Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Side 6
18- Laugardagur 5. október 1996
jDagnr-ÍEmmTrt
Skúli Alexandersson á Hellis
sandi er lítið hrifinn af
framsóknaríhaldsstjórninni
en segist vera:
Fyrst og
fremst
náttúru-
idíót
s
g geri svolítið af því að
fara með ferðafólki hérna
um nágrannasvæðið og er
fyrst og fremst náttúruidíót í
eðli mínu. Konan rekur bóka-
verslun," segir Skúii Alexand-
ersson á Hellissandi lítillátur
um þátt sinn í ferðaþjónustunni
á utanverðu Snæfellsnesi, en
hann rekur Gistihúsið Gimli á
Hellissandi. En auk þessa hefur
hann verið frumkvöðull og drif-
fjöður í því að setja upp skilti
við athyglisverða staði á svæð-
inu og merkja gönguleiðir auk
þess sem hann stendur stöðuga
varðstöðu um sitt byggðarlag
og hagsmuni þess.
Margir minnast Skúla er
hann sat á Alþingi fyrir Alþýðu-
bandalagið á Vesturlandi. Hann
hætti þingmennsku fyrir Al-
þingiskosningarnar 1991 en
hafði þá setið tólf ár á Alþingi
og þar áður af og til sem vara-
maður Jónasar Árnasonar í
átta ár. Samtals sinnti Skúli því
þingmennskunni meira og
minna um tveggja áratuga
skeið. Hann segist nú aldrei
hafa slitið tengslin við heima-
byggðina, þó íjölskyldan hefði
haft vetursetu í Reykjavík á
meðan þing sat þá voru þau
alltaf heima á sumrin.
„Nei, ég held að það væri
rangt að segja að það sé ein-
hver breyting sem ég verð var
við,“ svarar Skúli, aðspurður
hvort munur sé á störfum al-
þingis í dag og áður, og heldur
áfram: „Annað en þessi mikla
S N
AKUREYRARBÆR
Vestursíða 8,
deiliskipulag
í samræmi við ákvæði greina 4.4 og 4.4.1 í skipulags-
reglugerð er hér með lýst eftir athugasemdum við til-
lögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vestur-
síðu 8, sem er hluti húsaþyrpingarinnar nr. 1, 2, 4, 5,
6, og 8 við Vestursíðu. í breytingartillögunni, sem lögð
er fram af lóðarhafa, felst að í stað 7 íbúða tveggja
hæða raðhúss verði byggð tvö tveggja hæða fjölbýlis-
hús með alls 14 íbúðum, 12 smáíbúðum og 2 fjöl-
skylduíbúðum. Einnig er lagt til að sameignarstígur
milli lóða nr. 6 og 8 verði felldur niður og sameinaður
lóð nr. 8.
Uppdráttur er sýnir breytingartillöguna liggur frammi al-
menningi til sýnis á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 4 vikur frá birtingu þess-
arar auglýsingar, þ.e. til mánudagsins 4. nóvember
1996, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér til-
löguna og gert við hana athugasemdir. Athugasemda-
frestur er til kl. 16.00 mánudaginn 4. nóvember 1996
og skal athugasemdum skilað til Skipulagsdeildar Ak-
ureyrarbæjar. Þeir sem telja sig verða fyrir bótaskyldu
tjóni vegna breytingarinnar er bent á að gera athuga-
semdir við tillöguna innan tilgreinds frests ella teljast
þeir samþykkir henni. Akureyrarbær mun taka afstöðu
til tillögunnar og afgreiða að loknum auglýsingafresti.
Skipulagsstjóri Akureyrar.
Skúli Alexandersson er lítið hrifinn af framsóknaríhaldsstjórninni. Hann lætur ríkisstjórnina samt ekki trufla sig
við að sinna ferðaþjónustu í náttúruparadísinni á Snæfellsnesi. Útsýn til Hreggnasa, Bárðarkistu og Geldingafells
í baksýn.
breyting að deildirnar voru
lagðar niður og þingið gert að
einni málstofu. Ég hef alltaf
verið krítískur á það, enda er
komið í ljós að þingið verður
ekki eins vandvirkt í einni deild
eins og í tveimur málstofum þar
sem hver deildin tók við hverju
lagafrumvarpinu á fætur öðru
frá hinni. Pað eru að koma í
ljós ýmsir annmarkar við þetta.
