Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 3
jDagur-ÍEtmhm Laugardagur 5. október 1996 -15 Vitum meira um Rambó en Gretti Við höfum heilmikla nátt- úru að sýna ferðamönn- um, en hvað sýnum við þeim sem vilja fræðast um fólk- ið sem býr í landinu?“ spyr Ein- ar Örn Benediktsson, íjölmiðla- fræðingur og fyrrverandi Syk- urmoli. Jónas Kristjánsson, rit- stjóri DV, telur hins vegar vaxt- arbrodd ferðaþjónustunnar ekki liggja í kynningu á ís- lenskri menningu. Hann bendir á þann möguleika að nota nátt- úruna sem bakgrunn en í for- grunni sé ferðamaður að gera eitthvað. Sé þátttakandi fremur en skoðandi. Þeir Einar Örn og Jónas kynntu hugmyndir sínar á ferðamálaráðstefnu Ferðamála- ráðs íslands, sem haldin var í Reykjanesbæ í vikunni. Báðir héldu erindi um ferðaþjónustu og menningu en sjónarmiðin voru gjörólík. Flestir virðast sammála um að markaður fyrir skoðunar- ferðir um landið, þar sem ferðalöngum er smalað upp í rútu og þeir keyrðir um, sé að verða mettaður. Til að draga fleiri ferðamenn til landsins þurfi því nýjar leiðir. En hvaða leiðir æth séu bestar? Hvað er íslensk menning? Einar Örn segir ekki nóg að sýna ferðamönnum landið, þeir þurfi einnig að eiga kost á að kynnast menningu þess fólks sem býr í landinu. Þá vaknar hins vegar upp spurning- in, hvað er ís- lensk menn- ing? „Sumir ferðamenn búast við að hitta víkinga með sverð, alla ásatrúar. í staðinn hitta þeir fyrir stressað fólk sem er í 3-5 vinnum og fellur engan veginn að ímyndinni um óspjallað frumfólk." Einar hefur áhyggjur af því að íslend- ingum liggi svo á inn í 21. öldina að þeir séu að glata tengslum við íslenska sögu. „Þessi fræga Einar Örn: „Sumir ferðamenn búast við að hitta vík- inga með sverð, alla ásatrúar. í staðinn hitta þeir fyrir stress- að fólk sem er í 3-5 vinnum og fellur eng- an veginn að ímynd- inni um óspjallað frumfólk.“ söguþjóð veit meira um Rambó en Gretti,“ segir hann og líst greinilega ekki nógu vel á landa sína að þessu leyti. Geimstöð á Nesjavöllum? Jónas Kristjánsson hefur minni áhyggjur af menning- unni, a.m.k. í tengslum við ferðaþjónustu. „Ég fór yfir ýmsa þætti sem geta flokkast undir menningu eins og t.d. menningarsöguna, listir, frægt fólk og fleira og velti því upp hvort þessir þættir hefðu eitt- Jónas: „Ekki skoðunarferða- mennsku heldur þátt- tökuferðamennsku.“ hvað markaðsgildi fyrir ferða- þjónustana. Niðurstaðan var svo að möguleikarnir væru ekki mikhr," segir Jónas. Hann bendir hins vegar á ýmsa aðra möguleika sem flestir miða að því að gera ferðamenn virkari og meiri þátttakendur fremur en að sitja í rútum í skoðunar- ferðum. Dæmi um ferðamennsku þar sem ferðamenn eru þátttakend- ur er t.d. hestaferðir, rallakstur á torfærujeppum eða mótor- hjólum og heilsurækt af ýmsu tagi. Bláa lónið er að verða þekktara en Gullfoss og Geysir, segir Jónas og telur möguleika á að byggja upp fleiri staði af svipuðu tagi. „Ég bendi sérstaklega á Nesjavallasvæðið. Þar tel ég að hægt væri að byggja upp orku- ver sem liti út eins og geimstöð. Þar væri síðan komið upp bað- aðstöðu, aðstöðu til íþróttaiðk- ana og ferðalaga.“ AI Hestaferðir eru dæmi um þjónustu fyrir ferðamenn þar sem þeir eru virkir þátttakendur fremur en skoðendur. Það er kannski svolítill áróður í sýningunni en mig langaði til að segja eitthvað með myndunum," seg- ir Snorri Ásmundsson sem opn- ar myndlistarsýningu á Café Karolínu á Akureyri í dag klukkan 14:00. Leiðrétting í gagnrýni um Djöflaeyjuna, kvikmynd Friðriks Karlssonar, gleymdist að geta hver skrifaði gagnrýnina. Örn Markússon heitir gagnrýnandinn og er beð- ist velvirðingar á þessum mis- tökum. Einnig vantaði aftan á greinina hluta af síðasta orðinu sem átti að vera, skemmtileg. Inntakið í myndunum segir Snorri vera hvernig mannfólkið sé að fara með náttúruna og hvað við séum oft hugsunar- laus. „Við horfum bara á sjón- varp og vinnum okkar vinnu,“ segir hann. Snorri, sem er Akureyringur, segist hafa verið teiknandi síð- an hann var barn en þó sé th- tölulega stutt síðan hann fór að helga sig myndlistinni. „Ég fór ungur í myndlistarskóla en þá var ég ekki móttækilegur fyrir leiðsögn. Síðar fór ég út í mikla óreglu og sukksamt líferni. Þeg- ar ég ákvað að breyta um lífs- stíl og nota ekki vímuefni fór ég að mála aftur og helga nú lífi minni listinni." Myndirnar á sýningunni eru af ýmsum stærðum og gerðum og er sú stærsta 3ja metra löng og 1.20 metrar á hæð. Mest Snorri Ásmundsson opnar myndlistarsýningu f dag á Akureyri. hefur Snorri málað með akrýl- litum því hann segist ekki hafa þolinmæði til að vinna með olíu. „Ég er svona akkorðsmaður og má eiginlega segja að ég hafi málað þessa sýningu á met- Mynd: JHF tíma. Ég byrjaði ekki á henni fyrr en fyrir þremur vikum.“ AI Málað á mettíma

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.