Dagur - Tíminn - 11.10.1996, Síða 2
14 - Föstudagur 11. október 1996
Jkgur-®mrirai
HELG ARLÍFIÐ í LANDINU
Uppskrift að góðri
Misjafnt hafast mennirnir að
Katrín Fjeldsted heimilislæknir, Signý Pálsdóttir leikhúsfræðingur, Logi Már
Einarsson auglýsingateiknari og Eiríkur Ragnarsson verslimarmaður segja
hér undan og ofan af sinni draumahelgi. Og misjafn er smekkurinn.
Ekki þarf að koma á óvart að, einsog í auglýsingunni segir, vill Katrín Fjeldsted
lambakjöt á diskinn sinn, Signý Pálsdóttir ætlar til Barcelona og fer utan í dag. Logi
Már Einarsson vill sexfaldan með sveskju og Eiríkur Ragnarsson verður um helgina
að vinna í verslun sinni.
Misjafnt hafast mennirnir að, segir máltækið. Ósk Dags-Tímans til þessa fólks -
sem og allra annarra - er einföld. Hafið það gott og góða skemmtun. -sbs.
„Lambakjöt á diskinn minn“
Mín uppskrift að góðri helgi er
auðvitað sú að engin knýjandi
verkefni bíði mín þegar heim úr
vinnu er komið á föstudagskvöldi. En í
ýmiskonar félagsmálastarfi lenda funda-
höld gjarnan á helgunum og nú er það
landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins og um
aðra helgi heldur Fé-
lag íslenskra heimilis-
lækna vísindaþing og
aðalfund sinn á Akur-
eyri. Ef ég fæ
einhverju ráðið vil ég
svona fundi frekar á
rúmhelgum dögurn,"
segir Katrín Fjeld-
sted, formaður Félags
íslenskra heimilis-
lækna.
„Um helgi þætti
mér gott og gaman að
fara í göngutúr út í
náttúruna, þar sem
ég sæi börnin hoppa
og skoppa og
skemmta sér um hóla
og hæðir. Svo myndi
ég setjast niður undir
stóru tré og líta í bók.
Um þessa drauma-
helgi þætti mér líka
indælt að hitta vini og
kunningja; heima hjá
mér, í sumarbústaðn-
um eða einhverstaðar
á mannamóti.
Katrín segist telja
það vera mjög mikil-
vægt fyrir fjölskyldur
að þær borði saman
eina heita máltíð á
dag. „Ég vil helst borða eitthvað létt-
meti, til að mynda hýðisgrjón, salat, fisk,
pasta, hvítlauk og brauð bakað heima af
mér sjálfri. Og svo vil ég auðvitað
„lambakjöt á diskinn minn“ sagði Katrín
Fjeldsted.
Skíði og fótbolti
Helgamar hjá mér eru
fátt eitt annað en vinna.
Ég á ekki frí nema
þriðju hverja helgi, en þá geri
ég mér vissulega dagamun,"
segir Eiríkur Ragnarsson, eig-
andi verslimarinnar Esju við
Norðurgötu á Akureyri.
„Það er sitthvað hægt sér til
gamans að gera um helgar. Á
veturna fer ég gjarnan á skíði
upp í Hlíðarfjalli - en ég tel
mig þokkalegan skíðamann,
en þó ekki góðan. Hrasa að
minnsta kosti ekki illilega á
snjóbreiðunum. Síðan er af-
skaplega gaman að sitja og
horfa á ensku knattspyrnuna,
en ég er dyggur stuðnings-
maður Arsenal. Nei, ég er ekki
ánægður með árangur þeirra í
deildinni að undanfórnu.
helgi
\lð kertaljós á Þórustöðum
sumarfrí og hlakka
mikið til að koma til
Eg er að fara til Barcelona nú um
helgina og hugur minn er bundinn
við það. Slík ferð er, sem stendur,
uppskrift mín að góðri helgi. Með þessu
er ég að taka út einnar viku síðbúið
Spánar - og skoða
þessa rómuðu borg.
Vonandi sé ég líka
einhverjar leik- og
danssýningar. Gam-
an verður að njóta
spænskrar tónlistar
og andrúmlofts,"
segir Signý Pálsdótt-
ir, leikhúsfræðingur
og framkvæmda-
stjóri Listahátíðar í
Reykjavík.
„Draumahelgin
mín hér heima á ís-
landi er að dveljast í
rólegheitum með
honum Árna Möller,
bónda mínum,
heima á Þórustöðum
í Ölfusi. Ég held líka
heimili í Reykjavík
fyrir dóttur mína.
Það er toppurinn að
sitja við kertaljós á
Þórustöðum - jafnvel
í rafmagnsleysi -
einsog í óveðrinu mn síðustu helgi - og
gleypa í sig magnaða skáldsögu eða
spjalla við góða gesti. Ef veður leyfir er
frábært að komast í golf á Svarfhólsvelli
við Selfoss eða á Strandarvelli við Hellu.
Sexfaldur með sveskju
Góð helgi hjá mér er samsett ýms-
xnn þáttum - sem koma sinn úr
hverri áttinni," segir Logi Már Ein-
arsson, auglýsingateiknari á Akureyri.
„Þetta byrjar á föstudagskvöldi þegar
ég kem heim úr vinnunni, þá finnst mér
afar notalegt að mýkja mig upp með
nokkrum bjórum. Sest síðan niður og
horfi á frábæra
dagskrá Sjón-
varpsins sem af
alþjóð rómuð er.
Á laugardags-
morgnum sef ég
út, en finnst af-
skaplega gott að
fara í vinnuna
eftir hádegi. Ég
reyni alltaf að
vinna eitthvað
um helgar segir
Logi sem finnst
gott og gaman á
laugardags-
kvöldum að
bjóða heim
skemmtilegu
fólki til góðvina-
fundar. Bjóða
þeim uppá góð-
an viðurgjörning
í mat og drykk.
„Lykilinn að
þessari góðu
helgi er eigin-
lega sá að bjóða
uppá fordrykk-
inn Liberty, sem
vinur minn
Gunnar Þor-
steinsson, nú þýðandi hjá Sjonvarpinu,
bruggaði saman á sínum tíma. Þessi
drykkur stendur saman af sexföldum
brennivín með einni sveskju. Þegar
menn hafa drukkið tvö til þrjú glös af
þessum görótta miði þurfa menn ekki að
hafa meiri áhyggjur af gestum sínum, né
þeir af gestgjafanum.