Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 19
Laugardagur 5. október 1996 - 31
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
Tvær hliðar á útrás
íslenskra tónlistar-
manna
Mitt í því að mörgum
finnst vera stöðnun í ís-
lensku poppiífi, virðist
ekkert lát aftur á móti ætla að
verða á þeirri þróun, að íslensk-
ir tónlistarmenn með einum eða
öðrum hætti stefni úr landi. Er
umdeilanlegt hvort þetta sé af
hinu góða, en svo virðist sem
þessi þróun, góð eða slæm, verði
ekki stöðvuð. Það sem ótvírætt
er gott, er að tónlistarmenn á
borð við Unun, Bong, Kolrössu
krókríðandi, Þrettán o.fl. hafa
með eigin dugnaði og elju náð
að krækja sér í samninga er-
lendis, sem eitt og sér hlýtur að
teljast jákvætt. Hins vegar er
það öllu daprari staðreynd, að
margir af okkar hæfileikarík-
ustu tónlistarmönnum hafa upp
á síðkastið horfið úr landi til að
freista gæfunnar upp á von og
óvon, vegna þess að þeir hafa
ekki af ýmsum ástæðum fundið
sig hér heima, ekki haft nóg að
gera o.s.frv. Auðvitað eru aftur á
móti fullt af ungum og hæfi-
„Ryk-
mettuð“
rokkdád
rátt fyrir að rymrokkið,
sem nú óopinberlega
fagnar 5 ára tilveru sinni,
hafi í öllu sínu mikla veldi þótt
heldur dökkt og svo sannarlega
þunglyndislegt, hefur ýmislegt
jákvæðara og tónlistarlega
merkilegt, líka verið hluti af
því. Ein sú hljómsveit sem hvað
Iengstan aldur á að baki og
telst til þessarar tónlistarstefnu,
er Screaming Trees, sem líkt og
Nirvana, Pearl Jam, Sondgar-
den og Alice In Chains hefur
verið í fremstu röð hennar.
Screaming Trees með söngvar-
ann Mark Lanegan í fylking-
arbrjósti, starfað í um einn og
hálfan áratug og hefur gengið á
ýmsu þann tíma. Var það ekki
fyrr en með útgáfu plötunnar
Sweet Oblivion fyrir nær fimm
árum, sem hjólin tóku að snú-
ast hjá sveitinni, en fram að því
hafði hún sent frá sér einar sjö
aðrar plötur sem þóttu ærið
misjafnar að gæðum. Varð hún
í sama mund partur af Seattle-
rokkbylgjunni, sem á þessum
tíma var byrjuð að rísa og hefur
allt frá því talist til hennar,
þrátt fyrir að vera um margt
ólík hinum ofangreindu sveit-
unum. Áhrifin eru t.d. komin
frá Byrds, David
Bowie o.fl. hjá Scre-
aming Trees, með-
an að hjá hinum
eru t.d. pönk, blús
og þungarokks-
áhrifavaldar. Á nýj-
ustu plötunni sinni,
Dust, sem reyndar
hefur tekið um tvö
ár að vinna, þykir
Screaming Trees
endurspegla vel
þessi áhrif, sem
sveitin mótar svo
vel í eigin stfl. Hafa
gagnrýnendur lofað
plötuna í hástert og
telja margir þeirra
að hér sé komin ein
af heilsteyptari og
jafnframt melódísk-
ari plötum ársins.
Sannkölluð rokk-
dáð.
Screaming Trees þykja hafa skapað mikla rokk-
dáð með plötunni sinni Dust.
