Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Page 5
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981. 5 Sérstæð ástamál Þær kvikmyndastjörnur sem Chaplin réð til starfa fyrir sig urðu að takast á hendur tvö aðalhlutverk, ánnað fyrir framan kvikmyndavélarnar og hitt i rúmi Chaplins. Ein þeirra var Lita Grey sem var aðeins sex ára gömul þegar áhugi Chaplins á henni vaknaði. Hún hlaut barnastjörnuuppeldi undir ástúðlegri handleiðslu Chaplins. Það var þó ekki fyrr en þegar kvikmyndun Gullæðisins stóð yfir, en þá var Lita orðin 15 ára, að Chaplin reyndi fyrst til við hana í hótelherbergi sínu. „Líkami hans engdist sundur og saman þegar hann þrýsti sér upp að mér. Hann kyssti mig á munninn og hálsinn og fór höndum um allan likama minn. í fyrstu var ég skelfingu lostin en allur ótti vék brátt úr vegi og ég fylltist ógeði á manninum og því sem hann var að gera. Ei varaði þetta hugarástand Litu lengi. Chaplin hélt áfram að dekra við hana og nú fór hann að koma fram við hana eins og fullorðna konu. Hann fór með hana á alla þekktustu veitinga- og skemmtistaði i Hollywood. Hann gætti þess þó vandlega að hafa alltaf í för með sér frú Thelmu Morgan, sem velsæmisvörð (hún var honum oft innan handar þegar hann þurfti að fleka smástelpur). Þá þurfti hann ekki að óttast að grunsemdir vöknuðu hjá móður Litu um hvað fyrir honum vekti. Á þessum ferðum kynnti hann Litu sem vinkonu sína fyrir öllu fyrir- fólkinu í Hollywood. Og þar með var björninn unninn. Þar kom að Lita missti meydóminn á gólfinu í gufubaðstofu Chaplins. Þrátt fyrir að skötuhjúin gerðu litið annað en að böðlast í bólinu næstu mánuði þá leið hálft ár áður en Lita fékk notið einhverrar fullnægingar í hafði hann haft fimm ástkonur. Hann hafði ógnað Litu með skammbyssu oftar en einu sinni. Hann hafði reynt að fá Litu til þess að taka þátt í ásta- leikjum með sér og einni af ástkonun- um. Hann hafði vakið máls á því við hana að hann langaði til þess að eiga við hana samfarir að viðstöddum á- horfendum. Einnig hæddi hann hana í viðurvist vina sinna fyrir að vilja ekki eiga við sig samfarir á annan hátt en henni þætti eðlilegur. Hjónakornin voru víst ekki á einu máli um hvað teldist eðlilegt athæfi í ástaleikjum. Þriðja hjónaband Chaplins er sveipað leyndarhjúpi. Hann kynntist leikkonunni Paulette Goodard þegar hún var tvitug. Því er haldið fram að þau hafi verið gefin saman 1934 um borð í snekkju Chaplins, en hann hafi síðan greitt skipstjóranum dágóða fúlgu fyrir að fjarlægja þá síðu úr sjóferðabókinni þar sem víglsan var skráð. Má draga þá ályktun að ekki hafi Chaplin ætlað sér mikið með Paulette í upphafi kynna þeirra annað en eiga við hana mök. Síðar hélt Chaplin því fram að þau hefðu verið gefin saman 1936. Enn einu sinni mis- tókst Chaplin að aðgreina kvikmynda- framleiðandann og eiginmanninn. Annað varð að víkja. Hann skildi við Paulette Goddard. 