Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Blaðsíða 9
®agur-Œímbm Laugardagur 21. desember 1996 - 21 Sem beturfer erufáir núorðið sem sækjast eftirþví að vera á sem vitlausustum skepn- um ogfinnast þeir vera geysimiklir menn efþær hrekkja og láta illa. “ Hestamennska er alvöru verkefni Pétur Behrens, hestabóndi og myndlistarmaður í Breiðdal, segir að fyrst nú séu íslendingar farnir að sinna hestamennsku af einhverri al- vöru. Þó er að hans mati ýmis- legt sem betur mætti fara, ekki síst hvað varðar fræðslu um hestamennsku og eins umhirðu hrossa. Hafa áherslur í hrossarœkt ekki breyst mikiö á síðustu ár- um? „Jú, og þó. Lengi vel var það svo mikilvægt að menn kæmust örugglega á milli staða undir öllum kringumstæðum og kannski hratt þegar mikið lá við. Krafturinn, dugnaðurinn og kjarkurinn var það sem skipti máli. Sömu þættir eru enn æskilegir, en ekki eins mikil- vægir og áður. Nú til dags er hestamennskan hrein skemmt- un og stefnir vonandi og væntanlega í það að verða ekki bara reiðmennska heldur reið- list. Sem betur fer eru fáir núorð- ið sem sækjast eftir því að vera á sem vitlausustum skepnum og finnast þeir vera geysimiklir menn ef þær hrekkja og láta illa. Ég man eftir mönnum sem fannst ekkert varið í þetta nema að yrðu áflog. Þá voru þeir ofsalegar hetjur, stórir menn á þessum litlu hrossum. Oft langaði mann að senda svona menn til Ameríku og leyfa þeim að fá útrás á „rodeo“- hestum. En það verður ansi náið og skemmtilegt samband milli manns og hests ef rétt er að farið. Ef það er ekki samræmi milli þess sem maðurinn og hesturinn vill þá verður þetta allt leiðinlegt og bara ljótt. Ég hef oft líkt þessu við þegar tveir eru að dansa. Ef einhver drumbur og létt og sæt kona eru saman þá bara gengur það ekki. Það verður að nást ein- hvers konar samræmi í takti. Það er mikið talað um takt í hestamennsku, sem undirstöðu. En hins vegar þá þurfum við ekki að ná í lækni eða ljósmóð- ur á hestum lengur og að því leyti hafa áherslurnar breyst. En ég er viss um að ef maður tæki núna vel þjálfaðan gæðing, ekki bara eitthvað ungt trippi sem kann mikið frá náttúrunn- ar hendi, þá væri það jafn gott hross og önnur áður fyrr. Það er líka alveg víst að það er til meira af jafn góðum hest- um núna en var. Fólk er miklu betur ríðandi. T.d. það sem börn voru látin ríða á áður fyrr, þetta voru truntur. Það voru að vísu hestar, en þeir voru annað- hvort illgengir, lullgengir eða bara gamlir. Það var ekkert hugsað um það að hafa eitthvað virkilega létt, lipurt og skemmtilegt fyrir börnin. Vantar reiðskemmu Pétri finnst að fræðslu um hestamennsku sé nokkuð ábótavant hérlendis. „Það er mikil lærdómur að umgangast hross. í raun og veru ætti á Egils- stöðum að vera framboð á reið- kennslu um miðjan vetur í reið- skemmu. Þá væri hægt að taka þetta sem nám. Það myndi breyta öllu. Það er út í hött að ætla að vera með reiðhallir í hverju þorpi hér, en Eg- ilsstaðir eru miðsvæðis og þangað gætu menn komið t.d. héðan úr Breiðdal. Ef einhver ákveðinn toppkennari kemur og er t.d viku, þá gæti maður farið með sína hesta uppeftir og verið þar þennan tíma. Það væri eitthvað vit í því. Við erum nefnilega dálítið í forneskjunni hvað þetta snertir. í Kópavogi hefur í mörg ár verið hesthús, ég man ekki hversu margir básar eru þar, og það er fyrir börn og unglinga sem eiga enga hesta. Líka fyrir þau sem eiga hesta, en foreldr- arnir eiga ekki hesthús. Þarna er einhver frá hreppnum sem er ráðinn til að aðstoða þessa krakka. Þar er alltaf fullt og þarna fá þau aðstoð ekki síður en þau væru í einhverju boltafélagi eða siglingum eða hverju sem það er. Þetta ætti að vera hægt hér með styrk frá hreppnum, hesta- mannafélögin leggðu eitthvað fram og svolítilli greiðslu frá börnunum. Þessir krakkar sem fara á hverju kvöldi og hugsa um sín hross, gefa og svona, þau eru þá ekki að þvælast um og gera einhverja bölvaða vitleysu á meðan. Menn ættu að sjá sér hag í þessu bara vegna ástandsins í unglingamálum Á uppleið í ræktun Austfirðingar hafa hingað til ekki verið mjög hátt skrifaðir hestamenn. Finnst þér hesta- mennskan vera á uppleið hér, í rœktun og tamningu? „í ræktun, alveg tvímæla- laust. Hér hafa auðvitað alltaf verið til einstakir menn sem hafa ræktað góð hross. Ég held að það sé orðið almennara að menn hugsi um þetta sem al- vöru verkefni, ekki bara ein- hvers konar íjölgun á því sem pabbi og afi áttu. Á hverju vori eru hrossin dæmd, kyn- bótadómar. Þar fá menn sam- anburð og það þýðir ekkert að segja: „Afi átti þetta kyn...