Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Blaðsíða 5
Jlitgur-ÍÍIínrátH
Laugardagur 21. desember 1996 -17
MENNING O G LISTIR
Húmorískur harmlcikur
„Þetta er gríðarlega gott verk. Að mínu mati
með betri leikritum leikbókmenntanna. Bœði
er í því spennandi og skemmtileg saga og
mjög litríkar og lifandi mannlýsingar. Það
sem gerir verkið líka skemmtilegt er að þó
þetta sé í rauninni harmleikur, endi t.d.
mjög sorglega, er það samt á köflum alveg
sprenghlœgilegt. “
Jólaleikrit Þjóðleikhússins í
ár er leikritið Villiöndin eft-
ir Henrik Ibsen og eins og
sjá má á tilvitnuninni hér að of-
an er leikritið í sérstöku uppá-
haldi hjá leikstjóranum, Stefáni
Baldurssyni. „Höfundurinn er
svo mikill mannþekkjari. Þetta
fólk sem hann skapar fer að
skipta mann máli strax í byrjun
og áhorfandinn sogast inn í at-
burðarásina,“ heldur Stefán
áfram.
Ibsen skrifaði Villiöndina fyr-
ir um einni öld síðan. í leikrit-
inu segir frá Ijósmyndaranum
Hjálmari Ekdal og fjölskyldu
hans. Þrátt fyrir þröngan kost
unir fjölskyldan glöð við sitt þar
til dag einn er gamall vinur fjöl-
skylduföðurins birtist óvænt og
ógnar öruggri tilveru hennar.
„Þessi maður býr yflr ákveðinni
vitneskju um íjölskylduna sem
er ekki á allra vitorði," segir
Stefán. „Hann er siðaprédikari
sem vill að sannleikurinn fái að
ríkja. Þessi sannleikur hefur
hinsvegar mjög afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir þessa fjölskyldu
„...spurningin sem
höfundur er að velta
upp er m.a. hvort
stundum sé ekki í
lagi að láta satt
kjurrt liggja. “
og spurningin sem höfundur er
að velta upp er m.a. hvort
stundum sé ekki í lagi að láta
satt kjurrt liggja. Einnig hversu
mikla afskipasemi eigi að vera
með gagnvart náunganum."
Eins og
Kardimommubærinn?
Villiöndin hefur tvisvar sinnum
verið á íjölunum hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og einu sinni í
Þjóðleikhúsinu. Nú eru hinsveg-
ar meira en tveir áratugir síðan
verkið var sýnt í Reykjavík og
telur Stefán löngu kominn tíma
á verkið aftur. „Ég segi stund-
um í gríni að þetta sé eins og
með Kardimommubæinn sem
þarf að endursýna fyrir hverja
kynslóð barna. Villiöndin er eitt
af þeim leikritum sem allir
hefðu þurft að komast í kynni
við einhvern tímann á ævinni.
Þannig að það er full ástæða til
að sýna það alltaf á nokkurra
áratuga fresti.“
ÞJÓDLEIKHÚSID
Stóra sviðið kl. 20.00
Jólafrumsýning:
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
26. des. kl. 20. Uppselt.
2. sýn. föstud. 27. des. Uppselt.
3. sýn. laugard. 28. des. Uppselt.
4. sýn. föstud. 3. jan. Örfá sæti laus.
5. sýn. fimmtud. 9. jan.
6. sýn. sunnud. 12. jan.
KENNARAR ÓSKAST
eftir Ólaf Hauk Símonarson
6. sýn. fimmtud. 2. jan. Nokkur sæti laus.
7. sýn. sunnud. 5. jan. Nokkur sæti laus.
8. sýn. föstud. 10. jan.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Laugard. 4. jan. Laugard. 11. jan.
Barnaleikritið LITLIKLÁUS0G
STÓRIKLÁUS eftir H.C. Andersen
verður frumsýnt seinni hluta janúar.
Miðasala auglýst síðar.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT AÐ HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
Föstud. 27. des. Nokkur sæti laus.
Laugard. 28. des. Nokkur sæti laus.
Föstud. 3. jan. Sunnud. 5. jan.
Fimmtud. 9. jan. Föstud. 10. jan.
