Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 24

Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 24
iD^tgur-ÍTtmímt Laugardagur 5. október 1996 Símar 46O 61 >00 ritstiórnar & 5631600 ÞEKKTIR ÞÚ ARURNAR? í gær birtum við árur fjögurra þjóðþekktra einstaklinga. í dag segjum við ykkur hver var hvar og hvað myndirnar segja okkur um þeirra innri mann Borgþór Jónsson, veðurfræðingur Andlega þroskað og næmt náttúrubarn, sem er í góðu andlegu jafnvægi og mjög jarðtengt. Það er fullt af lífsgleði, lífskrafti og lækningu sem táknar sennilega að það sé að vinna að því að bæta eigin heilsu. Kolfinna Baidvinsdóttir, dagskrárgerðarmaður Dagsljóss Listræn og kærlíksrík manneskja, sem er að ganga í gegnum mikið þroskaskeið. Hún er svolítið flöktandi en býr jafnframt yfir miklum viljastyrk og skipulagshæfi- leikum. Undir niðri kraumar áhugi fyrir öllu dulrænu og yfirnáttúrulegu. Óiöf Rún Skúladóttir, fréttamaður Þessi einstaklingur er mjög andlega sinn- aður. Hann geislar af hjartahlýju, hefur mikla dómgreind, þ.e. innri visku úr fyrri lífum, og er svo næmur að dulrænir hæfi- leikar eru sennilega til staðar. Það er mjög bjart yfir honum og greinilegt að breytingar til hins betra standa yfir. ajgi - . W Vaitýr Björn Valtýsson, íþróttafréttamaður Heilbrigður og hraustur maður í góðu jafnvægi, sem hefur mikinn kraft og út- hald. Hann er ennfremur gæddur skipu- lags- og leiðtogahæfileikum. Einhver hug- arfarsbreyting, ef til vill í átt til andlegra málefna, er að gerjast með honum núna. P.s. Beðist er velvirðingar á því að í gœr rugluðust lextar við myndir þeirra Ólafar Rúnar og Valtýs Björns en áruskyggnir menn hafa sjálfsagt strax séð að hér var ekki alll með felldu. GJALD 1000-1730 VIRKA DAGA Bifreiðastæðasjóður Akureyrar kynnir: Nýtt ojoldskult Mánudaginn 7. október n.k. verður tekið í notkun nýtt gjaldskylt stæði við Geislagötu sunnan Búnaðar- bankans. Miðamælir verður á stæðinu og gjald verður það sama og í þá mæla sem fyrir eru eða 10 kr. á hverjar byrjaðar 10 mín. Hægt verður að greiða með 5, 10, 50 og 100 kr. mynt. Þó aldrei minna en 10 kr.(2x5 kr.) Þegar greitt er í mælinn kemur kvittun sem segirtil um hvenær greiddur tími er útrunninn. Miðann skal leggja á mælaborð bifreiðarinnar þannig að hann sjáist í gegnum framrúðu til glöggvunar fyrir stöðuvörð.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.