Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.04.1997, Page 12
J.
KARFA • Lokahóf KKÍ
Alfreðs gegn
landsliðinu?
Líklegt er að komið verði á leik
á milli íslandsmeistara KA og
íslenska landsliðsins í handknatt-
leik. Leikurinn yrði í KA-heimil-
inu og hvorttveggja liðiu- í undir-
búningi landsliðsins fyrir HM og
kveðjuleikur fyrir Aifreð Gísla-
son, þjálfara KA-liðsins.
„Það var orðað við mig fyrir
norðan hvort af þessu gæti orðið.
Málið er enn á byrjunarstigi, en
það væri gaman ef af þessu getur
orðið. Leikurinn yrði þá settur á x
lok næstu viku en þá eru allir
leikmennirnir komnir heim nema
Dagur (Sigurðsson) og Ólafur
(Stefánsson). Þá vonast ég til að
fá Patrek lausan," sagði Þorbjörn
Jensson, landsliðsþjálfari, sem
tilkynnir nítján manna æfinga-
hóp sinn fyrir HM á blaðamanna-
fundi á morgun.
Þýskaland
Fer Róbert frá
SchuttervaM?
Allar líkur eru á því að lið Ró-
berts Sighvatssonar, Schutt-
ervald, kveðji þýsku 1. deildina
eftir tap um síðustu helgi gegn
Grossvaldstadt, 29:24. Schutter-
vald er með 16 stig í deildinni,
þegar tveimur umferðum er
ólokið.
Róbert, sem skoraði ijögur
mörk í leiknum, mun líklega
færa sig um set til annars liðs í
Þýskalandi ef lið hans fellur nið-
ur í 2. deildina, en hann er með
klásúlu í samningi sínum um að
hann sé frjáls ferða sinna ef liðið
fellur.
Patrekur Jóhannesson skoraði
tvö marka Tusem Essen, sem
sigraði Magdeburg 28:21. Pat-
rekur skoraði tvö mörk í leikn-
um, en hornamenn Essen voru
mjög atkvæðamiklir í hraðaupp-
hlaupum.
Wupperthal
sigraði
Wupperthal sigraði Dus-
seldorf með tveggja
marka mun á útivelli í 2.
deildinni og það eru góðar
fréttir fyrir undirbúning ís-
lenska landsliðsins. Allt bend-
ir til að liðið nái efsta sætinu
og vinni sér beint sæti í 1.
deildinni. Liðið sem hafnar í
öðru sæti þarf að taka þátt í
aukakeppni um sætið í 1.
deildinni. IIB Þýskaland/fe
Jlagur-CDtmtmt
Veðrið
ídag
Þriðjudagur 15. apríl 1997
Línuritin sýna íjögurra
daga veðurhorfur
á hverjum stað. Línan
sýnir hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu en
vindáttir og vindstig
eru tilgreind fyrir
neðan.
Áfram sama góða
vorveðrið. Suðvestanátt,
gola eða kaldi og sums
staðar stinningskaldi.
Skýjað og víða súld
suðvestan- og
vestanlands en bjartviðri
um landið austanvert. Og
áfram óvenju hlýtt í
veðri.
Guðbjörg Norðfjörð og Hermann Hauksson, sem bæði leika með KR, voru valin bestu ieikmenn íslandsmótsins á
lokahófi KKÍ síðastliðið föstudagskvöld. Mynd: Harí.
Þauerubest!
Körfuknattleiksmenn
héldu uppskeruhátíð sína
á Ilótel íslandi síðast lið-
ið föstudagskvöld. Hátíðin fór
fram með hefðbundnum hætti,
skemmtiatriðum og verðlauna-
afhendingum, nema hvað dóm-
ararrnr tróðu ekki upp að þessu
sinni.