“ Þarna kemur allt fram. En það er ekki spurning að hérna er ekki þessi stöðuga umferð kaupenda eins og er á Suðurlandi. Manni finnst meira að segja stundum að þetta sé að versna. Fólk kemur að utan og hefur kannski bara tvo daga, æðir þarna um og hefur menn sér til aðstoðar. Það myndi kosta tvo til þrjá daga til viðbót- ar að koma hingað, flug og annað. Það er margt erfiðara ef maður er þetta langt frá þeim stað sem fólk lendir. Því miður er ekki komin betri tenging á, t.d. millilandaflug á tveggja vikna fresti til Egilsstaða. Eitthvað er nú bogið við það að ekki skuh vera, að minnsta kosti á sumrin, fáeinar ferðir að utan til Egilsstaða." Nú hafa aðstœður til útreiða batnað töluvert á undanfórnum árum t.d. með tilkomu reið- vega. „Vandinn í sambandi við þessa reiðvegi er sá að á vorin verða þeir stundum svo blautir og oft eru þeir allt of grýttir. Þú ríður ekki góðhesti yf- ir grjót. Ef þú ríður í vegkantin- um og hann er sléttari þá ert þú þar. En fólk keyrir allt of hratt þar sem hesta- menn eru á ferð. Á malbiki er t.d. keyrt gassalega og að vera á veginum á ungum trippum er auðvitað hrikalegt. Menn hægja alltof sjaldan á sér. Við erum t.d. oft í lífsháska hér. Og við erum búin að finna út að það eina sem dugir, þegar maður sér rykský og gnýrinn nálgast, er að þvælast á miðjum vegi og þykjast ekkert geta gert. Annars keyra menn á þvílíkri ferð og þó að maður sé kominn niður fyrir veg þá kemur stund- um grjótkast á mann. Á sumrin á fimmtudögum, á ferjudeginum (Norræna kemur einu sinni í viku til Seyðisfjarð- ar á sumrin; innsk. blm.) þá er umferðin hvað mest. En það er allt í lagi. Útlendingarnir keyra svo rólega, þeir horfa og horfa og stoppa. Þeir sem eru að flýta sér suður eða norður keyra hinsvegar bara eins og þeir komast. Vegurinn hér er merktur fyr- ir allsherjar umferð. Það þýðir að ég má vera á honum á hesti. Mér fyndist það ekki mikið ef það væri gefið upp að menn keyrðu ekki hraðar en 40 km á klst. fram hjá ríðandi manni. Þá er maður nokkurn veginn ör- uggur og hefur allavega tíma til að forða sér, sem er nú hæpið ef einhver kemur á 120 km hraða.“ Vissara að fylgjast vel með „Mér datt í hug í sambandi við lög og reglur hvernig forða- gæslu er háttað. Það er gáð að því að það sé til nóg hey. En það þarf líka að gá að því hvort menn gefa. Á ónefndum bæ var til hey, en það var ekki gefið og hrossin litu afar illa út næsta vor. Annað er að ef menn tálga ekki hófa þá af- myndast þeir og liðir skekkjast. Ef menn gefa ekki ormalyf verða skepnurnar sjúkar. Það er ekkert fylgst með þessu. Við erum ekki komin það langt að þetta sé skylda og eft- irlit sé haft með þessum mál- um. Þetta tel ég vera frumþörf." Þú fylgist þá með öllu þínu stóði? „Já. Ég byria að tálga hófa á veturgömlu. A fyrsta vetri eru folöldin sem mest úti, ef það er ekki vont veður. En það er samt alltaf eitthvað sem þarf að laga. Það fer talsvert eftir veðri á vet- urna hversu mikið þarf að gera. Minnst þrisvar á ári tökum við allt stóðið og tálgum hófa. Fyrir bragðið er maður með skepnur sem eru í lagi. Hvað gera þeir sem eru með 200 hross? Það er útilokað að sinna þessu öllu. Þegar hrossin eru ekki á þeim mun hentugra landi þá þá verða hófarnir hryllilega skakkir. Þegar svona er orðið mjög skakkt þá hafa liðirnir afmyndast. Þá þýðir í raun og veru ekkert að leiðrétta það. Það verður jafnvel meira álag ef hófarnir eru tálgaðir beint. Við erum ekki komin í það að þetta tilheyri hrossabúskap. Hann er svo fornlegur ennþá í raim og veru.“ SBB „Mér fyndist það ekki mikið ef það væri gefið upp að menn keyrðu ekki hraðar en 40 km á klst. fram hjá ríðandi manni.“ „Ég held að það sé orðið almennara að menn hugsi um þetta sem alvöru verkefni, ekki bara einhvers kon ar fjölgun á því sem pabbi og afi áttu.“

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.