Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Qupperneq 23
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981.
23
Menning
Menning
Bókmenntir
mótvægi við heimilislífið. Kennarinn
herur örvandi áhrif á krakkana og er
skilningsríkur án þess að vera hlut-
tekningarsamur um of, því hann
hefur kimnigáfu. Krakkarnir eru af
holdi og blóði, eldhressir og nútíma-
legir. I samskiptum Polla við skólafé-
lagana kemur í ljós hve hann er ákaf-
lega viðkvæmur gagnvart ástandinu
heima hjá sér.
Honum verður meira en lítið illt
við þegar Eva hrópar yfír krakkana
— hvort mamma hans sé ekki á
Spáni. Hvað er hún að kjafta? Hann
verður æfur og ræðst á hana með of-
forsi. Seinna urðu þau vinir. En það
er athyglisvert að Polla er ekki stritt
með drykkjuskap pabbans, drykkja
er komin í tísku í þjóðfélaginu. Hitt
er miklu sárara þegar mamman
virðist ekki vilja sjá drenginn sinn
framar og fer bara til Spánar í
skemmtireisu.
Raunsæ saga sem
skemmtir allri fjölskyldunni
Persónusköpun höfundar er einkar
lifandi. Hann dregur fyrst upp útlits-
lýsingu af viðkomandi og gerir svo
persónuna sprelllifandi í einkar hag-
anlegum samtölum. Persónurnar tala
mál samtímans, sem tilheyrir vissum
aldurshópum og vissum stéttum.
Pabbi, mamma, Geiri Pje og fleiri
eru ómenntað alþýðufólk (þó aldrei
megi tala um stéttarmismun hér á
landi er það eins og hver önnur della)
— Þau hafa engan áhuga á , .finkúlt-
úr”, lesa íþróttasiðu Visis, hlusta á
popp, fá sér í glas, fara á völlinn að
horfa á fótbolta. Þess á milli cr það
alltafaðpuða.
Sagan er vel upp byggð, dramatisk
í hæsta máta, því hér er háð alvöru-
barátta fyrir lífinu, barátta sem mörg
islensk börn heyja nú á sínum heim-
ilum. Höfundur er glöggur á mannleg
samskipti og sviðsetur vel. Fólkið í
sðgum hans er ekkert englafólk, það
er breyskt en það hefur sínar góðu
hliðar.
Polli þroskast í sögunni og verður
sá sem með dugnaði sínum og áræði
og ást á foreldrum sínum visar þeim
veginn út úr vandanum.
Þessi saga mun öllum börnum
kærkomin og þeim fullorðnum, sem
eru fyrir börn.
Rannveig G. Ágústsdóttir.
Krakkaraf
hokli og blóði
Andrés Indriðason:
POLLI ER EKKERT BLAVATN
Mél Ofl msnnlng, Raykjavh 1981.203 bls.
Sagan segir frá drengnum Polla,
tíu ára, og fjölskyldu hans. Strax í
upphafi sögu er lesandi hrifinn með í
ferðalag litils drengs að heiman í
stórum vörubíl með ókunnum bíl-
stjóra. Samtal bílstjórans og Polla
fræðir lesanda um hann sjálfan og
fjölskyldu hans.
Faðirinn er leigubílstjóri og móðir-
in hárgreiðslukona. Bæði stunduðu
þau handbolta hér áður fyrr, Valsar-
ar. Eru nú um þritugt. Polli á eina
systur, fimm ára. Einhver vandræði
eru i hjónabandinu. Mamma er
nýkomin frá Spáni þar sem hún var
ein á ferð með börnin sín meðan
pabbinn var á stanslausu fylliríi
heima.
Drengurinn gætir vandlega þessa
leyndarmáls fyrir bílstjóranum og er
illa við nærgöngular spurningar
hans. Enn verr er honum við það
þegar hann fer að segja sögur af
pabba hans og er þá fljótur að koma
sér út úr bílnum. — þetta kvöld
kemur hann seint heim eftir ævin-
týralega ferð um miðbæinn og höfn-
ina. Heima hafði enginn saknað hans
að því er virðist. Rifrildi foreldranna
hafði endað með því að mamman
rauk að heiman og tók dótturina með
sér. Hún hafði ekki í hyggju að koma
aftur i bráð.
Menningararfurinn flækist
ekki fyrir
Sagan skeður í nútímanum og for-
eldrar Polla eru dæmigert islenskt
alþýðufólk, fætt og uppalið á vel-
megunarárum eftirstríðsáranna.
