Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Page 14
14 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981. „MíMi og neytendur þeirra gera sínar athugasemdir Alls konar auglýsingastarfsemi hef- ur riðið húsum í henni veröld undan- farin ár og fer ört vaxandi. í máli al- mennings má greina viss þreytumerki við þessari starfsemi og nægir þar að nefna þau harmakvein sem menn reka jafnan upp þegar auglýsingar sjón- varpsins birtast sjónum þeirra á síð- kvöldum. Nú hin síðari ár hefur það færst í vöxt að einstaklingar auglýsa sjálfa sig og sín persónulegu afrek á síðum dag- Iblaða og jafnvel í sjónvarpi og útvarpi. Er þar að sjálfsögðu átt við þá dáika 'síðdegisblaðanna sem bera yfir- skriftina „einkamál” og raunar einnig ;þá er auglýsa sig í nafni prófkjörs einhvers stjórnmálaflokks. ! Við ákváðum á dögunum að slá þessu upp í grín og fá nokkra „meðalljóna” úti í bæ til að auglýsa sig og sín áhugamál og fengum nokkra neytendur þeirra til að gera nokkrar athugasemdir við hátterni þeirra. Árangurinn birtist hér á eftir. SER/SV. Halldór Guðmundsson Fýrst kom Snorra-Edda... Nú erþaó Vilt þú liíandi jólatré? Þá kaupir þú Jóla-Eddu. Þú þarít ekki út í kuldann að velja jólatré. Jóla-Edda kemur til þín! í töivuvœddum heimi er Jóla-Edda það nýjasta. Jóla-Edda syngur lögin. Hún snýr sér í hringi. (þá þurfið þið ekki að ganga lengur). Jóla-Edda talar við þig, þá leiðist þór ekki ájólunum. Og Jóla-Edda hlœr. Jóla-Edda er sannkallaður jólaglaðningur. VINNUR VEL SÍN VERK Halldór er í alla staði prýðispiltur. Það verður ekki sagt að mikið fari fyrir honum dags daglega og ekki verður sagt að hann stundi eigið auglýsingastarf sér til framdráttar. Hann virðist vinnusamur og vinnur þau verk vel sem hann tekur að sér, hljóðlega og varfærnislega. Halldór á mjög auðvelt með að ná trúnaði og trausti þeirra manna er með honum starfa og til hans þekkja. Hann hefur vit á því að fara með fé viðskiptavina sinna og það virðist einkenna vinnustað hans. Það er hægt að segja að mottó Halldórs geti verið eitthvað á þessa leið: Auglýsingar eru ekki til einungis aug- lýsinganna vegna heldur til þess að skila árangri. Og þessu mottói heldur Halldór án allrar sýndarmennsku. Halldór hefur einstaklega gott vald á islensku máli og getur jafnvel sett saman vísur samkvæmt virðuleg- ustu bragreglum. Spurningin er síðan sú hvort upphafleg menntun hans sem tré- smiðs valdi því að hann kann vel að fella hluti saman og negla þá siðan fasta. -neytandinn. Hló hún dillandi hlátrí EDDU Þegar sá er þetta ritar sá Eddu Andrésdóttur í fyrsta sinn fyrir mörg- um árum hló hún dillandi hlátri um leið og hún kynnti sig. Þá var hún Edda að stfga sín fyrstu skref sem blaðamaður á slðdegisblaði sem hét Vísir. Allar götur síðan hefur verið stutt i brosið og hláturinn hjá Eddu þegarvrið höfum sést. Það fólk sem á þennan hátt ber með sér smitandi kæti og lífsgleði á að verðlauna. Nær væri að það fengi orðu frá forsetanum heldur en ein- hverjir embættismenn sem krossaðir eru fyrir það eitt að hafa sinnt sínum störfum án þess að verða uppvísir að stórum skandal. En auðvitað er það svo um Eddu að hún á sínar alvörustundir eins og aðrir. Sérstaklega hættir henni til að fela brosið jsegar hún þarf að taka stórar ákvarðanir. Þá tvístígur hún og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hún ber málin undir fólk og fær hinar og þessar ábendingar, hristir síðan koll- inn og kveður hlæjandi. Svo tekur hún auðvitað ákvörðun upp á eigin spýturfyrir rest. Bágt á ég með að ímynda mér Eddu í hlutverki kvenréttindakonu. Karlmenn eru ákaflega „svag” fyrir yndisþokka stúlkunnar og slást um að bera hana á höndum sér. Sumir misskilja brosmildi Eddu og halda að hún sé auðveld bráð en hún Edda fer eigin götur og lætur ekki plata sig svo auðveldlega. Sagt er að hún hafi valdið ófáum karlmönnum andvöku- nóttum. í fáum orðum sagt er Edda Andrésdóttir glaðlynd dugnaðarkona sem hefir meiri hæfileika en margan grunar. Megi hún halda áfram sínum létta hlátri um ókomna framtið. Edda Andrésdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.