Dagur - Tíminn - 11.10.1996, Síða 16
(Bagur~®tmmn
Fimmtudagur 11. október 1996
SNJÓDEKK
A ALLA BÍLA
Höldur hf.
Hjólbarðaverkstæði,
Tryggvabraut 14, Akureyri,
sími 461 3000
Býrð þú
svo vel að hafa
eignaskiptayfirlýsingu?
Við viljum vekja athygli á, að samkvæmt lögum um fjöleignarhús þarf að vera fyrir hendi
þinglýst eignaskiptayfirlýsing (eignaskiptasamningur) fyrir öll fjöleignarhús eigi síðar en
1. janúar 1997. í mörgum tilvikum liggur fullnægjandi yfirlýsing þegar fyrir og þarf þá ekki
að hafast frekar að. í öðrum tiivikum kann hún að vera úrelt, miðað við núverandi eignaskipan
í húsinu, eða hreinlega ekki fyrir hendi.
Er til eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið þitt? Ef þú ert í vafa um
hvort svo sé má leita upplýsinga hjá sýslumannsembættum.
Er hún fullnægjandi? Ef eldri þinglýst yfirlýsing er til staðar er
vissara að fara yfir hana og ganga úr skugga um hvort hún sé í
samræmi við núverandi eignaskipan í húsinu. Efhún er röng
eða ekki til þarf húsfélagið að bæta úr því.
Hverjir útbúa eignaskiptayfirlýsingar? Hópur manna hefur
löggildingu ígerð eignaskiptayfirlýsinga fyrir fjöleignarhús. Nánari
upplýsingar fást hjá Húsnæðisstofnun, húsnæðisnefndum
sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytinu.
• Hvað svo? Eftirað eignaskiptayfirlýsing hefur verið samin þurfa
eigendurað undirrita hana. Þá þarfað koma yfirlýsingunni til
byggingarfulltrúa til staðfestingar og loks að láta þinglýsa henni
hjá sýslumanni.
Hvað getur gerst eftir 1. janúar 19977 Ef fullnægjandi eignaskiptayfirlýsingu vantar eftir
1. janúar 1997 getur það valdið töfum í fasteignaviðskiptum, þar sem hún er gerð að skilyrði
fyrir þinglýsingu á eignayfirfærslum, svo sem afsölum, samkvæmt lögum um fjöleignarhús.
nZJ HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
II - vinnur að velferð íþágu þjóðar