Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Blaðsíða 5
Jlagur-'SImmnt
Laugardagur 9. nóvember 1996 -17
MENNING O G LISTIR
Höfundar bókarinnar og aðrir sem unnu við útgáfu hennar komu saman í lok vikunnar til að fagna fyrstu eintökunum.
Elli kerling
rædd í þaula
Allt sem þú vildir,
eða vildir ekki, vita
um ellina á að finn-
ast í nýútkominni
bók um Árin eftir
sextugt.
Hvort eru árin slitnar sagir
sem sarga holdið
hver dagur hrufótt tönn
sem tœtir sárið
svo holdtœgjur hanga við það
einsog hálmtrefjar?
Við fyrstu sýn myndu margir
álíta þessar línur skrifaðar af
karlægu gamalmenni á m'ræðis-
aldri. Svo er þó ekki. Þessar
hugleiðingar skrifaði Sigurður
A. Magnússon þegar hann upp-
götvaði að líf sitt væri á enda -
á þrítugsafmælinu!
Sigurður komst síðar að
raun um annað og heldur því
blákalt fram að árin eftir fimm-
tugt hafi verið besta skeið ævi
hans. Sigurður er einn 38 höf-
unda að margkynja 719 bls.
doðranti Forlagsins um árin
eftir sextugt.
Nokkuð kyndugt var að
ganga inn í útgáfuhóflð sem
haldið var höfundum í vikunni
því í fyrstu sást vart nokkur
maður á umræddu æviskeiði.
Þeir reyndust þó vera þarna
innan um og að sögn annars
ritstjóra bókarinnar, Jakobs
Smára, er aldursforseti höfund-
anna „ern, skeleggur og skyn-
samur maður“ Ólafur Jónsson
að nafni en hann segir í bókinni
frá Hagsmunasamtökum aldr-
aðra.
Markmið bókarinnar var að
gefa heildarsýn yfir æviskeiðið
eftir sextugt, allt frá hagnýtum
upplýsingum til andlegra
vangaveltna. Þegar ritstjórarnir
hófu undirbúning verksins og
skoðuðu evrópskar og banda-
rískar bækur um þetta skeið
þótti þeim inntakið oftast nær
heldur yfirborðslegt. „En okkar
sýn á íslendinginn yfir sextugt
er að hann sé miklu læsari en
þessar þjóðir sem eru í kring-
um okkur. Hann vilji meira kjöt
á beinið, fróðleik og skemmtan
sem snýr ekki eingöngu að því
að leysa úr tilteknum vanda-
málum.“
Bókin er gríðarlega ljölbreytt
og tekur á ýmsu sem snertir
lífsfyllingu, heilsufar, hagsmuni,
samfélagsleg hlutverk o.s.frv.
Höfundarnir eru úr ólíkum átt-
um „og það svona kvakar hver
með sínu nefi“ segir Jakob, en
af því leiðir að fleiri geta fundið
þar eitthvað við sitt hæfi.
Afi og amma
Afi og amma undir lok 20. ald-
ar eru önnur fyrirbæri en þau
sem þekktust hér fyrir nokkrum
áratugum. Þær Sigrún Júlíus-
dóttir og Nanna K. Sigurðar-
dóttir íjalla um þessi breyttu
hlutverk: „Börn um þrítugt
koma í heimsókn með barna-
börnin til foreldra sinna um
sextugt og búast við að afi og
amma verði bæði fegin og glöð
að fá heimsóknina... Þeim er
kannski ekki ljóst að afi og
amma eru að vinna að bók,
eiga að skila verkefni í fram-
haldsnáminu, undirbúa erindi á
ráðstefnu eða höfðu einmitt
verið búin að taka frá þennan
eftirmiðdag á tímanegldu al-
manakinu til að undirbúa stutt-
an skemmtiþátt sem þau ætla
að flytja í hófi hjá bestu vina-
hjónum sínum sem eru að fara
að halda upp á fimm ára sam-
búðarafmæli sitt.“
Kynlíf á efri árum
Það er hann Óttar Guðmunds-
son læknir sem fjallar um eldra
fólk sem kynverur. Hann segir
einkum tvö vandamál koma
upp þegar árin færast yfir. Ann-
ars vegar að fólki finnist kyn-
þokki þess og aðdráttarafl
minnka og kyngeta breytast.
Að sögn Óttars virðist áhugi
á kynlífi hvorki slævast hjá kon-
um né körlum, hins vegar geti
líkamlegar breytingar valdið
þeim misskilningi.
WÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00:
Nanna systlr
eftir Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson
í kvöld. Örfá sæti laus.
Fimmtud. 14. nóv. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 17. nóv.
Laugard. 23. nóv. Nokkur sæti laus.
Föstud. 29. nóv.
Þrek og tár
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Laugard. 16. nóv. Uppselt.
Sunnud. 24. nóv. Laugard. 30. nóv.
Ath. Fáar sýningar eftír.
Söngleikurinn Hamingjuránið
eftir Bengt Ahlfors
Á morgun. Næstsíðasta sýning.
Föstud. 15. nóv. Síðasta sýning.
Kardemommubærinn
eftir Thorbjörn Egner
Á morgun kl. 14. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 17. nóv. kl. 14.
