Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 14
26 - Laugardagur 5. október 1996
ÍDagur-Œúrtmrt
^Dagur-^ímmn
aif)
f ( Lei
eimilis-
honiið
Rœkju-hrísgrjónarönd
150 g rœkjur
2 dl hrísgrjón, soðin í 4 dl af
vatni
2 dl sýrður rjómi
1 tsk. salt
1 tsk. karrý
1 dl saxað dill
2 dl grœnar baunir
Skreytt með rœkjum og sítrónu-
sneiðum
Rækjurnar saxaðar. Takið
nokkrar heilar rækjur frá til að
skreyta með. Hrísgrjónin soðin í
8-10 mín. með lokið yfir pottin-
um. Látið alveg kólna. Sýrði
rjóminn hrærður saman við
rækjurnar, hrísgrjónin, salt,
karrý og dill. Þessu er svo þrýst
ofan í hringform, sem hefur
verið skolað með köldu vatni.
Látið bíða á köldum stað. Hvolft
á kringlótt fat, skreytt með
rækjum og sítrónusneiðum og
salatblaði. Gott brauð borið
með.
Appelsínukaka
200 g smjör
250 g sykur
4 egg
125 g maisenamjöl
125 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 dl þykkur appelsínusafi
'á dl mjólk
Smjör og sykur er hrært létt og
ljóst. Bætið eggjunum út í, einu
í senn, hrærið vel á milli. Hrær-
ið nú hveitinu blönduðu með
maisenamjölinu og lyftiduftinu
saman við hræruna með appel-
sínusafanum og mjólkinni.
Deigið sett í vel smurt form (ca.
24 sm). Kakan bökuð við 180° í
ca. 50 mín. neðarlega í ofnin-
um. Kakan borin fram nýbök-
uð. Það má sigta ílórsykri yfir
kökuna eða búa til glassúr úr
flórsykri hrærðum út með
appelsínusafa, rifnu hýði stráð
yfir.
Ananaskaka
125 gr mjúkt smjör
175 gr sykur
2 egg
250 gr hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanillusykur
6 ananassneiðar
6 kokkteilber
1 dl ananassafi
Smyrjið kringlótt form með
smjöri (botn og hliðar). Stráið
strásykri, ca. 3 msk., yfir smjör-
ið. Raðið ananassneiðum með 1
rauðu kokkteilberi í gatið á
botni formsins. Hrærið saman
smjör og sykur, bætið eggjunum
í einu í senn. Sigtið hveiti, lyfti-
dufti og vanillusykri út í deigið,
ásamt 1 dl af ananassafa. Deig-
ið sett í formið ofan á ananas-
hringina. Bakað við 175° í 45-
50 mín. neðarlega í ofninum.
Kakan látin bíða í forminu ca.
20-30 mín. áður en henni er
hvolft úr forminu. Látið köku-
fatið yfir formið og hvolfið var-
lega kökunni úr. Þá eru ananas-
hringirnir ofan á kökunni. Kak-
an borin fram með þeyttum
rjóma. Góð kaka og falleg á
kaffiborðinu.
áIVlatarkrókur
„Systir mín var svo hagsýn þannig að ég ákvað að
bruðla aðeins, “ segir Anna Björk Bjarnadóttir en
Guðrún Harpa, systir hennar á Akureyri, skoraði á
hana í síðasta Matarkrók. Allar uppskriftirnar
hennar Önnu Bjarkar eru ungverskar en hún dvaldi
í Ungverjalandi í um tveggja ára skeið. Nú er hún
hinsvegar flutt aftur í heimbœ sinn, Borgarnes, þar
sem hún vinnur á söludeild Afurðarsölunnar. Anna
Björk skorar á samstarfskonu sína, Áslaugu Þor-
valdsdóttur, í nœsta Matarkrók.
Pönnukökukaka
Olía til steikingar
Deigið:
50 g smjör
50g sykur
50 g hveiti
5 egg
3 dl mjólk
rifinn börkur af 1 appelsínu og
1 sítrónu
3 msk. romm eða appelsínulík-
kjör
salt
Fylling:
100 valhnetur (saxaðar)
1 tsk. vanillusykur
150-200 g sulta að eigin vali
(t.d. apríkósusulta)
Mýkið smjörið, bætið 25 g af
sykrinum og eggjarauðunum
útí. Þeytið þar til þykkt og loft-
kennt. Bætið við hveiti og
mjólk, smá í einu, ávaxtaberki,
salti og rommi/líkkjör. Þeytið.
Þeytið eggjahvíturnar og af-
ganginum af sykrinum þar til
stíft og bætið varlega í hrær-
una.
Blandið saman vanillusykri
og hnetum og hafið tilbúið við
hlið steikarpönnu, svo og eld-
fastan disk eða mót til að setja
pönnukökurnar á.
Steikið u.þ.b. 1 cm þykkar
pönnukökur, aðeins á annarri
hliðinni og látið á diskinn með
hráu hhðina upp. Stráið hnet-
um ofan á hveija köku og
smyrjið með sultu og hvolfið
síðan síðustu pönnukökunni of-
an á. Bakið í ofni við 180°C í
10-15 mínútur. Hitinn má ekki
vera hærri!
