Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1981.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Bandaríkjamenn kallaðir
heim f rá Líbýu
Reagan segir þeim stafa hætta af Ubýustjórn
— FBI leitar 5 f lugumanna Líbýu í USA
Gaddafi varfi æfur, þegar herþolur
USA gröndufiu Iveim MIG-þolum
hans. og hefur alifi á hefndarráðum
sífian.
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
hvatt landa sína í Líbýu tii þess að yfir-
gefa landið hið bráðasta og bannað
bandarískum ríkisborgurum að ferðast
þangað. Segir hann að Bandaríkja-
mönnum sé þar hætt.
UMSJÓN:
Guðmundur Pótursson, og
Jóhanna Þráinsdóttir.
Um 1500 bandarískir ríkisborgarar
eru taldir vera i Libýu, flestir við olíu-
slörf. Heldur Regan því fram að þeim
standi öllum hætta af Líbýustjórn. —
I l<mn hefur látið ógilda allar vegabréfs-'
áritanir til Líbýu.
Þessi viðbrögð koma í kjölfar frétta
af sveit flugumanna, sem Líbýa er sögð
hafa sent til Bandaríkjanna til þess að
fyrirkoma Reagan eða einhverjum ráð-
herra hans. telur leyniþjónusta Banda-
ríkjanna sig hafa örugga vissu um
hverjir morðsendimenn Gaddafts of-
ursta eru og leitar þeirra dyrum og
dyngjum.
Allt frá því að Bandaríkjastjórn vís-
aði í fyrra líbýskum erindrekum úr
landi vegna gruns um að þeir sætu um
líf pólitískra andstæðinga Gaddafts
hefur verið grunnt á því góða í sambúð
þessara rikja. Áður höfðu nokkrir líb-
ýskir útlagar verið myrtir hér og hvar í
Evrópu og lék grunur á því að það væri
að undirlagi Líbýusljórnar. Enda hafði
Gaddafi áður í opinberri ræðu svo gott
sem hótað útlögum dauða ef þeir sneru
ekki af sjálfsdáðum heim til Líbýu að
svara til saka fyrir mótmæli við hann.
Tólfunum kastaði síðasta sumar
þegar tvær libýskar herþotur réðust á
tvær bandarískar herþotur yfir Mið-
jarðarhafi. Líbýsku vélarnar voru
skotnar niður. — Síðan hefur verið &•
kreiki sá kvittur að Gaddafi leiðtogi
Líbýu æli á hefndarráðum.
Fjandskapur Libýu við Bandarikin
hefur verið ódulinn þótt Líbýustjórn
hafi borið til baka allar fréttir um send-
ingu flugumanna til Bandaríkjanna.
Afturköllun bandarískra þegna frá
Líbýu þykja væg viðbrögð við fjand-
seminni og þykir ekki óbugsandi að
þau séu í reyndinni undirbúningur að
frekari refsiaðgerðum Reaganstjómar-
innar. í Washington er þó borið á móti
því að nokkrar hernaðaraðgerðir séu
yfirvofandi.
Missi Líbýa Bandaríkjamennina úr
landi, eins og nú horfir við, þykir það
líklegt til þess að koma niður á olíuiðn-
aði þeirra fyrst og fremst. Skortur á
tæknimenntuðum mönnum gerir
Reagan segir Bandaríkjamönnum
ekki óhætt f Libýu, en er hann að
undirbúa frekari refsiafigerðir?
Líbýu erfitt fyrir fyrst um sinn, en á því
má ráða bót með því að fá slíka starfs-
krafta annars staðar, t.d. frá öðrum
OPEC-löndum.
Útlönd
„Hugleysingi og
lygari’V
Líbýustjórn skoraði í gærkvöidi á
Reaganstjórnina að sanna fullyrðing-
arnar um að Bandaríkjamönnum í
Libýu væri hætt. Var Reagan forseti
kallaður „hugleysingi og lygari”.
Hin opinbera fréttastofa Líbýu kall-
aði nýjustu aðgerðir Bandaríkjastjórn-
ar „óaðgengilegt rugl”. Var sagt að
Bandaríkjamenn að störfum í Líbýu
byggju í friði og nytu betri lífskjara en
Reagan sjálfur.
