Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Qupperneq 3
j[ktgur-(IIímtrm
Laugardagur 21. desember 1996 -15
WBBmBBm
‘Margir lmíðajáhmmn
Biskup íslands, herra Ólaf-
ur Skúlason, hefur beint
þeim tilmœlum til presta að
á sunnudaginn kemur verði
beðið fyrir þeim sem kvíða
jólunum. Hann segir að
þunginn sé víða mikilL
Það var Þjóðmálanefnd
kirkjunnar sem lagði til
að í kirkjum landsins yrði
stutt og einföld helgistund þar
sem beðið yrði fyrir þeim sem
af einhverjum ástæðum kvíða
jólunum. Nefndin hefur undan-
farið íjallað um málefni þeirra
sem orðið hafa fyrir áfalli á
lífsgöngunni til
að mynda ást-
vinamissi eða
heilsutjóni. Jól-
in eru við-
kvæmur tími
fyrir þetta fólk.
Herra Ólafur
Skúlason bisk-
up segir að
þunginn sé
greinilega mik-
ill og að ótrú-
lega margir
leiti til Hjálpar-
stofnunar kirkj-
unnar. „Ég er í sama húsi og
Hjálparstofnun og hingað koma
margir sem ekki eru með þann
glampa í augum sem við viljum
helst að fylgi jólunum. Auk þess
þekkjum við vel að sorgin og
söknuðurinn verður þeim mun
sárari þar sem gleðin annars
myndi ríkja, því þann vantar í
hópinn sem hefur veitt svo
ríkulega á liðnum árum.“
Huggandi eiiífð
í fréttatilkynningu frá biskupi
segir að ófáir missi stjórn á
áfengisdrykkju sinni yfir jólin
og í margri barnssálinni bland-
ist kvíði tilhlökkuninni. „Það er
víða djúpt á lífshamingjunni og
gleðin er víða aðeins á yfirborð-
inu og naumast það.
Aðrir kvíða féleysi, í þjóðfé-
lagi allsnægta er fyrirkvíðanlegt
að geta ekki veitt sér og sínum
,Hingað koma marg-
ir sem ekki eru með
þann glampa í aug-
um sem við viljum
helst að fglgi
jólunum “
það sem alsiða telst.“
Vinnur trúin á kvíða?
„Trúin er náttúrulega ekki
eitthvert smyrsl sem við kaup-
um úti í apóteki til þess að svið-
inn hverfi en hún hefur okkur á
annað stig. Þá horfum við ekki
aðeins til baka heldur fram á
við og hugsum um það af
hverju jóhn eru hátíð. Hitt horf-
umst við líka í augu við að þótt
Guð gefi okkur sjálfan sig í syni
sínum þá breytast mennirnir
ekki allir við það. Trúin losar
okkur ekki undan raunveruleik-
anum en hún gerir raunveru-
leikann öðruvísi af því að við
sjáum Guð og að örlög okkar
eru ekki bund-
, ■ ■ in af þessum
árum sem telja
ævi, heldur er
eilífðin hluti af
því sem við eig-
um.“
Að geta
ekki veitt
sínum
„Þegar maður
er með þungt
hjarta þá skipt-
- ir ekki nokkru
máli hvað
pakkarnir eru margir undir
jólatrénu,“ segir Ólafur. - „En
auglýsingarnar skerpa muninn
milli ijölskyldna, sumar geta
veitt sér það sem gleður börn
og unglinga en aðrar ekki. For-
eldrar kvíða því að geta ekki
gefið börnum sínum eins og
hugur þeirra stendur til og þá
verða þessi þungu örlög fátækt-
arinnar erfið.“
Kvíði fyrir jólunum er al-
þekkt fyrirbæri og þess vegna
vill kirkjan um leið og hún
minnir á fagnaðarboðskapinn
biðja fyrir þeim sem kvíða hátíð
frelsarans. Formaður Þjóð-
málanefndar Þjóðkirkjunnar er
Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson
og er hann fús til að veita nán-
ari upplýsingar um ofangreind-
ar helgistundir og tilefni þeirra.
Sími hans í Dómkirkjunni er
562-2755 og heimasími hans
562-6618.