Þing sem er í einni deild er líka
mikið háðara embættismönn-
unum heldur en tveggja deilda
þing.“
A einu sviði hefur þó orðið
gerbreyting, aðbúnaður og
vinnuaðstaða þingmanna er
orðin afar ólfk því sem var.
„Þingið er alltaf að verða betur
búið, það er betur búið að þing-
mönnum og meiri þjónusta fyr-
ir þingmenn heldur en áður
var. í upphafi míns þingferiis
var þetta öðruvísi, mikil skelf-
ing, maður varð raunverulega
að vinna hvern hlut alveg sjálf-
ur, vélritun og hvað eina. En sú
þjónusta hefur breyst mikið og
aðgangur að gögnum hefur
orðið mikið betri. En þingið,
umræður á þingi og þess háttar
eru sjálfsagt mjög svipaðar. Og
öll gagnrýni á það finnst mér
vera óskaplega út í bláinn því
það er grundvöllur stjórnskipu-
lagsins að það fari fram um-
ræður í þinginu. Öll skerðing
eða gagnrýni á slíkt er náttúru-
lega mjög neikvæð og þjónar
engum tilgangi öðrum en
styrkja embættismannakerfið
og láta það vinna meira og
meira fyrir þingið. Sumir emb-
ættismenn hafa áhuga á þessu
en aðrir ekki.“
í síðustu kosningum gerðist
sá fátíði atburður að Alþýðu-
bandalagið fékk engan mann
kjörinn á Vesturlandi. Skúli er
að sjálfsögðu ekki sáttur við
það. „Það eru náttúrulega bölv-
uð rangindi og það hlýtur að
koma að því ef óbreytt kosn-
ingafyrirkomulag er að við fá-
um aftur mann. Ef allt hefði
verið með felldu þá áttum við
að fá manninn kjörinn, en það
voru illar og utanaðkomandi
aðstæður sem breyttu því. En
nú lítur allt út fyrir að flokkur-
inn sé að styrkjast, það kemur
fram í öllum skoðanakönnun-
um og ef svo heldur fram sem
horfir, þá fáum við ekki aðeins
aftur þingmann hér á Vestur-
landi, heldur gæti það orðið
víðar sem við fengjum nýja
þingmenn."
Skúli telur þennan spádóm
sinn ekki eiga neitt skylt við
bjartsýni. „Ég er ekki bjartsýnn,
ég held það geti ekki verið að
þjóðin leyfi þessu tvíhöfða veldi
að sitja að völdum, án þess að
ógna því að minnsta kosti eitt-
hvað svona með minnkandi
fylgi. Það hefur aldrei gefið sig
vel fyrir okkur að vera með
framsóknaríhaldsstjórn. Þær
hafa reynst heldur skárri þær
stjórnir sem þessir flokkar hver
fyrir sig hafa verið í samfloti
með hinum flokkunum.“
Aðspurður hvort núverandi
ríkisstjórn sé kannski versta
stjórn sem hægt sé að hugsa
sér svarar Skúli og hlær við:
„Lengi getur vont versnað. En
ég geri ráð fyrir því að megin-
hlutinn í stefnu þessarar ríkis-
stjórnar komi mjög illa út fyrir
almenning í landinu. Og þá
náttúrulega fyrst og fremst þýð-
ir það, ef það er tekið lands-
hlutalega, að það er lands-
byggðin sem fer illa út úr því.
Þar eru ekki neinir stórgrósser-
ar eða aðilar sem safna pening-
um á verðbréfaviðskiptum eða
öðru slíku. Þó peningarnir verði
til á landsbyggðinni, hefur fólk-
ið sem býr þar ekki aðstöðu til
að njóta þeirra.“
-ohr