Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Qupperneq 18
30 - Laugardagur 21. desember 1996
glagur-'akmmt
S IC Á IC
Guðfríður
Lilja
Grétarsdóttir
skrifar um skák
Viltu bæta lif þitt?! Nú er
einmitt sá árstími geng-
inn í garð þegar við get-
um öll byrjað upp á nýtt og lof-
að öllu fögru. Hvílíkur léttir! Til
að gera okkur auðveldara fyrir
að finna hið rétta líf morgun-
dagsins skulum við í dag drepa
á eins konar siðferðislegum
skákpredikunum hins Qölhæfa
bandaríska stjórnmála- og vís-
indamanns, Benjamin Franklin,
sem uppi var á 18. öld. Hann
getur ef til vill hjálpað okkur
við gerð jóla- og áramótaheit-
anna, jafnvel þótt í lauslegri
þýðingu sé.
„Skák“, skrifar Franklin í rit-
gerð sinni „Siðfræði skákarinn-
ar“ árið 1786, „er ekki bara til-
gangslaus skemmtan. Fjöl-
margir verðmætir eiginleikar,
sem nýtast vel í lífinu, eru
fengnir og þroskaðir með því að
tefla, og þeir verða að siðum og
venjum sem koma sér vel á
hverju sem gengur í lífinu. Lífið
sjálft er eins konar skák þar
sem við eigum möguleika á
smáum sigrum, þar sem við
þurfum að kljást við samkeppn-
isaðila og óvildarmenn, og þar
sem íjölmargir góðir og slæmir
atburðir, sem að einhverju leyti
eru til komnir vegna hygginda
eða heimsku okkar sjálfra, eiga
sér stað. Með því að tefla skák
getum við lært eftirfarandi:
1. Framsýni. 1 skák lærir
maður að skyggnast inn í fram-
tíðina og reyna að sjá fyrir þær
afleiðingar sem gjörðir manns
kunna að hafa í för með sér. Sá
sem teflir spyr í sífellu: „Ef ég
leik þessum leik hver verður þá
hagur minn í nýju stöðunni sem
upp kemur? Hvernig getur and-
stæðingur minn brugðist við til
að hrella mig? Hvaða aðra leiki
get ég fundið sem styrkja menn
mína og vernda mig frá sókn
andstæðingsins?
2. Heildaryfirsýn. Maður lær-
ir að líta á allt skákborðið sem
og hið tiltekna svæði þar sem
aðalátökin eiga sér stað. Maður
hugar að samvinnu og stöðu
mannanna og gerir sér grein
fyrir hættunum sem steðja að.
Maður hugar að mismunandi
möguleikum til að styrkja sam-
vinnu þeirra og rannsakar
hversu líklegar hinar ýmsu
gagnárásir andstæðingsins eru,
og hvernig best sé að snúa
vopnunum í höndum hans.
3. Varfærni. Manni lærist að
leika ekki í of miklum flýti.
Þessu markmiði er best náð
með því að fylgja ítarlega leik-
reglum skákarinnar...
Maður lærir og í skák að láta
ekki hugfallast þrátt fyrir að
núverandi ástand sé slæmt, og
venur sig á að vonast eftir hag-
stæðum möguleikum. Maður
lærir að láta ekki bugast heldur
þrauka með áframhaldandi
rannsóknum. Skák hefur að
geyma svo marga mismunandi
Áramótaheit
atburði, og rás atburðanna er
svo fjölbreytiieg, að erfiðleikar
eru oft undanfari velgengni.
Eftir vandlega íhugun uppgötv-
ast tíðum nýjar leiðir til að
komast út úr erfiðleikum sem í
fyrstu virtust óyfirstíganlegir.
Manni lærist þannig
að berjast til síðasta
blóðdropa í þeirri von
að sigur náist að lok-
um með eigin hæfni,
eða í það minnsta
með yfirsjón and-
stæðingsins. Oft
kemur það fyrir í
skák að vel-
gengni leiðir af
sér hroka og
kæru-
leysi,
og
með
því er
meiru tap-
að en unnið
var í fyrstu.
