Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Page 14
26 - Laugardagur 9. nóvember 1996
|Dagur4IItmtrat
jDagur-Œtmmn
'lvlatarkrókur
„Ég œtla að bjóða lesendum upp á uppskriftir sem
allar eru með Mexíkósku ívafi, “ segir Ragna Sif
Þórsdóttir. Sjálf hefur hún ekki komið til Mexíkó
en segist hafa gaman af elda og borða framandi
mat. Ragna Sif er grafískur hönnuður á Morgun-
blaðinu, búsett íRegkjavík, en er upphaflega úr
Mosfellsbce. Hún skorar á vinkonu sína, Ástu Sig, í
Matarkrók að viku liðinni.
Chile Verde
Fyrir Jjóra
5 msk. ólífuolía
1 kg nautagúllas
3 grœnar paprikur
3 hvítlauksrif
4 stk. ferskur grœnn chili-
pipar (frœhreinsaður
og fínskorinn)
475 g niðursoðnir
skornir tómatar
2 tsk. púðursykur
1/4 tsk. negull
1/4 kanill (ground
cinnamon frá RAJAIl)
2 tsk. fínmalað kúmen
(ground cumin frá RAJAH)
4 msk. lime safi
(eða sítrónusafi)
200 ml kjötsoð
125 ml rauðvín (má sleppa.
en bœtið þá samsvarandi
magni við kjötsoðið)
salt
nýmalaður svartur pipar
3 msk. rifinn ferskur kóre-
ander (ef ekki til, þái 1 tsk. duft)
1. Hitið 3 msk. af ólífuolíunni
í stórum potti og brúnið kjötið.
Skiljið kjötið frá safanum sem
myndaðist við steikinguna og
geymið safann. Saflnn kemur
að hluta upp í þann vökva sem
notaður er seinna.
2. Skerið paprikurnar í
u.þ.b. 2,5 cm bita. Hitið afgang-
inn af olíunni og mýkið paprik-
una og hvítlaukinn á lágum hita
í 5 mínútur eða þangað til pap-
rikan er orðin mjúk.
3. Setjið kjötið aftur á pönn-
una og bætið við chili, tómöt-
um, púðursykri, negul, kanil,
kúmeni, sítrónusafanum og
kjötkraftinum/rauvíninu. Látið
suðuna koma upp og hrærið
stanslaust á meðan. Flytjið rétt-
inn í eldfast mót með loki og
bakið í ofni við 190° C í 1 klst.
og 45 mínútur.
4. Flytjið réttinn aftur í pott-
inn og látið krauma á lágum
hita í 20 mínútur, eða þar til
sósan hefur þykknað. Kryddað
að vild með salti og nýmöluðum
pipar. Stráið fínskornu kóre-
ander yfir (eða hrærið dufti
saman við kássuna).
Borið fram með mjúkum tor-
tilla kökum eða heitu brauði
(hvítlauksbr auði).
Undirbúningur: 10 mínútur
Matreiðsla: 2'A klst.
Grænmetis Fajitas
2 msk. ólífuolía
2 stórir laukir
(skornir í þunnar sneiðar)
2 hvítlauksrif (pressuð)
2 rauðar paprikur
2 grœnar paprikur
(skornar í strimla)
4 stk. grœnn chilipipar
(frœhreinsaður og skorinn)
3 tsk. gróft oragano
(eða eftir smekk)
250 g skornir sveppir
salt
nýmalaður svartur pipar
Meðlœti:
10 stk. heitar, mjúkar
Tortillas
Salsa sósa
sýrður rjómi
Hitið olíuna á stórri pönnu á
Ragna Sif Þórsdóttir.
meðal hita og mýkið laukinn og
hvítlaukinn á lágum hita þang-
að til hann er orðinn næstum
því bráðnaður. Bætið við rauð-
um og grænum paprikum, chi-
lipipar og oregano. Blandið vel.
Steikið á lágum til meðal hita
eða þar til paprikan er orðin
mjúk. Bætið við sveppum og
blandið vel saman. Steikið í 2-3
mínútur til viðbótar. Kryddið
með salti og pipar eftir smekk.
Berið strax fram, setjið græn-
metisblönduna í heita Tortifla-
kökuna, safsa sósu og sýrðan
rjóma yfir eftir smekk og rúllið
upp og bítið í. Namm, namm.
Mexíkósk ídýfa
2 dósir baunaídýfa
(Ref Ried Beans)
225 g rjómaostur
240 g sýrður rjómi
1 bolli rifinn ostur
1 dós Jalapeno ostur
1 bolli rifinn gulur ostur
1/2 pakki púrrulaukssúpa
Leggið í eldfast olíuborið mót
í lögum:
1. lag, 2 dósir baunaídýfa
2. lag, blanda af rjómaosti
og 1 msk. sýrðum rjóma
3. lag, Jalapeno ostur
4. lag, blanda af
sýrðum rjóma og lauksúpu
5. lag, blanda rifnum
osti, tvær tegundir
Bakið við 175° C í 20 mínút-
ur. Borið fram með Tortilla flög-
um.
Dýr réttur en svíkur ekki
góða veislu.
a/)
Hítei
eimilis-
homið
Sunnudagskakan
200 g smjör
200 g sykur
4 eggjarauður
1 tsk. vanillusykur
2 tsk. lyftiduft
4 msk. mjólk
200 g hveiti
Marengs:
4 eggjahvítur
200 g sykur
Smjör og sykur hrært vel
saman. Eggjarauðunum hrært
saman við. Hveiti, vanilfusykri
og lyftidufti hrært saman við,
ásamt mjólkinni. Deigið sett í
smurt skúffumót.