Sunnud. 24. nóv. Sunnud. 1. des.
Síðustu 4 sýningar.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
Leitt hún skyldi vera skækja
eftir John Ford
I kvöld. Uppselt.
Fimmtud. 14. nóv. Uppselt.
Sunnud. 17. nóv. Uppselt.
Aukasýning miðvikud. 20. nóv. Uppselt.
Föstud. 22. nóv. Laus sæti.
Laugard. 23. nóv. Uppselt.
Miðvikud. 27. nóv. Uppselt.
Föstud. 29. nóv. Laus sæti.
Athygli er vakin á að sýningin er ekki
við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið kl. 20.30:
í hvítu myrkri
eftir Karl Ágúst Úlfsson
Aukasýning á morgun. Uppselt.
Föstud. 15. nóv. Uppselt.
Laugard. 16. nóv. Uppselt.
Fimmtud. 21. nóv. Uppselt.
Sunnud. 24. nóv. Uppselt.
Fimmtud. 28. nóv. Laus sæti.
Laugard. 30. nóv. Laus sæti.
Athugið að ekki er hægt að hleypa gest-
um inn í salinn eftir að sýning hefst.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Mánud. 11. nóv. kl. 21.00
Sveinsson og Schumann
ásamt Caput og „Útlegð".
Atli Heimir Sveinsson og Caput leika verk eftir
Schumann og Atla. Lesiö úr „Útlegð“ eftir Saint John
Perse I þýöingu Sigfúsar Daðasonar. Fram koma auk
Atla: Kolbeinn Bjarnason, flautuleikari, Guðni
Fransson, klarinettuleikari, Sigurður Halldórsson,
sellóleikari, og Edda Arnljótsdóttir, leikari.
★ ★ ★
Miðasalan er opin mánud. og
þriðjud. kl. 13.00-18.00,
miðvikud.-sunnud. kl. 13.00-20.00 og til
20.30 þegar sýningar eru á þeim tima. -
Einnig er tekið á móti símapöntunum frá
kl. 10.00 virka daga. - Sími 551 1200.
Fríða, 62 ára:
„Þegar ég uppgötvaðí að mann-
inum mínum stóð ekki eins
hratt og áður fannst mér eins
og hann hafnaði mér. Ég hætti
alveg að koma við hann eða
reyna að fá hann til við mig.
Nokkru síðar komst ég að raun
um að hann tók það mjög nærri
sér.“ LÓA
LEIKFÉLA6 AKUREYRAR
Sigrún Astrós
Sýning laugard. 9. nóv. kl. 20.30.
Næsfsíðasfa sýning.
Sýning laugard. 16. nóv. kl. 20.30.
Síðasta sýning
Síðustu sýpingar á
Sigrúnu Astrósu
Við vekjum athygli allra leikhúsunnenda
á að aðeins eru eftir tvær sýningar á
Sigrúnu Astrósu. Sýningin hlaut frábæra
dóma gagnrýnenda. Verkið er gaman-
samt og hugljúft, jafnframt því sem það
slær á djúpa strengi í brjóstum karla
jafnt sem kvenna.
Missið ekki af þessari skemmtilegu
leiksýningu.
Dýrin í Hálsaskógi
eftir ThorbjBrn Egner
Sýningar:
Laugard. 9. nóv. kl. 14.00
- Uppselt
Sunnud. 10. nóv. kl. 14.00
- Uppselt
Sunnud. 10. nóv. kl. 17.00
Laugard. 16. nóv. kl. 14.00
Sunnud. 17. nóv. kl. 14.00
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Simi í miðasölu: 462 1400.
Pagur-'SItmtmt
-besti tími dagsins!
AKUREYRARBÆR
Deildarstjóri
atvinnudeildar
Laust er til umsóknar starf deildarstjóra at-
vinnudeildar Akureyrarbæjar, sem hefja mun
starfsemi um áramót.
Deildarstjóri ber ábrgð á þjónustu við atvinnulausa, s.s.
atvinnuleysisskráningu, ráðgjöf, átaksverkefnum og at-
vinnuleit fyrir fatlaða og aðra. Enn fremur á rekstri hæf-
ingarstöðvar, verndaðs vinnustaðar og endurhæfingar-
og starfsþjálfunarvinnustaðar. Krafist er staðgóðrar
þekkingar á málefnum fatlaðra og reynsla af félagsþjón-
ustu og/eða atvinnumálum, ásamt góðum hæfileikum til
samskipta. Einnig háskólaprófs í félagsvísindum eða
skyldum greinum og/eða í rekstri eða stjórnun.
Meirihluti þeirra sem sinna stjórnun og öðrum áhrifa-
störfum hjá Akureyrarbæ eru karlmenn. f samræmi við
landslög og jafnréttisáætlun bæjarins vill Akureyrarbær
stefna að því að hlutur kynjanna í áhrifastöðum verði
sem jafnastur og hvetur því konur jafnt sem karla til að
sækja um starfið.
Laun eru skv. kjarasamningi STAK og Launanefndar
sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið, kaup og kjör, veita félagsmála-
stjóri í síma 460 1420 og starfsmannastjóri í síma 462
1000. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar í Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 25. nóvember nk.
Starfsmannastjóri.