Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.04.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.04.1997, Blaðsíða 9
jOaptŒtetöcif ÍÚugaMaÖurlV'tiþíWtV97x-~^ LÍFIÐ I LANDINU „Eina skiptið sem ég hef haft leik- salinn alveg á valdi mér,“ segir Jón um þessa senu í Mýs og menn. Þarna er hann í hlutverki Georgs sem miðar byssu í hnakka Lenna og segir honum sögu á meðan, söguna um býlið. „Og þegar hann [Lenni] breiðir faðminn á móti sýn- inni er hann skotinn," segir Jón. hætt að taka eftir blaðamanni sem situr og fylgist með þeim ræða gamla tíma. Þó bæði séu yfir áttrætt eru þetta síður en svo gamalmenni. Skýr í kollin- um, augun kvik og þau hreyfa sig þegar þau tala. Standa jafn- vel upp af og til ef eitthvað í sögunni krefst þess. Leikurinn þeim greinilega í blóð borinn. En nú rífur bjölluhringing þessa ljúfu stund í fortíðinni. Ljós- myndarinn er mættur og vill fá mynd í hvelli. í fullri vinnu með leiknum Leikfélag Akureyrar var áhuga- leikfélag allt til ársins 1973, leikararnir fram að því allir áhugaleikarar og því flestir í fullri vinnu. Jón var á þessum tíma stjórnandi tveggja dvalar- heimila á veg- um Akureyrar- bæjar og hafði um 200 manns í vinnu. Heima fyrir átti hann konu og börn sem hann við- urkennir að hafa séð minna en hann vildi vegna anna í leikhúsinu. Björg hafði einnig miklu meira en nóg að gera þar sem hún var í fullri vinnu sem einkaritari raf- veitustjórans, var ritari Laxár- virkjunarstjórnar í aukavinnu og var auk þess ein að ala upp tvö börn. „Ég var fráskilin og þurfti að hugsa um heimili og tvö börn, bæði á skólaaldri. Ég skil það ekki núna hvernig í ósköpunum ég kom þessu öllu í kring,“ segir hún. Og oft var það líka erfitt viðurkennir hún. Rulluna sína lærði hún gjarnan á hlaupum á meðan hún var að elda kvöldmatinn. Hengdi hlut- verkið upp bak við eldavélina. Æfingar voru á kvöldin, stund- um jafnvel langt fram á nótt og hún minnist þess að fyrir hafi komið að hún saumaði heila flík á annað hvort barnið um nótt, þegar hún kom heim af æfingu. Jón naut þess vissulega að eiga konu sem hugsaði um börnin en Björg segir hinsvegar að hefði hún ekki losað sig úr hjónabandinu hefði hún aldrei getað tekið þátt í starfi með leikfélaginu. „Meðan ég var gift mátti ég helst ekki fara á söng- æfingu, hvað þá vera í leik- riti. Húsmóðir- in átti bara að vera heima og hvergi annars- staðar," segir hún. „En það var nú samt ekki þess vegna sem við skildum,“ bætir hún við eftir stutta þögn. Börnin og leiklistin Sumir segja að leikbakterían sé eitthvað sem gangi í ættir og víst er að börn margra leikara velja sér leik- listina að ævistarfi. Svo var um börn Jóns en ekki Bjargar. Arn- ar Jónsson hefur þegar verið nefndur en dóttir hans, Helga er einnig leikari. Fósturdóttir hans, Arnþrúður, er leikskóla- kennari en líka hún fór að hafa afskipti af leiklist þegar hún flutti til ísafjarðar. Björg hefur aftur á móti aðra sögu að segja. „Dóttir mín tók þátt í barna- skólaleikriti. Lék þar prinsessu og eru til voða fínar myndir af henni. Sonur minn lék í leikriti þegar hann var í Menntaskóla og er það í eina skiptið sem hann hefur farið á svið. Fannst það alveg nóg. Þau voru bæði afskaplega svekkt yfir því hvað ég var mikið að heiman og vildu bara helst aldrei fara í leikhús. Greyin þurftu að sjá svo mikið um sig sjálf.“ Heiðursfélagar Þó Jón og Björg séu hætt að leika eru þau ekki hætt að fara í leikhús. „Við erum heiðursfé- lagar og alltaf boðið á frumsýn- ingar," segja þau. Þeim finnst samt svolítið skrýtið að nú þekkja þau ekki nema örfáa af leikurunum. „Ég er alveg hætt að fara bakvið. Mér finnst svo skrýtið að sjá ekkert nema ókunnugt fólk,“ segir Björg. „Oftast eru nú Sunna eða Þrá- inn þarna,“ segir Jón og segist halda í þá venju sína að fara baksviðs, þó ekld sé nema fyrir siðasakir. Spjallið er farið að dragast á langinn. Ljúffengum kexkökum í boði Bjargar hefur verið skol- að niður með nokkrum kaffi- bollum. En nú er Jón farinn að líta á klukkuna og því