Erfiðleikar kalla á
íhugun og baráttu. Sá
sem skilur þetta lærir að gef-
ast aldrei upp þótt andstæðing-
urinn standi betur að vígi í
fyrstu, og hann lærir einnig að
einstök töp koma ekki í veg fyr-
ir endanlegan sigur.“
Áramótaheitið sem Franklin
myndi leggja til er sem sagt
augljóst: „Ég lofa að tefla
meira.“ Og hvers vegna ekki?!
Ef marka má Franklin er vart
til nokkuð betra leiðarljós í líf-
inu! í stuttu máli sagt: Skák
bætir, hressir og kætir. Fjöl-
margir aðrir en Benjamin
Franklin hafa ijallað um og
túlkað þann lærdóm sem
hægt er að draga af skák.
Sem dæmi má nefna að
löngu fyrir hans tíma
túlkuðu ýmsir kirkj-
unnar menn skáklist-
ina sem fyrirmynd
trúarlegra skoðana og
siðaboðskapar. Eitt
fyrsta rit sem
prentað var á
Vesturlönd-
um, „Li-
ber
de
moribus
Hominum
et officiis No-
bilium ac Populari-
um super iudo scacc-
horum“ (!), sem í lauslegri
þýðingu kallast „Um siði
mannanna og göfugar gjörðir
þeirra með tilliti til skákarinn-
ar“ var fyrst prentað í Utrecht í
Hollandi árið 1473. Efni ritsins
eru ýmsar siðferðilegar hug-
leiðingar byggðar á manntafli.
Talið er að ritið hafi verið meira
lesið en nokkurt annað rit á
miðöldum. Það var þýtt yfir á
fjölmörg tungumál og í áraraðir
endursamið og afskræmt af síð-
ari „höfundum" og útgefendum.
Árið 1956 var gefin út í Prag
sérstök bók með einu af endur-
sömdu ritunum sem endaði á
orðunum: „Leyfðu okkur, Jesús
Kristur, konungur vor, alltaf að
tefla með þessum hætti og síðar
að öðlast eilífa hamingju. Am-
en.“
Hvaða skák er hægt að sýna í
þessu samhengi?! Emanuel
Lasker, rétt eins og Benjamin
Franklin, sagði skáklistina
spegla lífið og að á skákborðinu
ætti sér stað „drama" freisting-
ar, sektarkenndar, átaka,
áreynslu og sigurs réttlætis-
ins...“ Við skulum sjá hvernig
réttlæti Laskers sigrar fyrsta
opinbera heimsmeistarann,
Wiihelm Steinitz, í London árið
1899 með ómótstæðilegri feg-
urð:
Hvítt: Steinitz
Svart: Lasker
1. e4 e5 2. Rc3 Rf6 3. f4 d5 4.
d3 Rc6 5. fxe5 Rxe5 6. d4 Rg6
7. exd5 Rxd5 8. Rxd5 Dxd5 9.
Rf3 Bg4 10. Be2 0-0-0 11. c3
Bd6 12. 0-0 Be8 13. h3 Bd7 14.
Rg5 Rh4 15. Rf3 Rxg2 16.
Kxg2 Bxh3+ 17. Kf2 f6 18. Hgl
g5 19. Bxg5 fxg5 20. Hxg5 De6
21. Dd3 Bf4 22. Hhl Bxg5 23.
Rxg5 Df6+ 24. Bf3 Bf5 25.
Bxh7 Dg6 26. Db5 c6 27. Da5
He7 28. Hh5 Bg4 29. Hg5 Dc2+
30. Kg3 Bxf3 og hvítur gaf, 0-
1.
B R I D G E
■
■ Þorláksson
Þrautin
N/enginn
Sagnir:
Norður Austur Suður Vestur
lhjarta pass 2 spaðar pass
é 76
* KDT42
* KD5
* KG6
N
S
é ÁKGT98
♦ GT6
* ÁDT
Auglýsendur!
Á milli jóla og nýárs koma út tvö blöð.
Nauðsynlegt er að auglýsendur veiti
athygli skilafresti auglýsinga.