Friðargöngur verða bæði í Reykjavík og á Akureyri á Þorláksmessu.
Herra Ólafur Skúlason biskup: „Það er víða djúpt á lífshamingjunni og gleðin víða aðeins á yfirborðinu og
naumast það.“
Slai£jgiim).]firjálafialdiiui
Guðsþjónustan í Akureyr-
arkirkju núna á sunnu-
daginn er tileinkuð þeim
sem kvíða jól-
unum. Fjallað
verður um jóla-
kvíða í predik-
un og huggun
og styrkur sótt-
ur í helga texta
og söngva. Eftir
messu verður
boðið upp á
kafíisopa í
safnaðarheim-
ilinu þar sem
umræðuefnið
verður „Kvíð-
vænleg jól?“
Svavar Jóns-
son, prestur við
Akureyrar-
kirkju, segir
kvíðaefnin jafn
margbreytileg
og tilhlökkun-
arefnin. Hann heldur jafnvel að
það séu alltaf fleiri og fleiri sem
bætast í hóp þeirra
sem kvíða jólum.
„Fátæktin virðist
vera að aukast og
festast í sessi sem er
uggvænlegt. En það
hefur auðvitað alltaf
verið hópur fólks
sem ekki hefur getað
hlakkað til jólanna.
Þessi mikla hátíð,
jólin, magnar upp
tilfinningar hjá
fólki.“
Þeir sem kvíða jólun-
um eru hjartanlega
velkomnir í guðs-
þjónustuna, hinir
sem eru svo lánsam-
ir að finna aðeins til
tilhlökkunar eru ekki
síður velkomnir.
Stundin hefst klukk-
an 14:00.
Þráir þú frið á jörð?
Dýrleif Skjóldal stendur fyrir
bænastund á Ráðhústorginu á
þegar sólargangur er stystur á
fslandi."
Triðargémgur
Akuregrar ag
IRgykjamkur
A Ak
/\þá!
X JLme
Jólin eru gleðihátíð. Engu að síður eru þeir ótrúlega
margir sem kvíða þessari hátíð.
Akureyri í kvöld og er ætlunin
að fólk eigi saman rólega stund
og biðji fyrir friði og kærleika á
jörð. Dýrleif segir hugmyndina
hafa blundað lengi í sér. „Ég
ræddi þetta við kirkjunnar
menn en þá vildu þeir binda
þetta tiltekinni trú og kirkjun-
um en mig
langaði til að
allir gætu verið
með og líka
þeir sem ekki
halda jól. Það
er einlæg von
mín að við sem
viljum auka
frið og kær-
leika hér á jörð
getum samein-
ast í þögulli
„Þessi mikla
hátíð, jólin,
magnar upp
tilfinningar hjá
fólki. “
bæn á torginu í kvöld, óháð trú-
arskoðunum eða öðrum
lífsskoðunum okkar. - Ég held
líka að það sé gott að koma
saman og biðja á þessum degi
Akureyri verður gengið í
þágu friðar á Þorláks-
lessukvöld klukkan
19:30. Þetta hefur verið gert
síðustu Qögur ár en í ár verður
ekki farið frá Menntaskólanum
eins og venja hefur verið heldur
ætlar hópurinn að hittast niður
við Eimskip á Strandgötunni.
Gengið verður meðfram nýja
garðinum og liggur leiðin á
Ráðhústorgið. Jóhann Baldvins-
son, organisti í Glerárkirkju,
segir að síðustu ár hafi þátttaka
verið góð þrátt fyrir miklar
annir manna. „Við syngjum á
leiðinni og þegar við komum á
Torgið heldur Björn Guðlaugs-
son líffræðingur stutta friðar-
hugleiðingu.“ Mæting er klukk-
an 19:15.
íslenskar friðarhreyfingar
standa að blysför niður Lauga-
______________ veginn á Þor-
láksmessu.
Safnast verður
saman klukkan
17:30 á
Hlemmi og lagt
af stað klukkan
18. Þetta er 17.
árið sem frið-
arganga
Reykjavíkur er
farin á Þorláks-
■ messu og líta
margir á hana
sem ómissandi hluta jólaundir-
búningsins.
-mar