Dagur - Tíminn


Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Qupperneq 7

Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Qupperneq 7
(®agm*-'2Itnttrat Þriðjudagur 31. desember 1996 - 7 Hvaða jréttaviðburði á Norðurlandi í októbermánuði tengist þessi mynd? Jón Baldvin hættir au pólitísku tíðindi gerð- ust 22. október að Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins til 12 ára, hélt blaðamannafund þar sem hann lýsti því yfir að hann myndi ekki bjóða sig fram til formanns á næsta flokksþingi og tilnefndi Jón Baldvin Sighvat Björgvinsson sem eftirmann sinn. Jón Baldvin gaf jafnframt í skyn að hann myndi draga sig að fullu út úr pólitík þegar fram liðu stundir en hygðist þó sitja út kjörtúnabilið. í kjölfar ákvörðunarinnar hófst hörð barátta um formanns- kjör þar sem Guðmundur Árni Stefánsson og Sighvatur Björg- vinsson öttu kappi. Þegar til kom sigraði Sighvatur naumlega. Eldsumbrot í Vatnajöldi Mjög kröftugt eldgos hófst 2. október í gos- stöð norðan Grímsvatna í Vatnajökli. Eldgosið braut sér leið upp í gegnum 400-500 metra þykka íshellu og náði gosstrókurinn 5 km hæð. Aðal- lega var um gufu að ræða en einnig fylgdi öskufall • sem þó dreifðist aðeins nálægt gos- stöðvunum. Gígurinn var um einn km í þvermál og var mikill kraftur í gosinu í nokkra daga. Ljóst var að í kjölfarið myndi Skeiðarárhlaup heíjast en biðin eftir því varð lengri en jarðvís- indamenn áttu von á. Erlendir ijömiðlar sýndu þessum nátt- úruhamförum mikla athygli og gáfust margir upp á biðinni. En kraftur var í hlaupinu þegar það loksins kom. Hvellur ✓ fundi á fréttastofu Stöðvar 2 í gær neistaði milli Elínar Hirst og annarra yfirmanna". Þannig byrjar frétt Dags-Tímans frá 18. október þegar umskipti urðu á Stöð 2 og Elín Hirst á Stöð 2 hætti sem fréttastjóri. Ásakanir gengu á milh Ehnar og yfir- manna hennar og völd Jóns Ól- afssonar í fjölmiðlum voru rædd fram og aftur. Páll Magn- ússon tók við stöðu Elínar að vilja Jóns Ólafssonar. Nóvember Stórt Skeiðarárhlaup Stærsta fréttin í nóvember var tvímælalaust Skeiðar- árhlaupið sem hófst 6. nóvember. Mikið tjón varð á brúarmannvirkjum á Skeiðar- ársandi og tjónakostnaður hljóp á hundruðum mihjóna kr., enda þótt tjónið reyndist verða minna en upphaflega var reikn- að með. Vinnuflokkar Vega- gerðar ríksins fóru fljótlega á stjá og á skömmum tíma tókst þeim að ljúka bráðabirgðavið- gerðum á samgöngumannvirkj- um. Skeiðarárhlaupið hafði margvíslegar afleiðingar í för með sér. Verðhrun varð á fisk- mörkuðum á Austurlandi og samgöngur við þann landshluta fóru meira og minna úr skorð- um. Stóla varð á flugsamgöngur eða að fara norðurleiðina aust- ur, þá um Möðrudalsöræfi. Sjálfsmorð í algleymi Greint var frá niður- stöðum könnunar um tíðni sjálfsvíga á ís- landi. Rúmlega 320 manns tóku líf sitt síðasta áratug, að því er fram kom í könn- uninni. Þetta voru rúmlega fjórðungi fleiri einstaklingar en fórust í umferðarslysum á öllu þessu tímabili. Magnús Leópoldsson leysir frá slgóðunni íSíðu- múlafangelsinu. Hvaða s/cjóðu leysti hann frá? Pesember Lending í ÚA-málum ✓ kveðin lokaniðurstaða náðist snemma í desem- ber varðandi eignarhald Akureyrarbæjar á Útgerðarfé- lagi Akureyringa. Áfram mun bærinn eiga 20% í félaginu, en Sölumiðstöð hraðfyrstihúsanna keypti 125,7 millj. kr. hlut bæj- arins í ÚA á genginu 5,25 fyrir liðlega 660 mihj. kr. Þá seldi Kaupfélag Eyfirðinga sinn hlut í ÚA fyrir 544 millj. kr, en nafn- virði var 103 mhlj. kr. Álþensla Ríkisvaldið ákvað í desem- ber að draga úr fyrirhug- uðum verklegum fram- kvæmdum á næsta ári. Þetta verður gert til að mæta fyrir- sjánlegum þensluáhrifum sem skapast munu þegar farið verð- ur í byggingu álvers á Grundar- tanga, einsog allt stefnir í. Þá greindi Dagur-Tíminn frá miklu vinnuálagi starfsfólks í verslunum, sem tilheyrir jóla- kauptíðinni. Dæmi eru um allt að 19 stunda vinnudag. „Það er ekki nema eitt sem bíður þessa fólks þegar það kemur heim til sín. Það bera leggur sig og sofnar,“ sagði Magnús L. Sveinsson, formaður VR. Hvað er hér á seyði?

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.