Dagur - Tíminn - 11.10.1996, Qupperneq 10
22 - Föstudagur 11. október 1996 Jlagur-Œínxnm
Sftuad en ad g&taót um fieígina?
Akureyri
Stórdansleikur við
harmonikuleik
Félag harmonikuunnenda við
EyjaQörð og harmonikkufélagið
Nikkólína Dalasýslu halda sam-
eiginlegan dansleik á Fiðlaran-
um 4. hæð Alþýðuhússins á
laugardaginn 12. október kl.
22-03. Mætið hress og stigið
dansinn með eldhressum Dala-
mönnum.
Dröfn Friðfinnsdóttir í
Listasafninu
Síðasta laugardag opnaði Dröfn
sýningu á verkum sínum og
stendur hún til 26. október.
Dröfn sýnir að þessu sinni tré-
ristur og málverk í öllum sölum
Listasafnsins.
Skyggnilýsingafundur
Þríhyrningsins
Miðlararnir Lára Halla Snæ-
fells, Skúli Viðar Lórenzon, Sig-
urður Geir Ólafsson og Guð-
finna Sverrisdóttir verða með
skyggnilýsingarfund sunnudag-
inn 13. október kl. 20:30 í Lóni
við Hrísalund. Allir velkomnir,
verð kr. 1000.
Náttúrulækninga-
félagið
Flóamarkaður verður í Kjarna-
lundi á morgun frá kl. 14-16.
Þar eru í boði alls konar skraut
og nytjamunir, skór, bækur,
prjónavörur og sem endranær
úrval af fatnaði fyrir alla fjöl-
skylduna á gjafverði.
Gallerí +
Á laugardag og sunnudag er
síðasta sýningarhelgi á verkum
Helga Hjaltah'ns í Gallerí +
Brekkugötu. Galleríið er opið
frá 14-18 báða dagana, allir
velkomnir.
Flóamarkaðurinn á
Hjálpræðishernum
Flóamarkaðurinn er opinn í
dag kl. 10-17. Flestar flíkur eru
seldar á aðeins 100 krónur.
Markaðurinn er til húsa á
Hvannavöllum 10.
40 ára afmæli
Sveinbjörn Jónsson, Grenivöll-
um 20, verður fertugur á morg-
un 12. okt. Hann verður að
heiman við „veiðar".
Heimsókn til
Hjálpræðishersins
Um helgina kemur góð heim-
sókn til Hjálpræðishersins á Ak-
ureyri en það eru hjónin Inger
og Einar Hoyland sem eru yfir-
menn liknarstarfs Hjálpræðis-
hersins í umdæmi Noregs, ís-
lands og Færeyja. í tilefni heim-
sóknarinnar verður kvöldvaka
annað kvöld klukkan 20:30.
Akureyrarkirkja
Eftir guðsþjónustu í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag verður
boðið upp á molasopa í safnað-
arheimili kirkjunnar.
Vottar Jehóva
Mót Votta Jehóva verður á
sunnudaginn og hefst kl. 9:50.
Fræðslufundur um
þvagleka
Fjallað verðum um þvagleka
meðal kvenna á vegum Eflingar
á morgun kl. 16:30 í Oddfellow-
húsinu. Fyrirlesarar verða Jón-
as Franklín, Sigríður Kjartans-
dóttir og Guðrún G. Eggerts-
dóttir. Fyrirhugað er að halda
námskeið á Akureyri en það
verður auglýst síðar.
Höfuðborgar-
svæðið
Gigtarfélag íslands
Gigtarfélag íslands stendxn- fyr-
ir landssöfnun til styrktar starf-
semi sinni næstu daga, eða 10.
11. og 12. október og vonast til
þess að vel verði tekið á móti
sölufólki
50 ára afmæli
Gestur Valgeir Gestsson, raf-
eindavirkjameistari og farar-
stjóri, er fimmtugur í dag, 11.
október. Hann hefur búið á ír-
landi s.l. 12 ár og rekur þar
eigið fyrirtæki.
Heimilisfang hans er: 2
Shenick Park, Skerries, Co.
