Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1981, Page 18
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981.
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981.
18
íþróttir
íþrótt
íþrótt
íþróttir
íþrótt
19
íþrótt
íþrótt
Iþrótt
íþróttir
Stefán leikur ekki
meira með Val
—ætlar að taka sér hvfld f rá handknattleik
Stef&n Gunnarsson, handknattleiks-
maðurinn kunni úr Val, hefur ákveðið
Stef&n Gunnarsson.
örn Guðmundsson.
Öm aft-
ur til KR
KR-ingar eru mjög ánægðir
með að vera búnir að f& Hólmbert
Friðjónsson sem þjálfara og það
er mikill hugur i herbúðum þeirra.
Örn Guðmundsson, miðvallar-
spilari Vesturbæjarliðsins, sem lék
með Þór frá Akureyri sl. keppnis-
timabil, hefur ákveðið að ganga
aftur til liðs við sína gömlu félaga
og klæðast KR-búningnum næsta
sumar.
-SOS.
Tvö lið
—tvö lið niður
Örn Eiðsson var endurkjörinn
formaður Frjálsíþróttasambands
íslands á þingi þess um siðustu
helgi. Tveir menn hættu í
stjórninni, Hreinn Erlendsson og
Sigmundur Hermannsson, en i
þeirra stað voru kosnir þeir
Sigurður Helgason og Sigfús
Jónsson.
Mörg mál voru rædd á þinginu
og ýmsar breytingar gerðar á lögum
og reglum. Má þar m.a. nefna að
samþykkt var með 14 atkvæðum
gegn 12 að í deildakeppninni i
frjálsum fþróttum skuli tvö lið falla
á milli deilda og tvö koma upp í
stað eins liðs eins og veríð hefur
fram að þessu.
-klp-
að taka sér hvild frá handknattleik og
mun hann því ekki leika meira með
Valsliðinu i vetur. — Ég hafði
hreinlega ekki tíma til að standa i þessu
og var ekki tilbúinn að leggja meira á
mig, sagði Stefán i stuttu spjalli við DB
og Vísi i gærkvöldi.
Stefán sagði álagið nú mikið á
handknattleiksmönnum. — Við
æfðum 5 sinnum í viku og þá var leikið
um helgar. Það er ekki hægt til lengdar
að koma þreyttur heim úr vinnu kl.
18—19 á kvöldin og rífa sig siðan upp
til að fara á erfiðar æfingar, sagði
Stefán.
Með Stefáni hverfur einn af lit-
ríkustu handknattleiksmönnum undan-
farin ár úr handknattleiknum. -SOS.
Golfskolinn fer i gang
Golfskóli Þorvaldar Ásgeirssonar
tekur aftur til starfa nú á laugardaginn
og verður hann starfræktur i allan
vetur.
Skólinn er til húsa í íþróttahúsinu í
Garðabæ og er á laugardögum frá kl.
9.30 til 14.00. Þar kennir Þorvaldur
allan galdur golfíþróttarinnar og þar er
einnig æfingaaðstaða fyrir lengra
komna. Nánari upplýsingar um
skólann og námskeiðin eru gefnar í
síma 14310 .
nvern sinn f ineur
for hann a kostum — lek við hvern sinn
fingur og skoraði 24 stig.
Petur fekk mjög goða doma fyrir
leik sinn og var honum hrósað mikið
fyrír útsjónarsaman leik og samleik.
-sos.
- skoraði 24 stig gegn Seattle Supersonic
Það er skammt stórra
högga á milli hjá körfuknatt-
leiksmanninum snjalla Pétri
Guðmundssyni, sem leikur
með Portland Trail Blazer í
IMBA-atvinnudeildinni í
Bandarikjunum. Pétur átti
mjög góðan leik gegn Chica-
go á sunnudaginn eins og við
sögðum frá f gœr.
