Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.04.1997, Blaðsíða 3
jDagur-íiItirmm
F R É T T
Þriojudagur 15. apríl 1997 - 3
ÚA stefnir upp
Aöalfundur ÚA
„Kolkrabbinn kemur í bæinn," sögðu menn á Akureyri í gær: Friðrik Jó-
hannsson, Hörður Sigurgestsson, Indriði Pálsson, Hjalti Geir Kristjánsson
og Benedikt Sveinsson. Mynd: GS
Jón Þórðarson endur-
kjörinn formaður en
Benedikt Jóhannes-
son og Friðrik
Jóhannsson kjörnir í
stjórn sem fulltrúar
aukins hlutafjár
stærstu hluthafa.
aðalfundi Útgerðarfé-
lags Akureyringa í gær
kom fram að gert er ráð
fyrir hallalausum rekstri á
þessu ári. „Áætlanir þessa árs
gera ráð fyrir verulega bættri
rekstrarafkomu en þó er gert
ráð fyrir að reksturinn verði í
járnum. Við bindum vonir við
að þær aðgerðir sem þegar hef-
ur verið gripið til og breytingar
sem gerðar verða á næstu mán-
uðum skili sér í því að félagið
verði gert upp með viðunandi
hagnaði árið 1998,“ sagði Guð-
brandur Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri. ÚA var rekið
með 123 milljóna króna tapi á
sl. ári. Jón Þórðarson, stjórnar-
formaður, sagði helstu ástæður
vera erfið ytri skilyrði hefð-
bundinnar landvinnslu og þá
sérstaklega í frystingu sem er
einn af hornsteinunum í rekstri
fyrirtækisins og óviðunandi af-
komu af rekstri frystitogara fyr-
irtækisins í Smugunni og á
Flæmingjagrunni. Litlar sem
engar umræður urðu á fundin-
um þrátt fyrir slæma útkomu.
Ný andlit í stjórn
Jón Þórðarson, forstöðumaður
sjávarútvegssviðs Háskólans á
Ákureyri, var endurkjörinn
stjórnarformaður, en aðrir
stjórnarmenn eru Halldór Jóns-
son, Kristján Aðalsteinsson,
Benedikt Jóhannesson og Frið-
rik Jóhannsson. Jón, Halldór og
Kristján voru í fyrri stjórn,
Benedikt kemur inn fyrir SH og
Friðrik fyrir Burðarás. Breytt
stórnarskipan endurspeglar
miklar breytingar á eignarhlut í
fyrra:
Akureyrarbær sem átti
meirihluta í fyrirtækinu seldi
hluta bréfanna og á nú 20%.
Aðrir stærstu eigendur eru
eignarhaldsfélag Eimskips,
Burðarás hf., með 19,55%,
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hf. með 10,48%, ÚA með
9,85%, Hampiðjan hf. með
6,29% og Hlutabréfasjóðurinn
hf. með 3,2%.
Bæta á rekstur
í sumar verður landvinnsla ÚA
endurskipulögð og er markmið-
ið að auka framleiðnina um-
talsvert með sjálfvirkni og
bættu vöruflæði í vinnslu-
rásinni.
Heildarafli togara félagsins
nam 19.472 tonnum á móti
22.783 tonnum á árinu 1995,
minnkaði um 3.311 tonn og er
skýringanna fyrst og fremst að
leita í verulegum niðurskurði á
karfakvóta, minni ýsuveiði og
hruni á grálúðu. GG
Vöruskipti
Pínulítið hagstæð
Vöruskipti íslendinga við
útlönd voru hagstæð um
600 milljónir í febrúar
síðastliðnum, en á sama tíma í
fyrra voru þau hagstæð um 2,8
milljarða. Fyrstu 2 mánuði
þessa árs voru fluttar út vörur
íyrir tæpa 22 milljarða en inn
fyrir rúma 20 milljarða. Út-
flutningurinn var 15% verð-
mætari en á sama tfma í fyrra,
en stærstan þátt x því á sala
Flugleiða á einni af vélum sín-
um. Verðmæti útfluttra sjávar-
afurða var nánast það sama og
í fyrra, en verðmæti útfluttra
iðnaðarvara jókst um 12%.
Verðmæti kísiljárns jókst um
53% og áls um 4%.
Heildarverðmæti vöruinn-
flutnings var 22% meira á föstu
gengi en í fyrra. fnnflutningur á
fjárfestingarvöru, einkum til
stóriðju, átti mestan þátt í
auknum vöruinnflutningi.
Akranes
Tveir slösuðust
í gassprengingu
Tveir menn slösuðust þeg-
ar gassprenging varð í
vélarrúmi Elliða GK í
Akraneshöfn á laugardag.
Menn voru við vinnu í vélar-
rúmi en höfðu farið í kaffi um
10 leytið. Þegar þeir komu tif
baka virðist sem gas hafí lekið
úr kút sem þeir voru með og
þegar þeir fóru að vinna aftur
varð sprengingin.
í gær átti annar mannanna
að fá að fara heim af sjúkrahúsi
en hinn, sem liggur á Landspít-
alanum í Reykjavík, lá þar
áfram. Þeir hlutu brunasár og
urðu fyrir höggum.
Kópavogur
Samkeppni um hj úkrunarheiniil ið
Sunnuhlíð telur
framhjá sér gengið
þegar Skjól og Eir
ætla að reisa heimili
fyrir 56 gamalmenni í
Kópavogi.