— segir Ubýa um Reagan
forseta
„Þessir Bandaríkjamenn ættu að
krefjast sannana af Reagan,” segir i
frétt Jana-fréttastofunnar.
„Það hefur rækilega verið staðfest
að Reagan er hugleysingi og lygari. Og
það hefur verið sannað að hann hirðir
hvergi um hagsmuni bandarísku þjóð-
arinnar eða bandarískra fyrirtækja i
Líbýu. Hann setur sjálfs sin virðingu
öllu ofar. Það er einræði af hæstu
gráðu,” bætir fréttastofan við.
Lokast Bandaríkja-
markaður íslendingum
vegna hvalanna?
Skorað á Reagan að beita sér í hval verndunarmálum
Hvalfriðunarmál bar á góma hjá
leiðarahöfundum stórblaðsins Wash-
ington Post á dögunum. Var í leiðara
sagt að alþjóðahvalveiðiráðið sé í þann
veginn að splundrast.
Tvær ákvarðanir hvalveiðiráðsins
frá síðasta sumri — önnur um bann við
drápi búrhvala og hin um bann við
notkun kaldra skutla — eru sagðar
valda ágreiningi meðal aðildarþjóða
ráðsins. Fyrir nokkrum vikum lögðu
Japanir fram mótmæli við báðum
þessum ákvörðunum. Norðmenn og ís-
lendingar hafa mótmælt ákvörðuninni
um nýja gerð á skutlum. Sovétmenn
þykja líklegir til að fylgja í kjölfarið.
Með því að bera upp formleg mót-
mæli geta einstök aðildarríki hundsað
settar reglur ráðsins. En í krafti
alheimsálitsins og hótana um refsi-
aðgerðir Bandaríkjanna hefur hval-
veiðiþjóðum verið veitt aðhald. Banda-
ríkjastjórn getur bannað innflutning
ftskafurða ríkis sem brýtur gegn
ákvæðum hvalveiðiráðsins og einnig
takmarkað fískveiðiheimildir í banda-
rískri lögsögu.
í leiðara Washington Post er skorað
á Reagan forseta að gleyma ekki tak-
markinu um að stöðva alveg hvalveiðar
í stórum stíl og sýna í reynd að hann
hafi meint í alvöru hótanir sínar fyrir
fund hvalveiðiráðsins síðasta sumar.
magnarar - tónstillar
l~m T°9 hátalarar
JENSENi
Gunnar Asgeirsson hf.
M Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200
• r%
Kristján Karlsson:
KVÆÐI 81
Snjöll og óvenjuleg kvæði
frumlegs skálds
Þetta er önnur kvæðabók Kristjáns
Karlssonar bókmenntafræðings. Fyrri
bók hans, Kvæði, vakti mikla athygli,
enda margt í henni, sem talið var tii
nýunga í skáldskap hér á landi. Svo er
einnig um þessa bók hans. Hún skipt-
ist í fimm sjálfstæða kafla, kvæðin eru
nýstárleg að efni og formum og tök
skáldsins á Ijóðlistinni persónuleg og
sterk.
Kvæði 81 er bók, sem Ijóðaunnendur
munu fagna og þurfa að eignast.
SKUGGSJA BÓKABÚO OUVERS
EinarGuömundsson: ÞJÓÐSÖGUR
OG ÞÆTTIR
/1UNDS
- . wCXJ
TRÍ
STEIfVS SE
SKUGGSJÁ
Vönduð og skemmtileg
sagnabók
Hér er að finna hið fjölbreyttasta úrval
þjóðlegs fróðleiks í bundnu og
óbundnu máli, sagnir og kveðskap,
sem lifað hefur á vörum fólksins í land-
inu, sumt lengur, annað skemur. Segja
má að sagnir séu af hverju landshorni,
en mest er þó af Vestfjörðum, úr Ár-
nes-, Rangárvalla- og Skaftafellssýsl-
um. Einar Guðmundsson er orðhagur
og málsnjall og einn afkastamesti
sagnasafnari síðari tíma.
BÓKABÚÐ OLIVERS STEIIVS SE