Pétur var aftur í sviðsljósinu á
mánudagskvöldið þegar Portland Trail
Blazer lék gegn Seattle Supersonic. Þá
Pétur Guðmundsson sést hér í leik
með Portland.
Þær kínversku fóru
upp á „háa-cið”
— þegar ein þeirra fékk ekki hæstu einkunn á heimsmeistaramótinuí Moskvu
Eins og við var búist röðuðu
sovésku keppendurnir sér í efstu þrepin
á verðlaunapallinum á heimsmeistara-
mótinu 1 fimleikum karla og kvenna
sem lauk i Moskvu um siðustu helgi.
Sovétmenn sigruðu í bæði
liðakeppni karla og kvenna og í
keppni einstaklinganna áttu Sovétrikin
sigurvegara í flestum greinum.
Kínverjar voru nú með í fyrsta sinn í
HM í fimleikum og létu mikið að sér
kveða, en voru þó í lokin kærðir fyrir
dónalega framkomu.
Heimsmeistari karla varð Yuri
Korolev, Sovétríkjunum. Hann hlaut
samtals 118,375 stig en landi hans
Bogdan Maktus var með 118,350 stig.
Japaninn Koji Gushiken tók silfrið
með 117,975 stigum, en Kínverjinn
Tong Fei varð fjórði með samtals
117,375 stig.
Heimsmeistarinn 1 fimleikum karla, Youri Korolev, 1 æfingum á hringjum, en þar fékk hann hæstu einkunn
á heimsmeistaramótinu i Moskvu.
21 árs landsliðið
í knattspy rnu
í Evrópukeppnina?
Allt bendir nú til að landslið
íslands i knattspyrnu — skipað
leikmönnum 21 árs og yngri, taki þátt
í Evrópukeppni landsliða fyrir
þennan aldursflokk 1982-’83.
Landsliðið 21 árs og yngri mun
leika með sömu þjóðum í riðli og A-
landsliöið leikur með í Evrópukeppni
landsliða.
Ef þetta verður ákveðið, á árs-
þingi KSÍ, þá hefur verið stigið stórt
skref i sambandi við að brúa bilið á
milli unglingalandsliösins oe
landsliðsins, þannig að hinir ungu og
efnilegu leikmenn okkar fá góða
reynslu áður en þeir byrja a leika með
A-landsliðinu.
-sos.
Á ýmsu gekk í ensku deildabikarkeppninni:
Ray Kennedy rekinn
útafáHi
þegar Liverpool mátti hrósa happi
„Rauði herinn” frá Liverpool mátti hrósa happi, að sleppa með jafn-
tefli (0—0) gegn Arsenal á Highbury í London í gærkvöldi þegar
liðin mættust i 16-Uða úrsUtum ensku deiidabikarkeppninnar. Leik-
menn Liverpool léku aðeins 10 inn á í 50 min., þar sem Ray Kenne-
dy, fyrrum leikmaður Arsenal, var rekinn af leikvelU. Dómarinn,
Alan Seville frá Birmingham, rak hann af veUi fyrir brot á Peter
Nicholas.
Eftir það lék Liverpool með aðeins
einn mann i sókn og leikmenn Arsenal,
sem léku mjög vel, voru nær látlaust í
sókn en þeim tókst ekki aðkoma knett-
inum fram hjá Bruce Grobbelaar,
markverði Liverpool, sem varði hvað
eftir annað mjög vel.
Þegar 4 mín. voru til leiksloka skeði
umdeilt atvik — leikmenn Arsenal
vildu fá vítaspyrnu þegar Grobbelaar
hljóp út á móti Graham Rix og felldi
hann. Dómarinn dæmdi ekki víta-
spyrnu — færði brotið út á vítateigs-
linuna.
Tveir útaf
Ray Kennedy var ekki eini leik-
Watford-QPR
Wigan-Aston Villa
4—1
1—2
George
Best til
Middles-
brdugh
maðurinn sem var rekinn af leikvelli.
