Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 2
14 -Laugardagur 5. október 1996
^lirgur-®mrám
Þeir höfðu ástæðu til að gleðjast, þeir Friðrik, Einar
og allir hinir sem komu nálægt gerð Djöflaeyjunnar,
dýrustu kvikmyndar sem framleidd hefur verið á fs-
landi til þessa. Hugmyndin sem kviknaði á barbúllu í Kaup-
mannahöfn fyrir tæpum tveimur áratugum er loks orðin að
veruleika því myndin var frumsýnd á fimmtudagskvöld. Að
sjálfsögðu gerðu menn sér glaðan dag að sýningu lokinni
og þar var ljósmyndari Dags-Tímans staddur og smellti af
nokkrum myndum.
yTimwi 1
'y V.
Þau voru í frumsýningarpartíinu: Sigríður Dúna Kristmundsdóttir (t.v.),
Friðrik Sophusson, Guðrún Pálsdóttir, Þórir Baldursson, Þóra Jónsdóttir,
Björgvin Halldórsson, Ragnheiður Reynisdóttir og Björn G. Björnsson.
Nýr bar við Austurstræti
; 'ftvarpskonunni Lísu Páls-
dóttur er ýmislegt fleira
V»X til lista lagt en dagskrár-
gerð. Á árum áðum vann hún á
börum í Kaupmannahöfn og nú
stendur til að rifja upp stemmn-
inguna bak við barborðið þar
sem hún og maður hennar,
Björgúlfur Guðmundsson, hafa
opnað
an bar til húsa í kjallara við
Austurstræti.
Nýi staðurinn heitir „Bar í
strætinu" og var opnaður með
pompi og prakt á fimmtudags-
kvöld. Barinn er einskonar úti-
bú af Kaffi Austurstræti, sem er
á hæðinni fyrir ofan, og þarna
er ætl-
unin að bjóða upp á lifandi tón-
list um helgar og sérstök þema-
kvöld á fimmtudagskvöldum.
„Við munum hafa gítar og
hljóðkerfi á staðnum og þeir
sem vilja og kunna geta tekið
lagið,“ segir Lísa.
Þemakvöldin segir hún að
geti t.d. verið í formi ljóða-
kvölda, sérstök hljómsveit verði
tekin fyrir, tónlist frá ákveðnu
tímabili og annað í svipuðum
dúr.
„Bar í strætinu“ er lítill stað-
ur og Lísa segir hann frábrugð-
inn öðrum börum að því leyti
að vegna smæðarinnar fari fólk
frekar að spjalla við þá sem eru
á næsta borði þó þeir þekki þá
ekki neitt.
Björgúlfur, maður Lísu, mun
bera hitann og þungann af
rekstri nýja barsins en Lísa seg-
ist ætla að afgreiða á barnum
af og til og hjálpa við að koma
þessu af stað. En hvernig kvikn-
aði sú hugmynd að opna þenn-
an stað?
„Eiginlega var það meira fyr-
ir tilviljun. Maðurinn minn spil-
aði stundum uppi á Kaffi
Reykjavík. Þetta húsnæði var
skyndilega laust og við slóum
til.“ AI
starfsbróður sínum á
Rás 2, Magnúsi Einarssyni.
Á opnunarkvöldinu. Hjónin Lísa Páls og Björgúlfur Guðmundsson ásamt Erni Ingólfssyni (lengst til hasgri),
vini þeirra og hjálparhellu. Myndir: Þjetur