Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Side 1

Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Side 1
jörður Allt bendir til morðs Fimmtíu og fimm ára gamall Hafnfirðingur, Hlöðver Sindri Aðalsteinsson, atvinnulaus en af og til starfandi sem vakt- maður um borð í skipum í Hafnar- Ijarðarhiifn, fannst látinn við veg- arkant Krísuvíkurvegar skammt frá Reykjanesbraut á sunnudags- morgun. RLR telur að áverkar á líki mannsins bendi til morðs. Hlöðver heitinn var fráskilinn en bjó að Álfaskeiði 4 í sama húsi og Árni bróðir hans. Hlöðver átti uppkomin börn með fyrrverandi konu sinni. Fyrir næstum áratug síðan brann hús þeirra bræðra og búslóðir þeirra allar. Það var um hálfellefuleytið á sunnudagsmorgun að vegfarandi kom að Hlöðveri Sindra látnum í vegkantinum á Krísuvíkurvegi. Eitt skotsár var á Hlöðveri, á handlegg, og reyndist vera eftir haglaskot. Dánarorsökin liggur hins vegar ekki fyrir, rannsókn var ekki lokið í gær, þegar blaðið fór í prentun. Árni bróðir Hlöðvers hefur tjáð RLR að hann hafi heyrt útidyra- hurð skellt að Álfaskeiði 4 um 4- leytið aðfaranótt sunnudagsins og jeppabíl bróðurins ekið á brott í kjölfarið. Nokkru síðar heyrði hann síma í íbúð bróður síns hringja án þess að svarað væri. -JBP Herra Qlafur Ragnar Grímsson er maður ársins hjá Degi-Tímanum Hann kom, sá og sigradi 1 1 1 m Wm ff j Wi w ■ ■ j siSaR; I - p j 1 f[ pj f | t- - , V - yj* ■ r , t Frá innsetningarathöfn forsetans í sumar. Mynd: GS Ráðstöfun fiskafla Umboð útgerðanna er alls ekki sjálfgefið Kemur til álita að sjómenn ráðstafi sínum hluta af afla upp á sitt einsdæmi. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags fslands, segir að það sé ekki sjálfgefið að útgerðarmenn fari með ráðstöfun afla. Hann segir það koma til álita að sjómenn ráðstafi sínum hluta af aflanum á markað og útvegsmenn sínum ef ekkert miðar í því að allur fiskur fari á markað. Þunglega horfir um gerð nýrra kjarasamninga eins og staðan er í samn- ingamálum sjó- manna og annarra launamanna, en langflestir samn- ingar eru lausir nú um áramótin. Kröfur einstakra stéttarfélaga eru sagðar hljóða uppá allt að 150% launahækkanir þegar allt er talið á sama tíma og at- vinnurekendur bjóða 3%-4% launahækkun á komandi ári. Útvegsmenn hafa alfarið hafn- að kröfum sjómanna um að all- ur afli fari á markað og því bendir margt til þess að öllu óbreyttu að enn eitt verkfallið verði reyndin á fiskiskipaflotan- um í febrúar n.k. „í samningum okkar stend- ur að útgerðarmenn selji afla í okkar umboði. Það getur vel verið að við höfum áhuga á að breyta eitthvað þessu umboði, enda ekki sjálfgefið að þeir hafi með höndum umboð til að ráð- stafa aflanum," segir Helgi Lax- dal. Hann minnir einnig á nið- urstöðu Hérðsdóms Reykjaness fyrr á árinu þess efnis að áhöfn fiskiskips er eignaraðili að sín- um hlut um leið og aflinn kem- ur um borð. Samkvæmt því á áhöfnin einnig hlut í þeim rétt- indum sem viðkomandi afli kann að skapa, þ.e. kvótanum. -grh Fatlaðir Sigrún Huld fer í keilu Hún tók þá ákvörðun sjálf að hætta núna, þar sem hún er búin að vera svo lengi í þessu,“ sagði Hrafn Magnússon, faðir hinnar fræknu sundkonu Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur, en hún hyggst nú hætta keppni eftir glæstan feril. Sigrún Huld, fræknasta íþróttakona landsins úr röðum þroskaheftra, hóf að stunda íþróttir hjá íþróttafélaginu Ösp árið 1983 og hefur verið nær ósigrandi á sundmótum hér innanlands síðan. Hennar helsta keppnisgrein er bringu- sund, en þar á hún heimsmet. Sigrún Huld hefur þrisvar verið valin íþróttamaður ársins hjá íþróttasambandi fatlaðra og árið 1992 var hún útnefnd besti íþróttamaður þroskaheftra í heiminum af Alþjóðasamtökum þoskaheftra, INAS. H.H.S. Helgi Laxdal formaður Vélstjórafélags Islands „Áhöfn er eignaraðili að sínum hlut um leið og afli kemur um borð. “ Ete»&>í$sS SKÁTA Á AKUREYRI SELUR FLUGELDA í Útsölustaðir'0^ " Lundur vA/iðjulund Storholt Oseyri M Fjölnisgata 6b □pið í dag frá kl. f I

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.