Dublin.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist og
dansað að Auðbrekku 17
(Dansskóla Sigurðar Hákonar-
sonar) í kvöld, föstudag, kl.
20.30. Húsið öllum opið.
Frá Hana-nú
í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga
Hana-nú í Kópavogi verður á
morgun. Lagt af stað frá Gjá-
bakka, Fannborg 8, kl. 10.
Götusamkoma í
Mjódd
Efnt er til götusamkomu í versl-
unarmiðstöðinni í Mjódd í dag,
kl. 17. Það eru kirkjusöfnuðir í
Reykj avíkurprófastsdæmi
eystra sem standa fyrir sam-
komunni til að kynna starf
safnaðanna. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson dómprófastur flyt-
ur ávarp. Kirkjukór og barna-
kór syngja nokkur lög.
í kvöld verður einnig gospel-
guðsþjónusta í Breiðholtskirkju
í Mjódd. Þessi guðsþjónusta er
eins og allar aðrar fyrir alla
fjölskylduna. Hún hefst kl.
20.30.
Óháði söfnuðurinn
Sunnudaginn 13. október kl. 14
verður kaffisala í Kirkju Óháða
safnaðarins að lokinni fjöl-
skylduguðsþjónustu.
Bar í Strætinu
Fimmtudaginn 3. október s.l.
hófu hjónin Björgúlfur Egilsson
tónlistarmaður og Lísa Páls-
dóttir dagskrárgerðarmaður
rekstur á nýjum bar í höfuð-
borginni. Hann heitir Bar í
Strætinu og er til húsa í kjallara
veitingastaðarins Café Austur-
stræti, Austurstræti 6, sem er í
eigu Björns Erlendssonar.
Danshúsið í Glæsibæ
Föstudaginn 11. og laugardag-
inn 12. október mun hljómsveit
Birgis Gunnlaugssonar
skemmta gestum Danshússins.
Danshúsið er opið alla föstu-
daga og laugardaga frá kl. 22
til kl. 03. Borðapantanir í síma
568 6220.
Norræna húsið
Á þessu ári eru liðin 100 ár frá
andláti norska málvísinda-
mannsins og skáldsins Ivars
Aasen. Af því tilefni gengst Nor-
ræna húsið fyrir kynningu á ári
Ivars Aasen 1996 sunnudag 13.
okt. kl. 16. Þekktir norskir
lista- og fræðimenn munu koma
fram og Kjartan G. Ottósson
prófessor fjallar um „Ivar
Aasen og ísland". Aðgangur er
ókeypis.
Mánudaginn 14. október kl.
20 mun danski arkitektinn Sör-
en Robert Lund halda fyrirlest-
ur í Norræna húsinu sem hann
nefnir „Mellem inspiration og
virkelighed" (Milli innblásturs
og veruleika). Fyrirlesturinn fer
fram á dönsku. Allir eru vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
Hollenskur flautu-
kvartett
Á sunnudaginn, 13. október,
heldur hollenski flautukvartett-
inn Brisk tónleika í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar í Laugar-
nesi. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30.
Sjónþing Helga
Þorgils
Sjónþingi Helga Þorgils Frið-
jónssonar verður hleypt af
stokkunum í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi sunnudag-
inn 13. ágúst kl. 14. Þá mun
Helgi miðla af reynslu sinni
sem málari, rithöfundur og
gallerírekandi, en Ólafur Gísla-
son gagnrýnandi og Þorri
Hringsson myndlistarmaður sjá
um að leiða umræðuna. Líkt og
áður verður Sjónþingi Ilelga
fylgt úr hlaði með tveimur sýn-
ingum. Á fyrstu og annarri hæð
Gerðubergs er að finna verk frá
síðastliðnum tveimur áratugum
sem draga fram helstu línurnar
í þróun hans. Að málþinginu
loknu, kl. 17, verður svo opnuð
sýning á nýjum verkum eftir
Helga á Sjónarhóli, Hverfisgötu
12. Báðar sýningarnar standa
fram til 10. nóvember. Að-
gangseyrir á Sjónþing er kr.
300.
