Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Side 7
ÍOagur-tEtmhm
Laugardagur 14. júní 1997 -19
LIFIÐ I LANDINU
Sérstök lög voru sett á „rokkarana". Þeir mega hvergi safnast saman og ekki bera merki félaga sinna í Dan-
mörku.
Ófriður enn á ný
En meðlimum
Banditos fjölg-
aði hratt. Band-
itos klíkan tók
yfír stóran hluta
á hassmarkaðn-
um án þess að
Vítisenglaklíkan
fengi rönd við
reist. Þegar
Banditos hélt al-
þjóðamót sitt á
síðasta ári í
Finnlandi þótti
Vítisenglunum
sér verulega
ógnað. Þegar
Banditos liðarn-
ir héldu heim á
leið til Danmerkur létu þeir
ófriðlega í flugvélinni og þegar
til Kastrup flugvallar kom
klæddust þeir skotheldum vest-
um því þeir bjuggust við hinu
versta. Nokkrir félagar úr
glæpakhku Vítisengla voru
nefnilega mættir á flugvöllinn
og tóku á móti þeim með skot-
árás, haldandi það að þeir
kæmu óvopnaðir úr fluginu.
Þeir vissu hins vegar ekki að á
flugvellinum voru menn úr
Banditos klíkunni sem biðu eftir
félögum sínum, vopnaðir, og
svöruðu í sömu mynt. í árásinni
lét einn Banditos meðlimur lífið
og þrír særðust. Það er ótrúlegt
að saklausir borgarar skyldu
ekki slasast í árásinni því á
annatíma eru á annað þúsund
manns í flugstöðinni.
Við berjumst, þið
borgið...
Talið er að 70% þeirra sem telj-
ast til hættulegra „rokkara" séu
í fangelsi í dag og þar sem stór
hluti reyndari „glæparokkara"
er kominn í fangelsi hafa þeir
Þann 10. mars 1996. Fyrsta fórnar-
lambið lét lifið við Kastrup flug-
stöðina í Kaupmannahöfn eftir
skotárás.
algerlega misst tökin á glæpa-
samtökum sínum. Það vantar
félaga í klík-
urnar og því
hafa alls lags
smá- krim-
mar verið
teknir inn
þannig að litla
stjórn er hægt
að hafa á
gjörðum með-
limanna.
Einnig eru
dæmi um að
unglingagengi
sem aldrei
hafa sest á
mótorhjól séu
skreytt merkj-
um þessara glæpaklíka án þess
að „rokkararnir" hafa hugmynd
um hverjir þarna eru á ferð.
Það er erfitt að spá því hvar
þetta stríð glæpagengja mótor-
hjólasamtakanna tveggja endar.
Daglega eru einhverjar uppá-
komur tengdar þessum „glæpa-
rokkurum" og lögreglan stend-
ur alltaf í baráttu við þá. Eng-
inn veit hvað gerist næst og
þessar árásir „rokkaranna"
hafa blandast háværum um-
ræðum Dana um ofbeldi í sam-
félaginu. Af þessu er ljóst að
Danir eru engir eftirbátar ann-
arra vestrænna þjóða þegar
kemur að ofbeldi.
Gylfi Símonarson.
Upphafið að glcepa-
klíkum mótorhjóla-
samtakanna md
rekja til dranna
1960 og 1970 þegar
dkveðnar hverfa-
klíkur tóku að
myndast í Kaup-
mannahöfn.
íþróttakennarar
Kennara vantar að Grenivíkurskóla næsta skólaár
til að kenna íþróttir og bóklegar greinar.
Skólinn er fámennur, nemendur á næsta vetri verða
um 50 í 1.-10. bekk.
Aðstaða til kennslu er öll hin besta og nýtt íþróttahús
og sundlaug eru við skólann.
Gott húsnæði á lágu verði er til reiðu fyrir kennara.
Umsóknarfrestur er til 25. júní.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma
463 3118 eða 463 3131.
Mjaltir
Sauðburður
Frumtamningar
Landnýting
Rafsuða
Fjölbreytt nám til lífs-
bjargar í dreifbýlinu.
Innritun stendur yfir.
Bændaskólinn á
Hvanneyri
Sími 437 0000
http://www.hvanneyri.is
Spennandi starfsnám
Lánshæft samkvæmt reglum LÍN
'N
AKUREYRARBÆR
Leikskólakennarar
Leikskólakennarar, laus eru til umsókn-
ar störf á eftirtöldum leikskólum Akur-
eyrarbæjar:
Holtakot - staða aðstoðarleikskólastjóra og leik-
skólakennara með deildarstjórn.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 462 7081.
Árholt - staða leikskólakennara með deildarstjórn
og almenn leikskólakennarastaða.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 462 3676.
Lundarsel - staða leikskólakennara með deildar-
stjórn og almennar leikskólakennarastöður. Upplýs-
ingar gefur leikskólastjóri í síma 462 5883.
Kiðagil - staða leikskólakennara með deildarstjórn
og almennar leikskólakennarastöður.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 462 1761.
Iðavöll - staða leikskólakennara með deildarstjórn.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 462 3849.
Klappir - almennar leikskólakennarastöður.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 462 7041.
Flúðir - staða leikskólakennara með deildarstjórn
síðdegis.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 462 6602.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK og Akur-
eyrarbæjar eða Launanefndar sveitarfélaga og Fé-
lags íslenskra leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um kaup og kjör gefur starfs-
mannastjóri Akureyrarbæjar í síma 462 1000.
Umsóknum skal skilað til starfsmannadeildar í
Geislagötu 9 og þar fást einnig umsóknareyðublöð.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 1997.
Starfsmannastjóri.