Paul Allen (West Ham) og Ally Brown
(WBA) voru reknir af leikvelli þegar
WBA stöðvaði sigurgöngu „Hamm-
ers” á Upton Park — 0—1. Þetta var
aukaleikur liðanna í deildabikarkeppn-
inni og mætir Albion Crystal Palace í
16-liðaúrslitum.
Leikmenn West Ham áttu nær allan
leikinn og léku þeir Trevor Brooking og
Alan Devonshire mjög vel. Sá leik-
maður sem kom í veg fyrir sigur
„Hammers” var Mark Grew, mark-
vöröur Albion, sem átti stórleik. Það
var blökkumaðurinn Cyrille Regis sem
skoraði sigurmark Albion 6 mín. fyrir
leikslok eftir varnarmistök Alvin
Martin sem misreiknaði sendingu Steve
| MacKenzie.
Úrslit urðu annars þessi í ensku
I deildabikarkeppninni i gærkvöldi:
3. umferð:
West Ham-WBA 0—1
16-liða úrslit:
Arsenal-Liverpool 0—0
Leikmenn Wigan voru ekki búnir að
tapa leik á Springfield Park í þrjá mán-
uði þegar þeir fengu Englandsmeistar-
ana í heimsókn. Það var ekki fyrr en á
87. mín. að Aston Villa náði að tryggja
sér sigur. Gary Shaw átti þá fyrirgjöf
fyrir mark Wigan þar sem Peter Withe
var á réttum stað og skoraði hann með
þrumuskoti. Peter Houghton skoraði
♦ mark Wigan af 15 m færi á 9. mín. en
Gordon Cowans náði að jafna úr víta-
spyrnu á 55. mín.
Les Taylor skoraði 2 mörk fyrir Wat-
ford en þeir Gerry Armstrong og
Luther Blissett skoruðu hin mörkin.
Simon Stainrod skoraði fyrir QPR.
-sos.
Ray Kennedy var í sviðsljósinu.
Hankin
til Arsenal
Ray Hankin, fyrrum leikmaður
Leeds, lék sinn fyrsta leik með
Arsenal gegn Liverpool í gær-
kvöldi. Arsenal keypti Hankin á
300 þús. pund frá Vancouver
Whitecaps. -SOS.
Landsliðsþjálfari
Finna var rekinn
— þegar hann reyndi að smygla lyfjum fyrir fínnskt f r jálsíþróttafólk
Finnski landsliðsþjálfarinn i frjáls-
um iþróttum, Seppo Simola. hefur
verið rekinn úr starfi. Var það gert
eftir að upp komst að hann hafði
smyglað „anabole steroider” inn til
Finnlands þegar hann var að koma
með finnska landsliðið úr keppnis-
ferð á dögunum.
Þetta er annað „dópmálið” sem
upp kemst i íþróttaheiminum á
Norðurlöndunum á nokkrum
dögum. Sænski kraftlyftingamaður-
inn Ray Yvander var tekinn með um
1000 piilur við komuna frá heims-
meistaramótinu í Kalkútta og á hann
nú yfir höfði sér minnst tveggja ára
keppnisbann.
Svíar eru svo með annað stórmál á
sama sviði. Þeirra skærasta stjarna í
frjálsum íþróttum, Linda Haglund,
neytti örvandi lyfja á Sænska meist-
aramótinu um miðjan ágúst. Reynt
var að þagga það mál niður, en tókst
ekki.
Svíar skella allri skuldinni í því
máli á hinn finnska þjálfara hlaupa-
drottningarinnar, Pertti Helin. Hún
hafi ekki vitað neitt um hvað hann
var að gefa henni. Heldur þykir það
nú þunn afsökun og varla að hún
sleppi við keppnisbann fyrir það.