Menningararfur forfeðranna er
ekkert að flækjast fyrir þeim og
veldur þeim hvorki heilabrotum né
samviskubiti. Þau verða að bjarga sér
eins og best gengur. Hann ekur leigu-
bíl um nætur og selur smyglaðan bjór
og vín, sem hann fær hjá vini sínum
Geira Pje, vélstjóra, serm er í sigling-
um milli landa. Hún vinnur á hár-
greiðslustofu allan daginn og greiðir
svo kellingum úti í bæ á kvöldin í
aukavinnu. En nú er hún sem sagt
farin að heiman. síðar fór hún til
Spánar þar sem hún ætlaði að búa
hjá vinkonu sinni íslenskri, sem „var
gift þessum fína manni þarna úti,
honum Pablo.” (80)
Við vitum lítið af mömmunni nema i
gegnum bréf sem þeiru Polla fer á
milli. Þó er hún furðu skýr, þar sem
hún kemur fram, t.d. á vinnustað —
á hárgreiðslustofunni hjá Lóló — og
þá stuttu stund sem þau mæðgin hitt-
ast heima hjá ömmu. Það ríkir mikil
spenna milli þeirra og mamman
reynir aö vera hress. Allt tal hennar
verður fáránlegt í samanburði við ör-
væntinguna sem ríkir innra með
Polla.
Með illu skal illt
út drífa
Mamma Polla er ekki eins slæm og
virðist í fljótu bragði. Hún er ákveðin
og vill börnum sínum vel, svo undar-
lega sem það hljómar, og það er þess
vegna sem hún yfirgefur Einar og
Polla. Hún þolir ekki þau sterku itök
sem Geiri Pje hefur í manni hennar.
Því ætlar hún að þvinga Einar til að
hætta smyglsölunni og segja skilið
við þokkapiltinn Geira.
Að hún hugsar um og hefur
áhyggjur af drengnum sínum sést
m.a. af því að hún vissi allt um það
þegar Polli hvarf um kvöldið og hve
seint hann kom heim, þó hún hefði
farið að heiman sjálf þetta kvöld í
miklu uppnámi. Hún talaöi llka við
kennara Polla og bað hann að hafa
vakandi auga með honum meðan hún
væri í burtu.
Polli og pabbi hans skipta
um hlutverk
Aðalviðfangsefni sögunnar er sam-
búð feðganna, Einars og Polla, og
barátta hins síðarnefnda fyrir því að
fá móður sína heim á ný.
í viðureign þeirra feðga er það
Polli sem sýnir meira vit, þrautseigju
RannveigG. Ágústsd.
og útsjónarsemi. Polli sér í gegnum
fingur við föður sinn, einfaldlega
vegna þess hve honum þykir vænt um
hann. Einar er fjarska barnalegur og
laus í rásinni. Það er eins og feðg-
arnir hafi skipt um hlutverk. Pabb-
inn, þessi strákslegi gæji um þrítugt
með háu kollvikin — hann skiiur
ekki að það sé neitt athugavert við
leynivínsölu — allir hafa eitthvað
auka til að drýgja tekjurnar — og
græjurnar maður, sem hann hefur
keypt með hjálp Geira Pje, þær eru
sko ekki til að fúlsa við — og svo
videóið sem hann átti von á. Eitt var
alveg klárt að væri það nokkuð sem
gæti fengið mömmuna til að koma
aftur, þá væri það helst ef hún frétti
að þeir feðgar væru búnir að fá
videó. — En að visa besta vini sínum,
honum Geira Pje, á dyr — það kom
ekki til mála, ekki til í dæminu, þar
gekk mamman of langt.
í skólanum er skemmtilegt
að vera
Líf Polla í skólanum er nokkurt
Andrés Indríáason.
FRÁ VÉLSKÓLA
ÍSLANDS
Innritun nýrra nemenda til 1. stigs náms á vorönn 1982 er
hafin.
Umsóknir ásamt gögnum um fyrra nám verða að hafa
borist skrifstofu skólans fyrir 14. desember n.k.
Kennslan fer fram eftir áfangakerfi og eiga væntanlegir
nemendur að mæta til námsvals þriðjudaginn 15. desember
kl. 16.00.
Skólastjóri.
barna-
bílstóll,
hugulsöm jólagjöf,
og barnið er öruggt
Britax bílstólar fyrir börn eru
öruggir og þægilegir í notkun.
Með einu handtaki er barnið
fest og losað
Biðjið um Britax bílstóla á
bensínstöðvum Shell.
Skeljungsbúðin
Heitdsölubirgör: Skeljungur hf.
Smávörudeild - Laugavegi 180
simi 81722
Suöurlandsbraut 4
simi 38125