: Em-
ilio Estevez. Leikstjóri: Stepen Hopkins.
1993. Stranglega bönnuö börnum.
01.25 Dagskrárlok
• SÝN
17.00 Spítalalíf (MASH)
17.30 íþróttaviðburöir í Asíu (Asian sport
show) íþróttaþáttur þar sem sýnt er frá
fjölmörgum íþróttagreinum
18.00 Körfubolti um víöa veröld (Fiba Slam 2)
18.30 Taumlaus tónlist
20.00 Úrslitakeppni DHL-deildarinnar. Sjá
kynningu.
21.20 Snjóflóöiö (Avalanche) Magnþrungin
spennumynd frá leikstjóranum Paul
Shapiro með David Hasselhoff, Michael
Gross, Deanna Milligan og Myles Fergu-
son í aðalhlutverkum. Flugvél hlekkist á
í óbyggðunum og rekst á fjallshlíö. Af-
leiðingarnar eru þær aö snjóflóð fer af
staö og lendir á afskekktum fjallakofa.
Þar innan dyra er einstæöur faöir ásamt
tveimur börnum sínum sem nú eru kom-
in i mikla hættu. Kofinn er við það að
hrynja undan snjóþunganum og hver
mínúta er dýrmæt. í þann mund sem
þau eru að leggja af staö til byggða ber
óvæntan gest aö garði. Þar er kominn
maður sem slapp lífs af úr flugslysinu
en aðstoö við hann kann að reynast fjöl-
skyldunni hættulegri en sjálft snjóflóöið.
1994. Stranglega bönnuö börnum.
22.45 Ljósaskipti (e) (Servants of Twilight)
Ógnvekjandi spennumynd um dreng
sem trúarofstækishópur telur að sé
djöfullinn og vilja myröa. Myndin er gerð
eftir bók metsöluhöfundarins Deans R.
Koonitz. Leikstjóri: Jeffrey Obrow.
1991. Stranglega bönnuö börnum.
00.20 Spítalalíf (e) (MASH)
00.45 Dagskrárlok
(Q) RÍKISÚTVARPIÐ
12.00 Fréttayfirlit á hádegi
12.01 Daglegt mál
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veöurfregnir
12.50 Auðlind
12.57 Dánarfregnir og auglýsingar
13.05 Bókmenntaþátturinn Skáiaglamm. „Sú
kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma".
Sigríöur Þorgeirsdóttir, Geir Svansson
og Birna Bjarnadóttir fjalla um bók Guö-
bergs Bergssonar.
14.00 Fréttir
14.03 Útvarpssagan, Lygarinn.
14.30 Miödegistónar
15.00 Fréttir
15.03 Þaö brennur!
15.53 Dagbók
16.00 Fréttir
16.05 Tónstiginn
17.00 Fréttir
17.03 Víösjá
18.00 Fréttir. Víösjá heldur áfram
18.30 Lesiö fyrir þjóöina:
18.45 Ljóö dagsins
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar og veðurfregnir
19.40 Morgunsaga barnanna endurflutt -
19.57 Tónlistarkvöld Útvarpsins
22.00 Fréttir
22.10 Veðurfregnir
22.15 Orö kvöldsins:
22.20 Hvaðan kemur gæskan? Hugleiðingar
um skáldskap þýska skáldsins Gott-
frieds Benn
23.10 Andrarímur
24.00 Fréttir
BYLGJAN
| RÁS
2
12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu Stöövar 2
og Bylgjunnar..
12.10 Gullmolar Bylgjunnar í hádeginu.
13.00 íþróttafréttir.
13.10 Gulii Helga. Fréttir kl. 14.00, 15.00 og
16.00
16.00 Þjóðbrautin. Síödegisþáttur á Bylgjunni.
Fréttir kl. 17-.00.
18.00 Gullmolar.
19.00 19 20. Samtengdar fréttir Stöðvar 2 og
Bylgjunnar.
20.00 isienski listinn. islenskur vinsældalisti
þar sem kynnt eru 40 vinsælustu lög
landsins. íslenski listinn er endurfluttur
á laugardögum milli kl. 16.00 og
19.00. Kynnir er ívar Guðmundsson og
framleiöandi er Þorsteinn Ásgeirsson.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
12.00 Fréttayfirlit og veöur
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Hvítir máfar
14.03 Brot úr degi
16.00 Fréttir
16.05 Dagskrá:
17.00 Fréttir Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir
18.03 Þjóöarsálin . Síminn er 568 60 90.
19.00 Kvöldfréttlr
19.32 Milli steins og sleggju
20.00 iþróttarásin Landsleikur viö Kína.
22.00 Fréttir
22.10 Rokkþáttur
24.00 Fréttir
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2. 18.35-
1900.Útvarp Noröurlands.. 18.35-19.00 Út-
varp Austurlands. 18.35-19.00 Svæðisútvarp
Vestfjaröa.