-klp-
Hin 15 ára gamla Olga Bicherova,
sem að sjálfsögðu er sovésk, sigraði 1
keppni kvenfólksins. Þar var fyrirfram
álitið að ólympíumeistarinn Yelena
Davidova yrði meistari eftir
frammistöðu hennar í siðustu mótum
— hæði utan og innan Sovétríkjanna.
En hún missti af „gullinu” þegar hún
datt er hún var að koma sér fyrir á
slánni í upphafi sýningar sinnar þar.
Fékk hún ekki nema 9,35 í einkunn
fyrir þá grein og varð því að láta sér
þriðju verðlaunin nægja í þetta sinn.
Baráttan stóð eftir það á milli Olgu
og hinnar tvítugu Mariu Filatovu og
hafði Olga sigur í síðustu greinunum.
Kínverskar stúlkur vöktu mikla athygli
á mótinu sérstaklega þó síðasta daginn
en þá fór allt kinverska kvennaliðið
uppá „háa-cið”, og vel það!!
Ástæðan var sú að dómararnir gáfu
þá einni þeirra, Ma Yanhong „aðeins”
9,9 í einkunn fyrir eina æfingu.
Kínverjarnir vildu meina að hún hefði
átt að fá 10. Mótmæltu þeir því með
að mæta ekki við verðlaunaaf-
hendinguna þar sem Ma Yanhong átti
að taka við silfurverðlaunum en hin
austur-þýska Maxi Gnauck við gullinu.
Voru Kínverjarnir kærðir fyrir þessa
framkomu til alþjóða fimleika-
sambandsins.
-klp-
George Best.
Knattspyrnukappinn George Best I
mun að öllum líkindum ganga til liðs I
við Middlesbrough og leika með liðinu I
í vetur. Samningaviðræður standa nú |
yfir á milli Best og „Boro”.
Það er greinilegt að George Best I
hefur sett stefnuna á HM-keppnina á
Spáni næsta sumar. Ætlar sér að leika
með „Boro” í vetur til að komast í[
góða keppnisæfingu — og freista þess
að vera valinn í landsliðshóp N-1
írlands.
-SOS. I
Dundee náði
jafntefli
íBelgíu
Dundee United tryggði sér
jafntefli (0—0) gegn Winlerslag i
16-liða úrslitum UEFA-bikar-
keppninnar í knattsdpyrnu, þegar
liðin léku fyrri leik sinn i Belgiu i
gærkvöldi.
Stenmark
jvill hægja
a feroinni
Skíðakóngurinn Ingemar Stenmark
ihugar nú mjög að taka ekki þátt i
nema nokkrum keppnum á World Cup
í alpagreinum á skíðum t vetur.
Með þvi vill hann mótmæla stigagjöf
keppninnar sem er þannig að hann á
litla sem enga möguleika á að sigra þar
sem hann tekur aldrei þátt í brun-
keppni á World Cup. Segir hann og
fleiri að þessar reglur hafi aðeins verið
settar til að hann geti ekki unnið
■framar.
Stenmark ætlar sér stóra hluti á
I heimstaramótinu í Schladming í
Austurríki i vetur og það er líka ein af
ástæðunum fyrir því að hann ihugar nú
að minnka þátttöku í World Cup. Þá
fær hann betri tíma til að æfa 1 Schlad-
ming en þar kann hann mjög vel við
] sig.
-klp-
Enginn snjór í Val DTsere
Stjórnendur heimsbikarkeppninn-
ar I alpagreinum á skiðum eiga nú við
mikið vandamál að striða en það er
snjóleysi,
Ekki einn einasti staður í Mið-
Evrópu er hæfur til að halda heims-
bikarkeppni, eða raunar neina aðra
skíðakeppni um þessar mundir, því
þar er engan snjó að hafa.
í Val D’Isere i Frakklandi þar sem
fyrsta heimsbikarkeppnin á að vera
nú í vikúnni eru allar hlíðar baðaðar
haustblómum og þar hefur ekki eitt
einasta snjókorn fallið á þessu hausti.