/
sama tíma og bæjaryfir-
vöid í Kópavogi hafa ekki
svarað 2 ára gömlu bréfl
Sunnuhh'ðarsamtakanna um
stækkxm hjúkrunarheimihs aldr-
aðra, Sunnuhh'ðar, um 17 rúm,
hefur Kópavogskaupstaður sam-
þykkt að ganga til samninga við
Skjól, Eir, VR, Öryrkjabandalagið
og SÍBS um byggingu nýs hjúkr-
unarheimilis í Kópavogi þar sem
verða 56 pláss.
Gunnar Birgisson, formaður
bæjarráðs Kópavogs, sagði í gær
að innlagnir í dag væru varla
miðaðar lengur við bæjarmörk á
höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar
væri mikil þörf fyrir rými á
hjúkrunarheimilum, til dæmis
væru 12 Kópavogsbúar á bráða-
lista í dag. Á sama tíma væru
ævinlega 10 pláss laus hjá
Sunnuhlíð. Gunnar sagði að bær-
inn hefði ítrekað sett íjármagn í
Sunnuhh'ð og sæi ekki eftir því.
Hins vegar vantaði skýringar á
erfiðum rekstri heimiiisins.
Ekkert á móti Skjóli og
Eir
„Þessi sammngur er við VR,
SÍBS og Öryrkjabandalagið, sem
eru eigendur að Skjóli og Eir.
Þessir aðilar hafa áhuga á að
reisa heimih í Kópavogi sem við
höfum að sjálfsögðu ekkert á
móti. Varðandi tilboð Sunnuhlíð-
ar fórum við í ráðuneytið til að
fá að vita hvort við fengjum
framkvæmdaleyfi á þann rekst-
ur. Það var ekkert gefið út á það.
Ef það leyfi fæst á undan heimili
Skjóls og Eirar, þá er það hið
besta mál,“ sagði Gunnar Birgis-
son.
Bréfi Sunnuhh'ðarsamtakanna
fylgdi frumteikning að stækkun-
inni og rökstuðningur þess að
um ódýra framkvæmd væri að
ræða, viðbyggingu suður og
austur af hjúkrunarheimilinu
sem reis fyrir 15 árum og sam-
nýtingu þjónustu við 55 rými
Sunnuhh'ðar.
Sérkennilegt að nýta
ekki samtök bæjarbúa
„Það er ekki okkar að hlutast til
um hvað löglega kjörin
bæjaryfirvöld gera. Við
höfum h'tið um þetta
að segja, Sunnuhlíðar-
samtökin kreíjast
einskis, en reyna sitt
besta. Mörgum flnnst
það þó óneitanlega
einkennilegt að bæjar-
stjórnin skuh ekki nýta
sér frjáls samtök bæj-
arbúa," sagði Ásgeir
Jóhannesson, forsvars-
maður víðtæks hóps íjölmargra
félaga og samtaka í Kópavogi,
sem á sínum tíma hrintu af stað
átakinu í Sunnuhlíð með öflug-
um stuðningi bæjarbúa.
Ásgeir segir að kaupstaðnum
hafði láðst í tvö ár að svara bréfi
samtakanna sem hlyti að teljast
fremur óviðurkvæmilegt. For-
maður bæjarráðs mætti á fundi
fulltrúaráðs og lofaði svari, en
það hefur látið á sér standa.-JBP
Gunnar Birgisson
formaður bæjarráðs Kópavogs
Þessir aðilar hafa
áhuga á að reisa
heimili í Kópa-
vogi sem við höf-
um að sjálfsögðu
ekkert á móti
Landbúnaður
Átök vegna áburðarmálanna
✓
g hef nú einsett mér að
skipta mér ekki af áburð-
armálum, þar sem ég á
sæti í stjórn Áburðarverksmiðj-
unnar í Gufunesi. En það er hins-
vegar haugalygi sem Þorsteinn
Þórðarson, sölustjóri ísafoldar,
segir að ég hafi fengið því fram-
gengt að KEA keypti ekki áburð
frá ísafold,“ segir Sigurgeir
Hreinsson, formaður Búnaðar-
sambands Eyjaljarðar.
Ilart stíð geysar nú á áburðar-
markaðnum milli ísafoldar hf. og
Áburðarverksmiðjunnar í Gufu-
nesi. Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk í gær, kostar
tonnið af Græði 9, sem er algeng
áburðartegund, 19.370 kr. hjá
ísafold og einnig getur komið til
4% staðgreiðsluafsláttur. Hjá
Áburðarverksmiðjunni kostar
tonnið af sömu tegund 28.241 kr.
Ýmis afsláttarkjör eru í boði, svo
sem afsláttur ef kaupandi sækir
áburðinn í Gufunes og fær flutn-
ingsstyrk. Að ýmsum forsendum
gefnum er Græðir 9 ódýrastur
hjá Kaupfélagi Árnesinga á Sel-
fossi, og kostar þar 20.457 kr.
Sigurgeir Hreinsson segir að á
fundi BE, hafí verið samþykkt
áskorun til KEA um að útvega og
selja eyfirskum bændum áburð á
því ódýrasta verði sem byðist.
„Einsog ég segi þá er ég í frekar
þröngri stöðu til að tala um þetta
áburðarmál. En ég tel að tals-
menn ísafoldar fari ekki með rétt
mál þegar segjast bjóða 15 til
18% lægra verð en Áburðarverk-
smiðjan gerir. Þá hefur ekki verið
tekið tillit til ýmissa afsláttar-
kjara sem hún býður,“ segir Sig-
urgeir. -sbs.