Súrsœtur
kjúklingur/unghœna
soðið kjúklingakjöt
olía til steikingar
2 stk. grœn paprika
Kryddlögur:
1 eggjahvíta
1 matarlímsblað
1 msk. hveiti
1 msk. sojasósa
1 tsk. þurrt hvítvín (má sleppa)
Súrsœt sósa:
3 msk. tómatsósa
3 msk. vínedik
3 tsk. sojasósa
1 msk. hungang
2 msk. sykur
1 dl kjúklingasoð/teningur
1 matarlímsblað
Látið kjötið liggja í kryddlegin-
um og steikið það síðan í olíu.
Haldið heitu. Skerið paprikuna
í strimla og snöggsteikið (einnig
gott að nota frosið kínverskt
pokagrænmeti í stað papriku)
við háan hita og dreifið yfir
kjötið. Blandið saman efnunum
í sósuna og hitið. Hellið yfir kjöt
og grænmeti og berið fram með
hrísgrjónum og brauði.
Ungverskur
eftirlœtiseftirréttur
(Somlói galuska)
fyrir 10-12
3 svampbotnar (ca. 1 cm þykk-
ir):
1 venjulegur
1 valhnetubotn
1 súkkulaðibotn
Sósa til fyllingar:
200gsykur
2,5 dl vatn
1 dl romm (dökkt)
rifinn börkur af einni appelsínu
og einni sítrónu
Vanillukrem:
5 dl mjólk
4 eggjarauður
75 g hveiti
150 g sykurs
% vanillustöng (eða 1 tsk van-
illusykur)
Fylling:
100 g valhnetur
50 g apríkósusulta
1 tsk kakó
80 g rúsínur
Súkkulaðisósa:
150 g suðusúkkulaði
250 g sykur
Vöffluterta
Blandið saman:
85 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 msk. sykur
12 fint saxaðar möndlur
Hér út í hrœrið þið:
1 dl mjólk
i egg
50 g brœtt og aðeins kœlt smjör
Vöfílujárnið smurt með smjöri.
Það á ekki að þurfa að smyrja
það nema fyrir fyrstu vöffluna.
Vöfflurnar eru svo lagðar sam-
an með þeyttum íjóma og flór-
sykri blandað saman við (ca. 2
dl). Hrærð ber (bláber, hindber)
eða smátt saxaðir ávextir hafðir
á milli. Jarðarber eru sérlega
góð á svona vöfflutertu og þarf
þá að skera þau niður í þunnar
sneiðar. Skreytt að ofan með
heilum berjum. Svo má líka
nota uppáhaldsuppskriftina
sína.
Heitt eplatoddý
Fyrir 6 glös
75gsykur
V/ l vatn
3 kanelstangir
Þetta er soðið saman í 5 mín.
Potturinn tekinn af hitanum og
bætt útí 1 eplasafa og l’A dl
appelsínusafa ásamt safa úr 1
sítrónu. Þetta er svo allt hitað
saman. Kanelstangirnar teknar
upp úr. Toddýið sett í glös og
smá appelsínubiti settur út í.
Gott á köldum haustdegi.
1. Klútur undinn upp úr
edikblöndu er góður til að
strjúka yfir sjónvarpssker-
minn.
2. Tannkrem getur verið
gott til að fjarlægja bletti.
3. 2-3 msk. af kókosmjöli
blandað saman við raspið,
sem við brúnum í eplakök-
una, gefur sérlega gott
bragð.
4. Smávegis sinnep í osta-
sósuna eykur ostabragðið.
5. Smávegis sykur og/eða
rifinn appelsínubörkur út í
tómatsósu og súpu gerir sér-
lega gott bragð.
Anna Björk Bjarnadóttir. Mynd: ohr
1,5 dl vatn
1 dl romm (dökkt)
4 dl þeyttur rjómi
(Ath! það sparar ekki tíma að
hafa uppskriftina minni)
Sósa: Hrærið saman öllum efn-
um í sósuna, hellið í lítinn pott
og hitið yfir vægum hita. Hrærið
í sífellu uns sósan þykknar og
látið kólna.
Vanillukrem (hugsanlega
hægt að kaupa í búð?): Suðan
látin koma upp á mjólkinni
ásamt vanillustönginni. Látið
kólna. Þeytið eggjarauður, syk-
ur og hveiti þar til þykkt og loft-
mikið. Látið í pott og mjólk bætt
útí. Hrært í sífellu þar til þykkt.
Látið kólna, en varist að himna
myndist ofan á.
Súkkulaðisósa: Súkkulaði,
sykur, vatn og romm hitað yfir
heitu vatnsbaði þar til súkku-
laðið hefur bráðnað. Látið
kólna. Leggið rúsínurnar í
bleyti og þerrið vel. Saxið hnet-
urnar.
Setjið svampbotninn í djúpt
fat. Smyrjið sósunni yfir sem og
helmingnum af vanillukreminu
og helmingnum af hnetum og
rúsínum. Setjið valhnetubotn-
inn þar ofan á og endurtakið
fyllinguna. Súkkulaðibotninn
settur ofan á og afganginum af
sósunni smurt ofan á ásamt
sultunni og kakói. Geymist í
kæli yfir nótt.
Framreiðsla: Setjið nokkra
bita af köku í skálar eða eftir-
réttaglös. Hellið súkkulaðisósu
yfir og berið fram með þeyttum
rjóma.