kominn tími til að tygja sig. Ekki er þó hægt að skilja við gömlu leikar- ana án þess að minnast á húsið sem geymir allar minningarnar, Samkomuhúsið, sem nú stend- ur til að hætta að nýta undir leiksýningar. Látbragðið sýnir ljóslega að þau eru ekki hrifin af þessum áætlunum. Bæði andvarpa og hrista hausinn. „Samkomuhúsið fer ekkert," segir Jón og Björg tekur undir. „Það verður bara lagað og haldið áfram að leika þar því það er ekki nokkurt leikhús sem jafnast á við þetta. Allir leikarar sem komu þangað, meira segja þeir sem komu er- lendis frá, sögðu: Það er eitt- hvað sérstakt í þessu húsi. Al- veg yndislegt að leika hérna." AI Jón: „Hann var alltaf með ein- hverjar nýjar kúnstir. Eg hugsaði bara með mér að mér vceri andskot- ans sama. Á frum- sýningunni geri ég þetta bara eins og ég vil. “ iý, í i ^ "SSHSrSÍ l- Li- i m - *.*— * i % 4>~ ■ Jjte, H „V Mynd úr leikritinu Pabbi. Lengst til vinstri er Jón í hlutverki pabbans, þá Björk sem var mamman og síðan synirn- ir fjórir leiknir af Úlfari Haukssyni, Einar Haraldssyni, Berki Eiríkssyni og Arnari Jónssyni. Kennarar 222S- Kennarar Barnaskóli Ólafsfjarðar er skóli með 1 .-7. bekk grunnskóla. Á næsta skólaári verða þar um 150 nemendur í 8 bekkjardeildum. Fjöldi starfsmanna er venjuiega á bilinu 12-15 og er samstarf og samvinna í heiðri höfð. Á komandi skólaári vantar kennara í 3 og 1/2 stöðu. Um er að ræða almenna bekkjarkennslu og einnig kennslu í mynd og handmennt. Ef þú hefur áhuga þá hafðu samband við Gunnar Lúð- vík Jóhannsson, skólastjóra, Hlíð, 625 Ólafsfirði. Heimasími 466 2461, skólasími 466 2245. Gagnfræðaskólinn Ólafsfirði er fámennt skólasamfélag með 8., 9. og 10. bekk grunnskóla og framhaldsdeild, 1. ár framhaldsskóla. Fjöldi starfsmanna er jafnan á bilinu frá 8-12. Þar vantar kennara í 1 og 1/2 til 2 stöður næsta vetur. Um er að ræða kennslu í stærðfræði og raungreinum í 8.-10. bekk og framhaldsdeild, verslunargreinum, mynd- og handmennt og heimilisfræði. Kennsla á öðr- um sviðum kemur fyllilega til greina vegna sveigjan- leika kennara sem fyrir eru. Hafið samband við Óskar Þór Sigurbjörnsson, skóla- stjóra, Túngötu 13, 625 Ólafsfirði. Heimasími 466 2357, skólasími 466 2134. Samstarf skólanna er allnáið og síðastliðinn vetur var hafið sameiginlegt átak í gæðastjórnun og nýbreytni- starfi og mun því verða haldið áfram. Skólarnir eru ein- setnir og stærð bekkjardeiida er um þessar mundir á bilinu 15-25 nemendur. Öll húsnæðisaðstaða er mjög góð svo og tækjakostur. Nýjum kennurum er boðinn flutningsstyrkur og nið- urgreidd húsaleiga í 3 ár. Þá má geta þess að í Ólafs- firði er ein elsta og ódýrasta hitaveita landsins. Ólafsfjörður er öflugur útgerðarbær í 60 km fjarlægð frá Ak- ureyri. Á staðnum er heilsugæslustöð með tannlæknaþjón- ustu og sjúkraþjálfun, tvær alhliða matvörsluverslanir auk nokkurra sérverslana, sparisjóður og pósthús. Þá er góður leikskóli á staðnum og líflegur tónskóli. Ný íþróttamiðstöð með vel búnum íþróttasal, sundlaug, gufubaði, heitum pott- um og tækjasal. Aðstaða til skíðaiðkunar og vélsleðaferða er góð. Knattspyrnuvellir mjög góðir og skemmtilegur 9 holu golfvöllur. Ölafsfjörður er rómaður fyrir náttúrufegurð jafnt sumar sem vetur. Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 30. apríl nk. Skólastjórar. Vopnafjaröarskóli auglýsir Vopnafjarðarskóli er einsetinn með um 135 nemendur í 1. til 10. bekk. Kennara vantar í nokkrar stöður fyrir næsta skólaár. Kennslugreinar: Sérkennsla, raungreinar, tungumál, mynd- og handmennt, tónmennt, kennsla yngri barna og almenn kennsla. Flutningskostnaður og húsnæðishlunnindi eru í boði. Upplýsingar gefur skólastjóri í vinnusíma 473 1256 og heimasíma 473 1108 og aðstoðarskólastjóri í vinnu- síma 473 1556 og heimasíma 473 1345. íbúð óskast Óska eftir að leigja litla íbúð á Akureyri, helst með húsgögnum, eða lítið sumarhús í nágrenni Akureyrar. Upplýsingar veita Sérleyfisbílar Akureyrar hf. í síma 462 3510.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.