Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.04.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.04.1997, Blaðsíða 8
20— Laugardagur 19. apríl 1997 |Dagur-®mmm LANDINU Leikará Pau eru þegar byrjuð að rijja upp gamlar minningar þegar blaðamaður mœtir á staðinn. Sögurnar fljúga á víxl og hlátur- inn ómar þegar skondin atvik koma upp í hugann. í áratugi tóku þau Björg Bald- vinsdóttir og Jón Kristinsson virkan þátt í starfi Leikfélags Akureyrar en í dag eru liðin 80 ár frá stofnun félagsins. Við lékum nú saman í leik- ritinu Pabbi. Jón lék pabbann og ég mömm- una,“ segir Björg. „Við áttum ijóra syni sem nú eru allir orðn- ir svo miklir og myndarlegir menn,“ bætir hún við og ekki laust við að hægt sé að greina móðurstolt í röddinni þó þeir hafi bara verið synir hennar í þykjustunni. Einn sonanna var reyndar sonur Jóns í alvörunni en það var Arnar Jónsson, sem nú er orðinn landskunnur ieik- ari. Hina synina þrjá léku þeir Úlfar Hauksson, Einar Haralds- son og Börkur Eiríksson. Leik- stjórinn var Jónas Jónasson, þá kornungur, og þau Björg og Jón Björg á sínum yngri árum í hlutverki Astu í Skugga-Sveini. eru sammála um að þetta hafi verið ljúft og yndislegt leikrit. Fjöldi hlutverka Þau Jón og Björg byrjuðu að leika hjá Leikfélaginu á svipuð- um tíma. Jón var reyndar í fyrsta sinn í smáhlutverki árið 1935 en 1944 lék hann fyrsta aðalhiutverkið sem var í leikrit- inu Leynimelur 13. Fyrsta hlut- verk Bjargar var aftur á móti í Franska ævintýrinu sem sýnt var árið 1943. „Ég var að telja það saman nýlega og þetta eru rúmlega 40 leikrit þar sem óg var með stærri hlutverk. Smá- hlutverkin tel ég ekki með,“ segir Björg en síðasta verkið sem hún lék í var Emil í Kattholti árið 1990. „Næstsíð- asta hlut- verkið mitt var í Silf- urtungl- inu. Þar lék ég fullu kerhnguna og fannst það æðis- lega gam- an,“ segir hún og hlær dátt. Hlut- verk Jóns eru einnig eitthvað á fimmta tug en þar á meðal eru mörg smærri hlutverk og segir Björg Baldvinsdóttir og Jón Kristinsson voru ekki í vandræðum að stilla sér upp fyrir myndatöku enda bæði þrælvön að vera í sviðsljósinu. hann Björgu hafa leikið mun meira en hann. Á móti kemur að Jón eyddi miklum tíma í stjórn, var formaður félagsins í 12 ár, og hefur enginn annar stjórnað félaginu í svo Iangan tíma. „Ég hætti aðeins á undan Björgu. Síðasta sýningin sem óg tók þátt í var á 125 ára afmæli Akureyrarbæj- ar árið 1987, segir Jón. Eftirminni- legar sýn- ingar Margir leikarar eiga erfitt með að gera upp á milli hlutverka. Segja hverja sýningu sér- staka og vilja síður draga út einstök hlut- verk. Þetta vefst þó ekki fyrir viðmælend- um okkar að þessu sinni. Jón nefnir strax Pat í Gísl og Georg í Mýs og menn. „Það var ein erfiðasta rulla sem ég hef nokk- urn túnann leikið,“ segir hann um síðara hlutverkið. „Stykki sem gekk ekki neitt,“ bætir hann við og Björg tekur undir. „Þetta var stórkostleg sýning og einkennilegt hvað fólk hafði lít- inn áhuga,“ segir hún. Einmitt þetta, að velja leikrit sem ganga í áhorfendur, segja þau vera eitt það erfiðasta í leikhúslífinu. Bjórg: „Eg dtti að koma inn alveg galin og mátti ekk- ert segja nema arga. Eg kom inn og öskraði og hann lét mig gera þetta aftur og aftur og aftur... “ „Þó okkur finnist eitthvað voða fínt veit maður aldrei hvort al- menningi finnist það sama,“ segir Björg. En hvað með uppáhaldshlut- verkin hennar? „Það eru óperetturnar. Mér þótti alltaf voðalega gam- an að syngja og þar fékk óg bæði að syngja og dansa.“ Eft- irminnanleg hlutverkin eru þó fleiri en sönghlutverkin eins og kemur í ljós þegar Björg dregur fram gamla myndamöppu og fer að fietta. Og nú skemmta þau sér saman, gömlu félag- arnir, við að skoða myndirnar. „Var ekki Stína í þessu hlutverki?" segir Jón og bendir. „Þetta var nú skemmtileg sýning," heyrist í Björgu sem bendir á aðra mynd. Og svo eru það leikstjór- arnir. Um þá er alltaf gaman að spjalla. „Ég hélt nú að Eyvindur væri brjálaður maður,“ segir Jón um Eyvind Erlendsson sem leik- stýrði Gísl árið 1968 en bæði Jón og Björg tóku þátt í þeirri sýningu. „Manstu þegar hann var að fá mig til að öskra,“ spyr Mynd: GS Björg. „Ég átti að koma inn al- veg galin og mátti ekkert segja nema arga. Ég kom inn og öskraði og hann lét mig gera þetta aftur og aftur og aftur. En ég öskraði náttúrulega alltaf eins.“ Jón fékk líka að kynnast dyntum Eyvinds. „Stundum lét hann mig tala ákaflega hægt. Svo á næstu æfingu eins hratt og ég gæti. Ilann var alltaf með einhverjar nýjar kúnstir. Ég hugsaði bara með mér að mér væri andskotans sama. Á frum- sýningunni geri ég þetta bara eins og ég vil.“ „Mér fannst hann nú samt ágætur," segir Björg. Oftast í léttum hlut- verkum Áfram er haldið að fletta í myndaalbúminu og fleiri sögur fæðast. „Mér fannst voða gam- an að leika í Þremur eigin- mönnum," segir Björg. „Þarna eru þeir Guðmundur Gunnars- son, Jón Norðijörð og Jóhann Ögumundsson, þessir þrír sem ég lék mest á móti. En þetta var eina skiptið sem við lékum öll saman." Næsta mynd er hka minnis- stæð. Þar sést Björg í hlutverki Herdísar í Uppstigningu. „Þetta var mikið átakahlutverk. Það fyrsta sem ég virkilega þurfti að taka á. Annars var ég alltaf lát- in í eitthvað létt, svona sprell." Þær safnast saman, minning- arnar, á tæpum fimmtíu árum og þau Jón og Björg eru löngu

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.