Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 10
22 - Laugardagur 5. oktober 1996 Jkgur-®ímmn Blóðhitinn kringum 37 gráður Kristinn R. Ólafsson talar ekki frá Madrid að þessu sinni heldur hlýlegum húsakynnum Kaffileikhússins í Hlaðvarpanum. Hann fagnaði 15 ára fréttaritaafmæli á þessu ári og mun eiga titilinn „starfsaldursforseti fréttaritara útvarpsins á erlendri grund“ með réttu. Víst er að þeir sem fylgjast með fréttum hafa vart komist hjá því að veita fréttaflutningi hans eftirtekt. Þannig eru ekki margir sem hafa sett sig í stellingar fornra sagnaritara til að lýsa fótbolta- leikjum suður í álfu á ofan- verðri 20. öld. Það gerir Krist- inn óhikað og fór nýlega á kost- um í einni leiklýsingunni þar sem við lá að léttklæddir fót- boltakappar umbreyttust í loð- klædda og sauðskinnsskædda forngarpa. Kristinn er staddur á landinu til að fara með hlutverk sögu- manns á Spænskum kvöldum í Kafflleikhúsinu og hefur hug á að vera hér í eins og einn góðan togaratúr. Maðurinn ætti að hafa einhverju að miðla enda verið í útlegð á Spáni síðan í árslok 1977 og býr nú í Madrid ásamt spænskri konu sinni og dóttur. Tvær bækur væntanlegar í 12 ár kenndi Kristinn enska tungu á Spáni en aðalvinna hans hefur verið fréttaritara- starfið. „Svo hefur ýmislegt rek- ið á ijörur manns.“ Undanfarið hefur hann unnið við þýðingar og skriftir og kemur afrakstur- inn út núna fyrir jólin í tveimur bókum, einni þýddri og annarri frumsamdri. Sú þýdda heitir Refskák, bríkin frá Flandri og er eftir fyrrum stríðsfréttamann hjá sjónvarpinu Arturo Pérez-Re- verte sem átt hefur hverja met- sölubókina eftir aðra undanfar- Ég hef fengið nokkra unglinga til að lesa [bókina] og þeim hef- ur bara þótt þetta ágætt, þora a.m.k. ekki að segja annað við mig. in ár. „Þetta er í senn skákþraut og morðgáta. Það er verið að gera upp þessa gömlu brík, sem er málverk á tré eftir flæmskan málara, í Madrid og á henni sitja tveir herramenn að skák en skákin er jafnframt lausn á „Þetta er gott fólk, hjartahlýtt og tryggir vinir,“ segir Kristinn R. Ólafsson um Spánverja, en hann hefur búið á Spáni síðan 1977. Mynd: Pjetur morðinu á öðrum þeirra. Síðan eru morð framin í Madrid nú- tímans í sambandi við málverk- ið og til þess að leysa þau, þarf að halda skákinni á málverkinu áfram og leika við morðingjann sem drepur í samræmi við það sem gerist á skákborðinu." 12. aldar tryllir Gera mætti ráð fyrir að maður sem dvalið hefur í tæpa tvo ára- tugi á erlendri grundu væri far- inn að missa nokkuð tökin á móðurmáli sínu. Svo er ekki með Kristin. „Ég á 13 ára dótt- ur sem er tvítyngd og við feðgin tölum alltaf saman á íslensku. Svo fer mest öll mín vinna fram á íslensku. Ég held mér við með lestri og Islendingasögurnar eru alltaf 'þrjótandi sjóður, eins og heyra má í fótboltapistl- um mínum stundum.“ Frumsamda saga Kristins ber áhuga hans á íslendinga- sögunum greinileg merki. Telja má það nokkra áræðni en hann skrifar söguna fyrir unglinga - í sagnastíl með orðaskýringum á hverri síðu. Bókin heitir Fjöl- móðs saga föðurbetrungs - æv- intýralegur 12. aldar tryllir. „Hún Ijallar í stuttu máli um ævintýri Fjölmóðs og gerist í byrjun 12. aldar á íslandi, í nokkurs konar draumheimum, og á eyjunum Majúrku og Ívísu," en svo nefndi Snorri Sturluson partíeyjuna fbísa í Heimskringlu á sínum tíma. Búandi á Spáni hefur Krist- inn lítil samskipti við íslenska unglinga og er ekki viss um hvernig íslenskir unglingar taka sögunni. „Ja, ég lýg því nú ...þegar menn vilja vera skemmtilegir á Spáni þá fara þeir annað hvort að tala illa um náungann eða klæmast. Ég held að það sé líka rauði þráðurinn í íslenskri fyndni. reyndar. Ég hef fengið nokkra unglinga til að lesa hana og þeim hefur bara þótt þetta ágætt, þora a.m.k. ekki að segja annað við mig.“ Sköpuð í kross Spánn hefur lokkað til sín margan íslendinginn í 21 sælan sólardag. En hvað er það við spænsku þjóðina sem heillar Kristin sem hefur dvalið þar í öllu fleiri daga? „Þetta er gott fólk, hjartahlýtt og tryggir vinir. Svo er gott að lifa á Spáni fyrir þá sem hafa á annað borð at- vinnu, en atvinnuleysið er stærsta vandamálið þar.“ En ætli íslendingar og Spán- verjar séu mjög ólíkir? „Ég held að við séum öll sköpuð í kross og sami blóðhiti í öllum, svona kringum 37 stig. Kímnigáfa Spánverja og íslendinga er t.d. nánast eins. Spánverjar segja kannski brandara með meiri bakföllum. En þegar menn vilja vera skemmtilegir á Spáni þá fara þeir annaðhvort að tala illa um náungann eða klæmast. Ég held að það sé líka rauði þráð- urinn í íslenskri fyndni.“ Klisjukennd ímynd „Ég held að það sé minni mun- ur en oft er látið. Þessi mynd Spánar erlendis um allan þenn- an blóðhita og þetta stappandi og klappandi fólk er svolítið klisjukennd. Ég held að Spán- verjar séu yfirhöfuð venjulegt fólk. Vinna sína vinnu og Iifa sínu lífi. Spánverjar eru heldur ekki allir dökkhærðir og brún- eygðir. Þarna er margt fólk með blá augu og ljóst hár. Spánverj- ar eru afkomendur svo margra þjóða. Og það getur verið jafnmikill munur á Baska og Andalúsíu- manni og á íslendingi og Spán- verja." LÓA Tilboö óskast! Vátryggingafélag íslands hf. Akureyri, óskar eftir tiiboðum í eftirtaidar bifreiðar, sem lent hafa í um- ferðaróhöppum. 1. MMC Lancer st. 4x4 ........árgerð 1996 2. Toyota 4Runner ............árgerð 1991 3. Subaru Justy GL ...........árgerð 1991 4. MMC Gaiant 2000 ...........árgerð 1989 5. Mazda 323 .................árgerð 1989 6. Toyota Lancruser D ........árgerð 1988 7. Land Rover D ..............árgerð 1987 8. Toyota Tercel 4x4..........árgerð 1987 9. Subaru 1800 st.............árgerð 1984 10. Toyota Corolla L/B .......árgerð 1988 Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð VÍS að Furuvöllum 11, Akureyri, mánudaginn 7. október nk. frá kl. 9.00 til 16.00. Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16.00 sama dag. 'W/Hfr VÁTRYGGINGAFÉLAG Wttf ÍSLAiNDS HF

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.