Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Side 9
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981.
9
Menning Menning Menning Menning
VEX ÞEGAR AF ER TÐUÐ
Jón BJamason frá Garflsvfk:
BÆNDUR SEGJA ALLT GOTT
Bókaútgófan örn og öriygur 1981.
Sá léttvígi og frjálslegi frásagnar-
maður, Jón Bjarnason frá Garðsvík á
austurströnd Eyjafjarðar en þó í Þing-
eyjarsýslu (eins og kenna má) reifaði
spurninguna: Hvað segja bændur nú? í
allvænni bók í fyrra. Hann virðist ekki
hafa fengið svör við henni frá öðrum og
vindur sér því í það að svara henni
sjálfur með annarri bók undir heitinu:
Bændur segja allt gott. Raunar er þó
alls ekki úr þeirri gátu leyst, hvor
bókin er svar og hvor spurning
og skiptir ekki máli. Þótt einar þrjár
bækur hefðu nú átt að geta létt frá-
sagnarþrýstinginn, eru þess satt að
segja engin augljós merki þegar líða
tekur á þessa síðustu bók að loftið sé
allt út þessum gunnreifa sögumanni —
og þó hafði hann reynt áður að tappa
svolítið af sér með tveimur kveðskapar-
bókum sem hann nefndi með nokkrum
rétti Þingeyskt loft og Meira loft. Það
hefur sannast á Jóni, að minningar
aldraðra manna liggja í lögum og þær
eru ekki þeirrar náttúru sem skilgreind
er í málshættinum, að eyðist það sem
af er tekið. Þær eru eins og fyrirbærið
í Fróðárundrum, vaxa eftir því sem á
er saxað og eflaust meira að segja
stundum. Þetta finnst mér koma vel
fram í þessari síðustu minningabók
Jóns frá Garðsvík. Það er rétt eins og
hann hafi þar af meiru að taka en
nokkru sinni fyrr. Ef til vill eru
Aliur akstur
krefst 1
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur vlð
aðstæður sem þessar
_____JXERÐAB______
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEC
FÝRIR ALLA
mÉUMFERÐAR
Vráð
vistirnar heldur sundurleitari og minna
af hverri ögninni en því fjölbreyttari,
efnið margþættara og engu síður
girnilegt en það sem fram var reitt i
fyrri bókunum tveimur. Ég gæti meira
að segja trúað því að þarna væru ýmsir
Bókmenntir
Andrés
Krístjánsson
smámunir, sem tækju fyrri frásögnum
fram sem brosgjafar. Og vísunum
hefurekkifækkað.
Jón er liðlegur og skemmtinn
sögumaður, lætur ýmislegt fjúka um
sjálfan sig og reynir að vera ekki
hörundsár en ætlast til að aðrir séu það
ekki heldur. Hann lætur því marga
sneiðina flakka um vini sína og ná-
granna, er svolítið kerskinn við þá en
aldrei grályndur. Gamansögurnar
flögra um alla bókina. Hún morar af
þeim. Höfundi finnst sýnilega að þær
skipti mestu máli og hirðir minna um
að raða þeim saman i mynstur, né öðru
frásagnarefni sínu. Þess vegna veit
maður aldrei hvað kemur næst. En það
eykur aðeins forvitnina um það, hvað
sé á bak við næsta leiti, — þ.e. á næstu
blaðsíðu. Jón frá Garðsvík er og hefur
augsýnilega alla sína tíð verið góður
fuiltrúi þeirrar sagna- og vísna-
skemmtunar sem blómgast hefur af
djúpum rótum í íslenskum sveitum
langa hríð og er engan veginn dauð úr
öllum æðum enn.
En frásagnir Jóns í þessum bókum
eru engan veginn allar gamburmál.
Alvaran fer þar ekki heldur hjá garði
og gamanmálin eiga sér oftast tvær
hliðar. Hugur Jóns hitnar við
ranglæti og harma og sambúð hans með
olnbogabörnum og lífsraunafólki ann
sér engra undanbragða. Þessi siðasta
bók er engu síður notalegur lestur og
hýrlegur vökuvinur en fyrri bækur
hans og glettnir bændur eins og Jón
segja ætíð allt gott. Bókarnafnið segir
svo sem ekkert og þó meira en nóg, og
annað heiti hæfði varla betur.
Andrés Kristjánsson.
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar og gögn liggja frammi hjá
undirbúningsfélaginu, að Vatnsnesvegi 14, Keflavík,
sími 92—3885 og í Iðnaðarráðuneytinu, Arnarhvoli,
Reykjavík.
Tækniþekkingu, orku, hráefni, landrými og
vandaðan undirbúning, svo sem tilraunavinnslu.
Allt er þetta nú fyrir hendi.
Það sem vantar er ÞINN stuðningur.
Hvaö færöþú íyrir þinn hlut?
Kaupirðu hlut í Sjóefnavinnslunni hf. gerist þú
þátttakandi í mikilvægu brautryðjendastarfi á vett-
vangi alíslensks iðnaðar.
Auk þess eignast þú hlut í framtíðarfýrirtæki
sem á mikla möguleika í vinnslu ýmissa kemiskra efna
auk saltvinnslunnar.
Athugaðu málið. Þinn hagur — þjóðarhagur.
SJÓEPNAMNNSLAN HP. -HLUlMJMlTBOÐ
StofnfundurI981
I samræmi við ákvæði laga nr. 62/1981 um sjó-
efnavinnslu á Reykjanesi, er hér með auglýst almennt
hlutafjárútboð í Sjóefnavinnslunni hf., en stofnfundur
þess félags verður haldinn laugardaginn 12. desember
1981 í félagsheimilinu Stapa, Njarðvík kl. 16 (hlut-
hafar undirbúningsfélags athugið að aðalfundur
félagsins verður kl. 14 sama dag í Stapa).
LáfangL- Smilljómrkr.
Með fyrsta áfanga verksmiðjunnar er gert ráð
fyrir 8.000 tonna saltframleiðslu á ári.
Nú er boðið út hlutafé vegna hans að fjárhæð
5 milljónir króna (lágmarkshlutur 1.000 kr.) til við-
bótar hlutafé Undirbúningsfélags saltverksmiðju á
Reykjanesi hf., en stefnt er að samruma félaganna við
stofnun Sjóefnavinnslunnar hf.
Heildarhlutafé 4&,5xmiyónirkr.
Heildarhlutafé Sjóefnavinnslunnar hf. verður
42.5 milljónir króna, miðað við verðlag í maí s.l. og
er þá gert ráð fyrir verksmiðju er framleiði á ári 40.000
tonn salts, 9.000 tonn kalsíum klóríð, 4.000 tonn kalí,
ásamt brómi, saltsýru og vítissóda.
Gjalddagar
Hlutafé má greiða með 3 jöfnum greiðslum
á 3ja mánaða fresti, en vextir reiknast frá 1. apríl
1982 á hlutafé sem greiðist eftir þann tíma.
w