KR-ingar fóru ekki tómhentir
heim. Þeir áttu besta leikmann,
bæði í DHL-deildinni og 1. deild
kvenna. Hermann Hauksson,
fyrirliði KR, var valinn besti
leikmaður DHL-deildarinnar og
Guðbjörg Norðfjörö var valin
besta körfuboltakonan á keppn-
istímabilinu. Efnilegasti leik-
maður DHL-deildarinnar var
miðherjinn sterki hjá KFÍ, Frið-
rik Stefánsson, og kemur það
val varla nokkrum á óvart. í 1.
deild kvenna var Þórunn
Bjarnadóttir úr ÍR valin sú efni-
legasta. Frákastakóngur DHL-
deildarinnar varð Þórsarinn
Fred Williams. Ilann tók 16,1
frákast að meðaltali í leik og
hann var einnig með flest varin
skot í DHL-deildinni, 2,7 skot
að meðaltali í leik. Linda Stef-
ánsdóttir úr KR var með flesta
stolna bolta í 1. deild kvenna,
hvorki fleiri né færri en 5,7
þjófnaðir hjá henni í leik. Helgi
Jónas Guðfinnsson úr Grindavík
var þjófur ársins í DHL-deild-
inni og stal 3,7 boltum að með-
altali í hverjum leik. Fred Willi-
ams varð stighæsti leikmaður-
inn í DHL-deildinni með 28,5
stig að meðaltali. í 1. deild
kvenna var Penni Peppas stiga-
hæst með 25 stig í leik.
Nike-lið ársins, úrvalsliðið í
DHL-deildinni, var skipað eft-
irtöldum leikmönnum:
Falur Harðarson Keflavík leik-
stjórnandi,
Helgi Jónas Guðfiimsson
Grindavík skotbakvörður,
Hermann Hauksson KR fram-
herji,
Albert Óskarsson Keflavík
framherji,
Alexander Ermolinski ÍA mið-
herji.
Nike-liðið í l.deild kvenna var
skipað eftirtöldum:
Erla Reynisdóttir Keflavík bak-
vörður,
Alda Leif ÍS bakvörður,
Birna Valgarðsdóttir Keflavík
framherji,
Guðbjörg Norðfjörð KR fram-
herji,
Anna María Sveinsdóttir Kefla-
vík miðherji.
Það vekur óneitanlega at-
hygli að engin leikmanna ís-
landsmeistaranna frá Grindavík
var talin nógu góð til að skipa
Nike-liðið!!
Efnilegasti dómari ársins var
kosinn Sigmundur Herbertsson
úr UMFN. Hann hefur skipað
sér á bekk með bestu dómurum
landsins og er mikils að vænta
frá honum í framtíðinni. Besti
körfuknattleiksdómari lýðveld-
isins á þessu keppnistímabili
heitir Leifur Sigfinnur Garðars-
son og hann dæmir fyrir Hauka
úr Hafnarfirði.
Þjálfari ársins í DHL-deild
var kosinn Alexander Ermo-
linski frá ÍA.
í 1. deild kvenna var Antony
Walleyjo valinn besti þjálfarinn.
Nú var í fyrsta sinn valinn
besti leikmaður og besti þjálfari
í 1. deild karla. Valsarar áttu
báða þessa heiðurstitla, Torfi
Magnússon var þjáfari ársins
og Ragnar Jónsson leikmaður
ársins í 1. deildinni. Það var vel
til fundið að heiðra lið og leik-
menn neðri deildanna og von-
andi að það haldi áfram í fram-
tíðinni. gþö
{la/ultf/
uppþvottavélar
Reykjavík
SV3 SV3 NV3 N3 SA3
Sl/3 V2 NV2 NA3
Stykkishólmur
.9 Mið Fim Fös Lau mm_
10-1--- ---- ---- -----H5
SV4 SV4 NV3 NNA4 SA3
SSV4 VSV3 N3 NA3
Bolungarvík
SV5 SV3 NA2 NA3 A2
SV4 SSV1 NA2 NA3
Blönduós
SV3 SV2 NNA2 NNA2 SSA2
SV3 VSV2 NNA2 ANA2
Akureyrí
SV3 VSV3 A3 NNA3 S3
SV3 VNV2 ANA2 ANA3
Egilsstaðir
VSV3 VSV2 A2 SA2 SA2
V3 NNV3 ASA4 ANA4
Kirkjubæjarklaustur
°9 Mið Fim Fös Lau mm
----------------------=^i-20
-15
•10
- 5
0
V3 V3 N3 SSA3 SA3
V3 NV3 SA2 ASA3
Stórhöfði
VSV4 V4 NV4 N3 SA5
VSV4 VNV4 N3 ANA4
4-7 þvottakerfi • Sérstaklega
hljóðlátar • Sparnaðarrofi
Frábært verð - Frá kr. 49.755
KAUPLAND
KAUPANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829