Nýlistasafnið
Annað kvöld, laugardag, kl. 20
verður opnuð sýning á verkum
myndlistarmannanna Rirkrits
Tiravanija og Gabriels Orozco í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg.
Um er að ræða samvinnuverk-
efni þessara listamanna, sem
báðir eru fæddir 1961, sá fyrri
af tælensku bergi brotinn og sá
síðarnefndi frá Mexíkó.
Gestur í setustofu Nýlista-
safnsins er bandaríski lista-
maðurinn og rithöfundurinn
L.A. Angelmaker (f. 1962).
Hann sýnir ljósmyndaglærur
sem hann hefur notað til þess
að myndlýsa tímaritsgreinar
sínar um myndhst.
Safnið er opið daglega frá 14
til 18. Sýningunni lýkur 27.
október.
Fræg heimildar-
kvikmynd í MÍR
N.k. sunnudag, 13. október kl.
16, verður heimildarkvikmynd-
in „Venjulegur fasismi"
(Obyknovennyi fashism) sýnd í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Mynd
þessa gerði Mikhaíl Romm árið
1965 og lýsir hann þar á mjög
persónulegan og áhrifamikinn
hátt uppgangi og þróun fasism-
ans í Evrópu, valdatöku fasista
á Ítalíu, Spáni og Þýskalandi og
þeim jarðvegi sem stefna þeirra
er sprottin úr. Myndin er talsett
á ensku. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
Kór félagsstarfs
aldraðra í Reykjavík
Sunnudaginn 13. október kl. 14
verður Kór félagsstarfs aldr-
aðra með sönghátíð í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Kórinn flytur inn-
lend og erlend lög. Einnig syng-
ur kvennakór og tvöfaldur
karlasextett. Efnisval fjölbreytt.
Stjórnandi kórsins er Sigur-
björg Petra Hólmgrímsdóttir.
Undirleikari Sigurgeir Björg-
vinsson. Kynnir Hermann
Ragnar Stefánsson.
Námskeið um trú,
töfra og særingar
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla íslands mun n.k. 4 mánu-
dagskvöld standa fyrir nám-
skeiði um „Trú, töfra og særing-
ar“. Leiðbeinandi verður Matt-
hías Viðar Sæmundsson, dósent
í íslenskum bókmenntum við
HÍ.
Upplýsingar og skráning í
símum 525 4923 og 525 4924,
myndsíma 525 4080 og tölvu-
pósti endurm@rhi.hi.is
Leikbrúðusýning á Akureyri
Þýski brúðuleikhúsmaðurinn Bernd Ogrodnik verður á Ak-
ureyri sunnudaginn 13. október og heldur leikbrúðusýningu
í Gilfélaginu fyrir börn og fullorðna. Brúðusýningin hefst kl.
17. Bernd bjó á íslandi í fimm ár en hefur dvalið í New York
síðastliðin fimm ár þar sem hann hefur starfrækt eigið
brúðuleikhús. Hann smíðar allar sínar brúður, leikmynd og
leikmuni og er í dag einn af tíu bestu brúðuleikhúsmönnum
Bandaríkjanna. Bernd bjó m.a. til Pappírs Pésa og stjórnaði
honum í samnefndri kvikmynd. Fjölskyldusýningin sem
Bernd býður Akureyringum upp á heitir „Brúður, tónlist og
hið óvænta".
Furðuleikhúsið
sýnir Mjallhvíti
Furðuleikhúsið frumsýndi leikritið „Mjallhvít og dvergarnir
sjö“ í Möguleikhúsinu fyrir skömmu. Vegna fjölda áskorana
hefur Furðuleikhúsið ákveðið að endurtaka leikinn og vera
með aðra opinbera sýningu í Möguleikhúsinu á sunnudaginn
13. október kl. 14. Hægt er að panta miða á sýninguna hjá
Furðuleikhúsinu í síma 588 9412, en miðapantanir á sýn-
inguna á sunnudag eru í Möguleikhúsinu í síma 562 5060.
Einnig má geta þess að Furðuleikhúsið sýnir „Mjallhvít og
dvergarnir sjö“ í Ævintýrakringlunni alla laugardaga í októ-
ber.