Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.05.1997, Side 12
+
Veðrið
í dag
Miðvikudagur 14. maí 1997
þurrkari
f
Þurrkari, 5 kg.
Snýst í báðar áttir, tvö hitastig
Verð kr. 33.155
Gæði, góð þjónusta.
KAUPLAND
KAUPANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Línuritin sýna íjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Norðan og norðaustan kaldi,
en stinningskaldi á vestan-
verðu landinu. É1 norðan til,
skúrir eða slydduél á Aust-
ijörðum en víða bjart veður
sunnan- og suðvestanlands.
Hiti nálægt frostmarki norð-
anlands en 1-12 stig syðra.
Stutt golfsumar á Akureyri
Akureyrskir kylfingar tóku til hendinni á laugardaginn þegar vinnudagur var að Jaðri. Rúmlega sjötíu fé-
lagsmenn mættu og unnu hin ýmsu verk í sjálfboðavinnu, jafnt utan- sem innanhúss. Á myndinni sjást
þeir Gísli Bragi Hjartarson, Viðar Þorsteinsson, Hreinn Pálsson og Ómar Halldórsson vinna við stækkun
á 18. teignum á Jaðarsvellinum. Nokkrar vikur eru síðan kylfingar fóru að slá hvítu kúluna, en þeir hafa
ekki verið mjög upplitsdjarfir síðustu dagana, enda hefur verið kalt í veðri og hálfgert vetrarveður. Sumir
hafa haft það á orði að golfsumarið hafi verið í styttra lagi að þessu sinni. Mynd:ie
KARFA
Kvennalands-
liðið til írlands
Kvennalandsliðið í körfu-
bolta undirbýr sig nú af
kappi fyrir átökin á Smá-
þjöðaleikunum, sem fram
fara hér á landi í næsta mán-
uði. Liður í undirbúningnum
er ferð liðsins til írlands, þar
sem liðið mun leika 3 leiki við
írska kvennalandsliðið. Fyrsti
leikurinn verður í Dublin 15.
maí nk.
íslenska liðið er þannig
skipað:
Anna María Sveinsdóttir Keflavík
Erla Þorsteinsdóttir Keilavík
Erla Reynisdóttir Keflavik
Birna Valgarðsdóttir Keílavík
Björg Hafsteinsdóttir Keflavík
Guðbjörg Norðfjörð KR
Helga Þorvaldsdóttir KR
Linda Stefánsdóttir KR
Kristín Magnúsdóttir KR
Alda Leif Jónsdóttir ÍS
Anna Dís Sveinbjörnsd. Grindavík
Hanna Kjartansd. Trewecca Nazarene
Þjálfari liðsins er Sigurður
Ingimundarson. Ilelgi Braga-
son mun fara með liðinu og
dæma leikina ásamt frskum
starfsfélögum sínum.
Það vekur óneitanlega at-
hygli að aðeins ein stúlka
kemur frá íslandsmeisturun-
um í Grindavík, Anna Dís
Sveinbjörnsdóttir. gþö
HANDBOLTI • HM í Japan
Allir leikir Islend-
inga á HM í beinni
útsendingu
Rfldssjónvarpið mun sýna
alla leiki íslands í riðla-
keppni heimsmeistara-
mótsins í Japan í beinni útsend-
ingu, en fyrsti leikur íslands í
keppninni fer fram á laugar-
daginn, en þá leika íslendingar
gegn gestgjöfunum Japönum í
opnunarleik mótsins.
Níu klukkustunda tímamis-
munur er á Japan og íslandi.
Leikir íslendinga í keppninni
fara því flestir fram á morgn-
ana, að íslenskum tíma, en gert
er ráð fyrir að þeir verði endur-
sýndir síðar um daginn.
Beinar útsendingar sjón-
varpsins eru sem hér segir:
Laugardaginn 17. maí:
Ísland-Japan kl. 10:25
Sunnudaginn 18. maú
Ísland-Alsír kl. 9:55
Fimmtudaginn 22. maí:
Ísland-Júgóslavía kl.5:55
Laugardaginn 24. maí:
Ísland-Litháen kl. 9:55
Sunnudaginn 25. maí:
Ísland-Sádi Arabía kl. 5:55
Ef íslenska Iiðið vinnur sér
sæti í úrslitakeppninni verða
þeir leikir einnig sýndir beint.
Þriðjudaginn 27. verður leikið í
16-liða úrslitum og tveimur
dögum síðar fara fram leikir í
8-liða úrslitum. Leikir um ein-
stök sæti hefjast föstudaginn
30. þegar leikið verður um 9.-
12. sætið og degi síðar verður
keppt um sæti 5.-8.
Sjónvarpið mun sýna leikinn
um bronsverðlaun mótsins á
miðnætti aðfaranótt sunnu-
dagsins 1. júní og sömuleiðis
úrslitaleik mótsins sem hefst
tveimur klukkustundum síðar.
HANDBOLTI
28 stunda
ferðatag til
Kumamoto
s
Islenska landsliðið í hand-
knattleik kom til Kumamoto
klukkan 11 um morguninn að
íslenskum tíma, eða um 28
klukkustundum eftir að liðið
lagði af stað frá Keflavfloirflug-
velli. Ferð liðsins tafðist um
margar klukkustundir vegna
bilunar í vélinni sem flytja átti
liðið frá Stokkhólmi til Tokyo.
Var þá gripið til þess ráðs að
fljúga til London og þaðan til
Tokyo. Síðasti hluti ferðarinnar
var síðan til Kumamoto og ís-
lensku leikmennirnir voru
orðnir slæptir þegar loks var
komið á áfangastað.
íslenska landsliðið leikur
vináttuleik við Portúgal í dag,
og hefst leikurinn klukkan 18
að japönskum tíma, en kl. 9 um
morguninn að íslenskum tíma.
Handbolta-
stóðust
lyfjaprófin
Fyrir nýliðið keppnistímabil
óskaði HSÍ eftir því af lyfja-
eftirlitsnefnd ÍSÍ að tekin yrðu
sýni nokkrum sinnum á keppn-
istímabilinu og varð lyfjaeftir-
litsnefnd við þeirri beiðni. Tólf
lyfjapróf voru framkvæmd og
reyndust þau öll neikvæð.
Björgvin viil
komatilKA
Björgvin Rúnarsson, sem
leikið hefur með Selfossi,
hefur lýst yfir áhuga á að koma
til KA. Björgvin sem er örvhent-
ur var einn lykilmanna Selfoss
á síðasta keppnistímabili. Hann
lék í hægra horninu, en hefur
einnig leikið sem skytta. Ekki
hefur enn verið ákveðið hvort
gengið verði til samninga við
hann. Björgvin skrifaði undir
þriggja ára samning við Selfoss-
liðið í vor, en liðið féll sem
kunnugt er niður í 2. deild, svo
ef samningar takast þá þurfa
KA-menn einnig að semja við
Selfyssinga.