Athygli skal vakin á að sýningin
er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn ettir að sýning er hafin.
Litla sviðið kl. 20.30
í HVÍTU MYRKRI
eftir Karl Ágúst Úlfsson
Sunnud. 29. des. Laugard. 4. jan.
Laugard. 11. jan.
Athugið aö ekki er hægt að hleypa gest-
um inn í salinn eftir að sýning er hafin.
★ ★ ★
GJAFAKORTÍLEIKHÚS-
SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF
★ ★ ★
Miðasalan verðuropin kl. 13-20
laugard. 21. des. og sunnud.
22. des., kl. 13-18 á Þorláksmessu,
á aðfangadag er lokað, annan dag
jóla verður opið kl. 13-18.
Valinn maður í hverju
rúmi
Stefán hefur áður leikstýrt Villi-
öndinni, í Borgarleikhúsinu í
Árósum fyrir 7-8 árum. Hann
segir margt vera líkt með þess-
ari uppfærslu og þeirri sem
hann leikstýrði í Danmörku en
áherslurnar Liljóti þó alltaf að
breytast eitthvað með nýjum
leikurum, búningahönnuðum
og leikmyndateiknara. En hóp-
urinn sem standi að sýningunni
í þetta sinn sé svo sannarlega
góður. „Það er stórleikari á
hverjum pósti. Pálmi Gestsson
og Edda Heiðrún Backman
leika hjónin, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir dótturina og
Sigurður Sigurjónsson aðkomu-
manninn sem kemur öllum
hörmungunum af stað,“ segir
Stefán en auk þeirra fjögurra
eru nokkur minni hlutverk sem
eru ekki síður vel skipuð. Þar á
meðal eru t.d. þeir Gunnar Eyj-
ólfsson og Valur Freyr Einars-
son sem báðir standa á ákveðn-
um tímamótum í leikhúsinu.
Gunnar að leika sitt 100. hlut-
Frá æfingu á Villiöndinni, jólaleikriti Þjóðleikhússins í ár.
verk í Þjóðleikhúsinu en Valur
Freyr sitt fyrsta.
En hvernig ætli sé í leikhús-
inu fyrir jólin. Skapast öðruvísi
stemmning en fyrir hin leikrit-
in?
„Ekkert endilega," svarar
Stefán. „Það er samt oft mjög
sérkennilegt að æfa jólasýningu
því tímasetningar verða svo
skrýtnar. T.d. er langt frá síð-
ustu æfingu fram að frumsýn-
ingu vegna jólanna. Það sem er
óvenjulegt núna er hinsvegar
þessi flensa sem hefur farið
mjög illa með okkur í leikhús-
inu síðustu daga. En ég vona nú
að þetta náist allt. Það er mikill
hugur í mönnum." AI
|niDjTTll'uÉ7IFlfcni.I>~'|^|~'1
I ~ *I“ M wjrj
LEIKFELAG AKUREYRAR
Edda Heiðrún Backman og Pálmi Gestsson í hlutverkum sínum.
Myndir: Pjetur
Undir berum himni
eftir Steve Tesich
Frumsýning
ó „Renniverkstæðinu"
(Sfrandgötu 49)
sunnudaginn 29. des. kl. 20.30.
Uppselt
2. sýning mán. 30. des. kl. 20.30.
3. sýning lau. 4. jan. kl. 20.30.
4. sýning sun. 5. jan. kl. 20.30.
Sýningin er ekki
við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
í salinn eftir að sýning er hafin.
JMagjej
fgwt Úwnm
(ýjajalíwd á ‘íhjwi
í Hláliaikóqi et titiuiiin jóla-
()jóf fijm ijiujitu kt/iiilóóiiia.
:Uafid lamland túi núiaiötu
Samicomúhúsinu
Sigrún Astrós
Föstud. 27. des. kl. 20.30.
Aukasýning - Allra síðasta sinn.
Dýrin í Hálsaskógi
eftir Thorbjorn Egner
Aukasýningar:
Laugard. 28. des. kl. 14.
Sunnud. 29. des. kl. 14.
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miðasölu: 462 1400.
- besti tími dagsins!