Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Side 3

Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Side 3
jDagur-XEhrrém Laugardagur 9. nóvember 1996 -15 Nýtt pípuorgel til næstu -150 ára Nýtt 32ja radda pípuorgel tekið í notkun í Kópavogs- kirkju um jólin. Danskir orgelsmiðir vinna þessa dagana við að setja upp nýtt 32ja radda pípuorgel í Kópavogs- kirkju, sem á að taka í notkun um jólin. Ólöf Jónsdóttir kirkju- vörður segir orgelið smíðað á Suður-Jótlandi, hjá P. Bruhn & Sön Orgelbyggeri. Smiðir þaðan vinna nú við tréverkið, en eig- andinn, Karl Agust Bruhn er síðan væntanlegur eftir um 10 daga til að stilla (intona) píp- urnar. Áætlað er að það taki um þrjár vikur, enda um 2 þúsund pípur í orgelinu. Þar verður heldur ekki kastað til höndun- um, því Safnaðarblaðið hefur það eftir organistanum, Eriú Falkner, að þetta nýja orgel p!§§g§!l§ komi til með að endast í 100 150 ár að minnsta kosti. Nýja orgelið, að meðtalinni kostar hátt í 40 milljónir. Ríf- nauðsynlegri stækkun á loftinu, lega ijórðunginn vantar á að Orgelsjóður kirkjunnar dugi fyrir framkvændinni, sem þurft hefur að brúa með bankaláni, sem söfnuðurinn ætlar nú að leyta ýmissa ráða til að borga. Tilraunir til að selja gamla org- elið reyndust árangurslausar. Menn ætla þó ekki að gefast upp við að koma því í verð, heldur hafa brugðið á það ráð að bjóða pípurnar úr því til sölu hverja fyrir sig, holaðar ofan í stein. Minnstu pípurnar á að selja fyrir um 5.000 kr. en þær stærri verða dýrari. Sóknarbörn munu líka á næstunni ganga í hús í Vestur- bæ Kópavogs og bjóða til sölu ný jólakort með mynd af kirkj- unni. Og eftir áramótin eru fyr- irhugaðir átta tónleikar í Kópa- vogskirkju; fernir orgeltónleik- ar en á hinum koma fram ýmsir listmenn sem flytja margvíslega tónlist. Aðgöngumiðar verða seldir á tónleikana alla í einu lagi geng vægu verði. Kátur hópur á Vestmannsvatni. Jafningja- fræðsla að Vestmanns- vatni Liðsfólk Jafningjafræðsl- unnar, í hópi nemenda Verkamenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Akureyri, fór um síðustu helgi í skemmtiferð að Vestmannsvatni í Aðaldal. Ferðin var reyndar ekki jafn fjölmenn og í upphafi var gert ráð fyrir, en góð engu að síður. „Það var bót í máli með þessa fámennu ferð að þarna tókst að mynda góð tengsl milli okkar, foringja Jafningjafræðsl- unnar og krakkanna, tengsl sem hefðu varla myndast ef hópurinn hefði verið stærri," sagði íris Jónsdóttir, sem er í forsvari fyrir þessu fræðslu- starfi í VMA. Að Vestmannsvatni gripu krakkarnir í spil, spjölluðu saman, tóku lagið, fóru í göngu- ferðir, brunuðu á sleða og sitt- hvað fleira var til gamans gert. Lagt var upp síðdegis á föstu- degi og komið aftur til baka á sama tíma, daginn eftir. -sbs. Todmobile draugurinn vakinn Ellefu útgáfutón- leikar eru framund- an hjá Todmobile sem eru að leggja upp í stærstu tón- leikaferð sína til þessa. Fyrsta stopp er ísafjörður. Næsta stopp er Sjallinn á Akureyri. Todmobile tók fjörkipp fyrr á þessu ári eftir að hafa legið í dvala í þrjú ár meðan meðlimir hennar dunduðu sér við annars konar tónlistariðju. Fjörkippurinn fæddi af sér plötuna Perlur og svín, sem kom út í vikunni. Blaðið hafði því sam- band við Þorvald Bjarna Þorvalds- son lagasmið. - Ilver er svín- ið og hverjar perlurnar? „Ég er svínið, allir hinir í hljóm- sveitinni eru perl- urnar. Annars vísar titillinn bara í tónlistina okkar. Hún er nokkuð svínsleg inn á milli og svo glitrar hún nátt- úrulega eins og perla öðru hvoru. Todmobilehjónin. - Það er ekkert annað... „Ekki það að svínslegt sé neitt hræðilegt. Hún vill bara vera svolítið svínsleg og áferð- argróf stundum." - Nú eru þrjú ár síðan Todmobile gaf síðast út plötu og þetta er sjötta platan ykkar. Þið Andrea Gylfadóttir hafið prófað að spila undir öðrum nöfnum. Af hverju tókuð þið aftur upp Todmobile-nafnið? „Það var nú eiginlega tónlist- in sem kallaði á nafnið. Við sömdum Todmobile tónlistina að mestum hluta og í henni var einlægur stfll okkar. Síðan þeg- ar við ákváðum að hætta en vera samt áfram í þessum bransa reyndum við að fara eins langt frá Todmobile og við gátum, í léttu deildina. En svo langaði okkur að spila svona kannski dýpra efni og ákváðum að gera plötu nákvæmlega eins og okkur langaði að gera, al- gerlega í frjáfsu formi og þá kom Todmobile draugurinn upp aftur.“ - Svipaður stfll og á fyrri plötum? „Ja, það fer ekkert á milli mála að þetta er Todmobile.“ - Andrea semur textana, þú tónlistina. Um hvað er ort? „Þetta eru Iitlar sögur af fólki og aðstæðum, ævintýri, kjaftasögur og lygasögur. Það er einmitt eitt lag þarna sem heitir Gróa á Leiti.“ - Er Gróa að kjafta frá einhverju? „Gróa fær kannski að kenna aðeins á því. Og kominn tími til...“ Fyrstu útgáfutónleikarnir verða á ísa- ílrði á morg- un en á þriðjudags- kvöld verður Todmobile í Sjallanum á Akureyri. Ferðinni lýk- ur svo 6. des. í ís- lensku óper- unni. „Þetta er ekki eins og að skjót- ast á ball. Fólk getur hallað sér aftur í sæt- unum og notið tóna, lita og ljósa. Þetta er svona sjó eins og á konsertum í útlöndum." LÓA

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.