Laugardaginn 28. desember kemur
blaðið út að venju. Skilafrestur auglýsinga
í það blað er til kl. 10.00 föstudaginn 27.
desember.
Priðjudaginn 51. desember (gamlárs-
dag) kemur út síðasta blað ársins.
Skilaffestur auglýsinga í það blað er til
kl. 10.00 mánudaginn 30. desember.
Við viljum vekja athygli á því að
bréfasími auglýsingadeildar er 462 2087
og er opinn allan sólarhringinn.
Starfsfólk auglfsingadeildar óskar viðskipta-
vinum sínum gleðilegra jóla með bestu
óskum umfarsceld á nfju ári.
®ctgnr-®ttmmt
Sími 800 70 80
C, R Æ N T N Ú M E R
2grönd pass 6 spaðar pass
pass pass
Útspil: tígulás
Vestur skiptir yfir í lauf eftir
að hafa átt fyrsta slaginn. Allt
veltur nú á trompíferðinni.
Hvernig spilar þú?
Samkvæmt líkum er ekki rétt
að taka ás og kóng í spaða,
þannig að spurningin er hvort
svína eigi strax eða leggja fyrst
niður spaðaás. Margir taka
fyrst spaðahámann en svína
síðan. Það er gert ef vera kynni
að vestur eigi spaðadrottningu
blanka. En sömu spilarar
gleyma að líkurnar eru mun
meiri á að einspil vesturs sé
hundur svo framarlega sem
trompið skiptist 4-1. I reynd,
þegar umsjónarmaður spilaði
spilið, var vestur með spaða-
fjarkann blankan og austur
D532. Aðeins 2 í salnum fóru
rétt í trompið.
Einfalda Bridgekerfið
Út er kominn íslenskur bækl-
ingur sem kallast Einfalda
bridgekerfið. I bæklingnum er
farið í gegnum spilareglur,
sagnir, úrspil, varnarreglur,
stigagjöf, keppnisform og fleira.
Bæklingurinn fæst m.a. í bóka-
verslunum og hjá Bridgesam-
bandi íslands. Hann kostar 499
kr. og er höfundur bæklingsins
Ilaukur Ingason.
Frá Bridgefélagi
Siglufjarðar
Lokið er tveggja kvölda fyrir-
tækjakeppni og urðu úrslit eft-
irfarandi:
1. Spariskattur 1013
stig
2. íslandsbanki og
Skeljungur 905 stig
3. -5. ÁTVR og góðir
viðskiptavinir 895
stig
- Fljót 895 stig
- Sjúkrahús og
Berg 895 stig
Einmenningur
verður haldinn
mánudaginn 30.
desember kl.
19.30 að Hótel
Læk og eru félag-
ar hvattir til að
mæta.
A 4 4
Ieinfalda
BRIDGE
(KERFIÐ
* ♦ V 4
Föstudags-
bridge BSÍ
v6ardSeLabndstvt ^rbæk^r
menningur
1996 spilaður í húsnæði BSÍ í
Reyjavík s.s. annars staðar á
landinu. 42 pör spiluðu í 2 riðl-
um og var meðalskor 216. Efstu
pör:
A-riðUl NS
1. Óli Þór Kjartansson-Garðar
Garðarsson 274
2. Jóhann Magnússon-Kristinn
Karlsson 254
3. Sturla Snæbjörnsson-Cecil
Haraldsson 248
A-riðiU AV
1. Halldór Svanbergsson-Óli
Már Guðmundsson 247
2. Þorlákur Jónsson-Sævar Þor-
björnsson 235
3. Sveinn R. Þorvaldsson-Stein-
berg Ríkarðsson 234
fyn> byrjendur f bridge.
B-riðiU NS
1. Guðmundur Sv. Hermansson-
Helgi Jóhannsson 265
2. Eyþór Hauksson-Helgi Samú-
elsson 242
3. Hermann Friðriksson-Karl
Karlsson 233
B-riðUl AV
1. Stefán Jóhannsson-Júlíus
Sigurjónsson 259
2. Magnús E. Magnússon-Stefán
Stefánsson 244
3. Sverrir Ármannsson-Ás-
mundur Pálsson 237.