Marengs: Eggjahvíturnar
hrærðar vel saman við 100 g af
sykri. Hinum helmingi sykurs-
ins blandað saman við stífþeytt-
ar hvíturnar. Marengsinum er
svo smurt ofan á deigið í
skiiffumótinu og kakan bökuð í
miðjum ofni við 150° í ca. 1 klst.
(60 mín.).
Formkaka
m/ súkkulaði og rúsínum
100 g rúsínur
/ dl romm eða
appelsínusafi
100 g suðusúkkulaði, saxað
4egg
175 g sykur
225 g hveiti
2 tsk. kardemommur
2 tsk. lyftiduft
Rommið eða appelsínusafinn
settur yfir rúsínurnar. Látið
bíða í ca. 30-40 mín. Súkkulað-
ið saxað frekar gróft. Smjörlíkið
og sykurinn hrært saman létt
og ljóst. Eggjunum hrært út í,
einu í senn, og hrært vel á milli.
Rúsínunum og súkkulaðinu
bætt út í. Þurrefnunum blandað
saman og hrært saman við.
Deigið sett í vel smurt og raspi
stráð form. Bakað við 175° í 1-
VA klst. Prufið með prjóni hvort
kakan er bökuð. Látið kökuna
bíða aðeins í forminu áður en
henni er hvolft úr.
Nammi namm
1/2 dl rjómi
2 msk. smjör
2 msk. síróp
150 g smátt saxaðar
þurrkaðar apríkósur
100 g saxaðar rúsínur
100 g saxaðar hnetur
Látið sjóða saman smjör,
rjóma og síróp í 2-3 mín. Brjót-
ið súkkulaðið í smábita og látið
það bráðna saman við, við væg-
an hita. Bætið apríkósunum,
rúsínunum og hnetunum sam-
an við og hrærið vel saman.
Látið þetta kólna aðeins og látið
svo með tveim teskeiðum á
bökunarpappírsklædda plötu í
smátoppa. Látið kólna afveg áð-
ur en topparnir eru settir í
kassa og geymt í kæliskáp. Það
má líka setja blönduna í
minnstu pappírsform.
Fiskigratín
500 g soðin ýsa
3 msk. smjör
3 dl mjólk
3 msk. hveiti
3 egg
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. pipar
Smjörið er brætt í potti,
hveitinu bætt út í og hrært sam-
an með mjólkinni. Látið sjóða
við vægan hita í ca. 5 mín. Látið
sósuna kólna aðeins áður en
eggjarauðunum og kryddinu er
hrært út í, þá er flskinum hrært
saman við. Eggjahvíturnar stíf-
þeyttar og þeim blandað síðast
saman við hræruna. Þetta er
svo sett í vel smurt, eldfast mót.
Smávegis raspi stráð yfir. Grat-
ínið er svo haft í ofni í 1 klst.
við 175°. Borið fram með soðn-
um kartöflum, bræddu smjöri
og grænmeti. Uppáhaldsréttur
alfra á heimiiinu.
Hakkréttur
500 g nautahakk
2 laukar
3 gulrœtur
250 g sveppir
2 msk. olía
1 dós tómatar
2 dl kjötkraftur
Salt og pipar
1 lárviðarlaufsblað
1 tsk. oregano
1 búnt steinselja
Laukurinn skrældur og sax-
aður. Gulræturnar hreinsaðar
og rifnar niður. Sveppirnir
hreinsaðir og skornir í sneiðar.
Oh'an hituð og kjötið og laukur-
inn steiktur þar í og hrært í á
meðan. Grænmetinu bætt út í
og allt látið krauma saman.
Kjötsoðinu bætt út í og bragðað
til með salti og pipar, lárviðar-
blaði og oregano. Saxaðri stein-
selju stráð út á. Látið krauma í
15-20 mín. Notið þennan kjöt-
rétt með t.d. pítsum, pasta eða
lasagna.
óð ráð
1. 1 tsk. af sinnepi saman við
kjöthakkið sem búa á til bofl-
ur úr, gefur gott bragð.
2. Það er hægt að nota smákök-
ur sem hafa brotnað. Myljið
þær með kökukeflinu, blandið
smávegis sykri saman við og
blandið þeim svo saman við
eina stífþeytta eggjahvítu.
Bakið litlar kökur á bökunar-
pappírsklæddri plötu við 150°
í 25 mín.
3. Þegar brúnað er úr smjöri er
gott að nota smávegis olíu sam-
an við, jafnvel til helminga.
4. Ostur geymist best pakkaður
inn í álpappír eða smjörpapp-
ír og plastpoka og svo settur
inn í kæliskápinn.
5. Gerið það ekki að vana að fá
ykkur kafflbolla á eftir hverri
máltíð. Það tefur fyrir líkam-
anum að vinna C-vítamín úr
fæðunni.
ll/issirþúað...
1. Það var árið 1921 sem in-
súlínið kom fyrst á markað-
inn og þar með mikilvægt
efni til að halda sykursýki í
skefjum.
2. Árið 1929 heppnaðist
fyrsta útsending litasjón-
varps.
3. Bandaríkjamaðurinn Harry
Burt seldi fyrsta pinnaísinn
í ísbúð sinni í Youngstown,
Ohio, árið 1922. Það var
vanilluís með súkkulaði-
hjúp.
4. Fyrstu vítamínpillurnar
komu á markaðinn í
Bandaríkjunum árið 1936.
5. Fyrsta „glasabarnið" fædd-
ist í Englandi árið 1978.