1943 kynntis Chaplin Oona O’Neill, 17 ára gamalli dóttur leikritaskáldsins, Eugene O’Neill. Samband þeirra varð brátt mjög náið og í júni 1943 varð hún fjórða og síðasta eiginkona Chaplins. Ekki varð upphaf hjónabandsins neinn dans á rósum. Smástirni eitt, Joan Barry, sem Chaplin hafði staðið í ást- arsambandi við höfðaði faðernismál á hendur honum. Þar sem í ljós kom að samförum þeirra. Hún var sifellt að nauða í Chaplin til þess að fá hann til þess að nota verjur en hann tók það ekki í mál. Sagði að þær eyðilegðu allt hið fagra í samræði þeirra. Það hefði því ekki átt að koma honum á óvart þegar Lita var orðin barnshafandi áður en ár var liðið frá upphafi samfara þeirra. Hún var 16 ára, hann 35. Chaplin rann kalt vatn milli skinns og hörunds við fréttina. Hann stakk upp á fóstureyðingu en Lita þverneitaði. Þá bauð hann henni 20.000$ ef hún vildi ganga að eiga einhvern annan mann. Enn neitaði Lita. Chaplin átti ekki margra kosta völ. Með málshöfðun vofandi yfir höfði sér í faðernis- og jafnvel nauðgunarmáli, gekkst hann inn á að kvænast Litu. Ekki virtist hann þó vera alveg úrkula vonar um að losna við Litu þvi að á leiðinni frá Mexico, þar sem þau giftu sig, stakk hann upp á því við barnshafandi eiginkonu sína að hún fremdi sjálfsmorð með því að stökkva af lestinni. Einhvern veginn tókst Chaplin að aðskilja ást og kynlíf. Þvi þó hann lýsti því yfir að hann fyrirliti Litu voru samfarir þeirra með ágætum. Tveimur árum og tveimur barnsfæðingum síðar var þó Litu orðið nóg boðið. Hún sótti um skilnað. Málsskjölin sem hún lagði fram í réttinum og greindi ástæður Litu til skilnaðarumsóknarinnar voru seld á götum úti. Verðið var 25 cent og ritið rifið út. í því var að finna ýmsar upplýsingar sem voru ekki beint meðmæli með Chaplin sem eigin- manni. Á þessu tveggja ára tímabili Chaplin hafði greitt henni fé til þess að koma henni í burtu var honum dæmt óborið barnið. Þegar svo barnið fæddist kom í ljós með blóðprufu að Chaplin var ekki faðir þess og því sýknaður en dómurinn um meðlags- greiðslur látinn standa óhaggaður. gengu mjög nærri ákærandinn mjög Þessi réttarhöld Chaplin og var óvæginn við hann í framhaldi hófust verulegar af réttarhöldunum ofsóknir á hendur Chaplin og þar fóru fremstir banda- rískir stjórnmálamenn og bandariska pressan. Honum var lýst sem kommúnista og siðleysingja og var að lokum flæmdur úr landi eins og áður er lýst. Chaplin og Oona settust að í Vevey i Sviss og lifðu þar hamingjusömu fjölskyldulífi. Chaplin lýsti því yfir oft- ar en einu sinni að ef honum hefði hlotnast sú hamingja að kynnast Oonu, eða konu eins og henni, fyrr á lífs- leiðini þá hefðu aldrei komið upp nein vandræði í sambandi við kvennamál. Allt sitt líf hefði hann verið að leita að og bíða eftir þessari einu konu án þess að gera sér það ljóst. Áður en Chaplin var allur höfðu þeim hjónum, fæðst átta börn, hið síðasta er Chaplin var á áttræðisaldri. Lokaorð Engin listgrein er auðlærð. Samfarir eru háþróuð listgrein sem þarf að leggja verulega rækt við ef hún á að vera sönn og þjóna einhverjum tilgangi. -Chaplin. Umboð á Akureyri: Sigurður Valdimarsson öseyri 8 - Simi 96-22520 Ingvar Helgason Vonarlandí iSogamýri 6 sími 33560 Varahlutaversluiv Rauðageröi Símar: 84510 & 84511 Heimilistæki hf. hafa til sölu jólaseríur frá kr. 145_ og eilífðarjólatré frá kr. 290- Það hefur aldrei verið fjölbreyttara úrval af jólaljósaseríum hjá Heimilistækjum hf., einfaldar, skrautlegar, fallegar. Jólatré úr varanlegum gerfiefnum, sem endast heila eilífð - 50cm, 130cm, 150cm, 170cm og 180cm. Tré - ljós - gjafir fyrir alla fjölskylduna Komið, skoðið, kaupið. Heimilistæki hf. Sætúni - Hafnarstræti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.