Dagur - Tíminn - 14.09.1996, Page 1
Góða helgi!
Laugardagur 14. september 1996 - 79. og 80. árgangur -175. tölublað
/ kvöld fá lands-
menn að kynnast
nýrri hlið á Karli
Ágústi Úlfssyni
spaugstofumanni
þegar frumsýnt
verður í Þjóðleikhús-
inu Hvítt niyrkur.
Hádramatískt verk
sem gerist úti á
landi Mynd: Pjetur
OKKAR SAMFÉLAG
ER SVOLÍTIÐ ÞORP
s
kvöld verður frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu leikritið
Hvítt myrkur, dramatískt
verk, sem gerist einhvers stað-
ar á landsbyggðinni. Dagur
Tíminn tók púlsinn á höfundin-
um, sem hingað til hefur verið
þekktur fyrir allt annað en
dramatík, Karli Ágústi Úlfssyni.
- Hvað er að segja um titil
verksins?
„Þetta er dramatískt verk
sem gerist á hóteli á lands-
byggðinni í vondu veðri. Fólk er
innilokað og sér ekki út úr aug-
um. í öðru lagi má skilja titilinn
á íleiri en einn hátt, ýmsar per-
sónur í verkinu eru umluktar
þessu myrkri.“
- Þú ert að fjalla um þorps-
samfélagið.
„Já, Allt okkar samfélag er
svolítið þorp. Ég hef búið í mis-
stórum byggðakjörnum og mis-
stórum samfélögum en mér
finnst ég alltaf reka mig á sömu
tilhneigingarnar, bara í mis-
munandi .stærðargráðum. Að
öðrum þræði er ég að velta því
fyrir mér í þessu verki."
- Gerist þetta í samtíman-
um?
„Þetta gerist nálægt nútxrn-
anum en tíminn er ekki alveg
skilgreindur."
- Þú hefur verið þekktur fyrir
grín en er þetta fyrsta dramat-
íska verkið sem þú skrifar?
„Ég hef skrifað nokkur leikrit
og sum hafa verið sett upp en
önnur ekki. Nei, þetta er alls
ekki fyrsta dramatíska verkið
sem ég skrifa. íslendingar
þekkja þau ekki þar sem þau
hafa aðeins verið sett upp er-
lendis, t.d. í Bandaríkjnunum.
- Ertu ekkert hrœddur við að
sýna íslendingum hina hliðina?
„Nei, en ég átta mig samt á
að þetta er að sínu leyti eins og
með grínleikara sem verða
þekktir fyrir gamanhlutverk,
það getur verið erfitt að brjót-
ast út úr þeirri ímynd sem fólk
setur mann í.“
- Á það eftir að há þér?
„Ég trúi því ekki en það
verður bara að koma í ljós. Það
er eins með mig og sumar per-
sónurnar í leikritinu, það verð-
ur bara að koma á daginn hvort
ég þarf að fylla út í þá ímynd
sem umhverfið hefur sniðið
mér, eða fæ að vera frjáls.“
(Hlær).
- Hvort tekst þér betur upp í
spauginu eða því dramatíska?
„Ég hvorki vil né get tjáð mig
um það. Þetta eru ólíkir hlutir
og ég hef gaman af hvoru
tveggja en á mjög mismunandi
hátt. Ég er í raun og veru
ánægður með að fá tækifæri til
að stunda hvort tveggja."
- Nauðsynlegt fyrir þróun
listamanns?
„Ja, a.m.k. fyrir mig. Alveg
nauðsynlegt."
- Rétt í lokin - hver er fram-
tíð Spaugstofunnar?
„Ég held hún sé björt, það er
þó ekki frágengið hvað við ger-
um í vetur. Þetta er nú hópur
sem starfar saman með hléum.“
- Verðið þið í sjónvarpinu?
„Það er ekki frágengið."
- Eruð þið orðnir svolítið
háðir hver öðrum eins og jjöl-
burabrœður?
„Já, það er einmitt eitthvað
svoleiðis. Sem betur fer höfum
við gaman af félagsskap hvers
annars og það kemur alltaf eitt-
hvað út úr honum.“
- Ykkur hefur aldrei dottið í
hug að fá konu um borð?
„Jújú, en eins og þú segir þá
er þetta orðið eins og systkina-
hópur sem erfitt er að breyta."
-BÞ
Tónlistarmaðurinn góð-
kunni, Ingimar Eydal,
hefði orðið sextugur í
haust hefði hann lifað.
Af þessu tilefni hafa
íjölmargir tónlistar-
menn tekið höndum
saman og undirbúa nú
veglega minningartón-
leika.
Sjá bls. 14.