Bong, Móeiður og Eyþór hafa gert samning við risaútgáfuna Epic,
leikaríkum tónlistarmönnum
eftir í landinu, satt að segja eru
þeir á hverju strái í öllum lands-
hornum, en þegar þeir horfa
upp á aðra slíka gefast upp og
hverfa úr landi vegna þess að
okkar litli heimamarkaður leyfir
svo lítið, er e.t.v. ekki skrýtið
þótt sumir hafi áhyggjur af
áiikúkiLAÍÍÁ k. t i ii iLiiiiá i.ÍLii.ÁÍ, i iilSt i i.i i iká Áil i ílM i á L.ii.l ,ii.i íil i út
Kr f ‘f Er P O P P kt , . U., : ,k i . , : M f ,,. r» II t iki. t i . k lU’I ii 1 f T f A t. ... « i r-’ T? f! t , i ái . M¥T,TM ! T , 1 Á
'ir f f
Upp úr miðjum septem-
ber sl. vakti mikla at-
hygli uppboð, sem
fram fór á ýmsum hlutum er
snertu feril Bítlanna. Meðal
annars voru seldar þar nótur,
eða hljómauppskrift af laginu
Hey Dude, sem Paul
McCartney samdi til eldri
sonar Johns Lennon, Julians,
þegar faðir hans var að yfir-
gefa hann og móður hans,
Cynthiu. Var kaupandinn
ekki nefndur á uppboðinu, en
nú fyrr í vikunni kom það í
ljós, að það var Júlian Lenn-
on sjálfur sem var kaupand-
inn. Þykir þar þetta uppkast
að laginu svo sannarlega
vera komið í réttar hendur.
• Fyrst svo nafn Pauls Mac-
Cartneys ber á góma, þá eru
þau tíðindi nú af honum, að
hann hefur gert sér lítið fyrir
og sett saman stuttmynd um
þá merku hippasveit, Great-
ful Dead. Hingað til hefur
reyndar svo vitað sé, kvik-
myndagerð ekki verið ein af
sérgreinum bítilsins fræga,
en honum er greinilega ekki
alls varnað. Áhugi á Greatful
Dead hefur ekki heldur verið
mikill hjá honum vitanlega,
en þessi mynd sem unnin er
eftir myndum sem eiginkona
Pauls, Linda tók af sveitinni
milli 1960 og 70, hefur
greinilega breytt einhverju í
þeim efnum.
•Nafnið á laginu sem Noel
Gallagher aðalsprauta Oasis
er nú að senda frá sér og
unnið var með danstvíeykinu
Chemical Brothers, er Se-
cond Sun og er smáskúfa
með því nú að koma í versl-
anir.
• Fregnir um að popphljóm-
sveitin Supertramp sé nú
innan tíðar að hefja störf að
nýju, hefur að sönnu vakið
nokkra athygli. Þessi breska
hljómsveit, sem til varð í lok
sjöunda áratugarins og átti
smelli á borð við Floy Joy og
Scott Weiland segist vera laus við
vímuefnavandann.
Logical Song, en hætti svo
fyrir allmörgum árum, mun
ætla líkt og flestar aðrar
sveitir sem rísa upp frá
dauðum nú til dags að halda
röð tónleika og þá aðallega í
Evrópu þar sem hún var
ávallt hvað vinsælust.
• Móðir Sid heitins Vicious
bassaleikara í Sex Pistols,
sem gerður var ódauðlegur í
myndinni Sid og Nancy, Anne
Beverley, fannst fyrir
skömmu látin á heimili sínu í
Derbyshire. Mun hún hafa
framið sjálfsvíg með því að
taka inn of stóran skammt af
lyfjum. Hennar mun alltaf
verða minnst í rokksögunni
vegna þess að hún útvegaði
sjálf heroínið, sem varð svo
syni hennar að aldurtila árið
1979. Anne Beverley var 63
ára.
• Nú þegar að næstum er
liðinn heill mánuður frá því
að rappstjarnan Tupac Shak-
ur var myrtur í Las Vegas, er
lögreglan þar enn engu nær
um hverjir voru þar að verki.
Tupac var sem kunnugt er
skotinn ijórum skotum í
brjóstið að kvöldi 13. septem-
ber sl.
• Söngvari Stone Temple Pi-
lots, Scott Weiland, hefur nú
að eigin sögn unnið bug á eit-
urlyíjafikn sinni og vill nú óð-
ur og uppvægur ganga til liðs
við félaga sína á ný. Var á
tímabili búið að afskrifa
kappann, en nú virðist hann
sem sagt vera tilbúinn í
þriggja mánaða tónleikaferð
um Bandaríkin, sem stendur
fyrir dyrum.