Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Blaðsíða 11
AUGLÝSINGASTOFA KRISTINAR HF. 43.41
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1981.
11
Mannlíf Mannlíf Mannlíf Mannlíf
Natalie Wood jarösett
Kvikmyndastjarnan Natalie Wood
var lögð til hinztu hvíldar undir skugg-
sælu kamfórutré í Westwood Memor-
ial kirkjugarðinum í Los Angeles.
Athöfnin var stutt og í henni tóku þátt
margar þekktustu kvikmyndastjörnur
heimsins.
Leikkonan Hope Lang hélt minning-
arræðu og lýsti hún Natalie sem glett-
inni og gamansamri stúlku. Roddy
McDowall sagði í stuttri tölu að Natalie
Wood hefði stöðugt ausið öðrum af
nægtabrunni lífsgleði sinnar.
Kistan var skreytt hvitum geisla-
möðrum (gardeníum) og leikin voru
rússnesk lög á balalajku, en Natalie
Wood var dóttir rússneskra innflytj-
enda og borin sem Natsha Grusin.
Að athöfn lokinni tók Robert Wagn-
er, eiginmaður leikkonunnar, þrjár
geislamöðrur af kistunni og rétti þær
Kate, 17 ára gamalli dótture sinni af
fyrra hjónabandi, Natashu, 11 ára
gamalli dóttur Natalie Wood og kvik-
myndaframleiðandans Richards Greg-
sons og Courtney, sem Robert og Nata-
lie áttu saman eftir að þau gengu í
hjónaband öðru sinni.
Nánustu vinir hinnar framliðnu voru
síðan boðnir til erfisdrykkju heim til
Wagners á Beverly hæðum en þar hefur
hann búið í algjörri einangrun eftir að
kona hans drukknaði.
Ingrid vikti ekki taka
að sér hlutverk Goldu
— Það var ekki auðvelt að fá Ingrid
Bergman til að taka að sér hlutverk
Goldu Meir, segir Herve Bennet, fram-
leiðandi fjögurra tíma langrar sjónv-
arpsmyndar um líf Goldu, sem tekin
var í ísrael.
Ingrid hafði ákveðið að leika ekki
framar og það tók Herve bæði langan
tíma og mikla þolinmæði að fá hana til
að gera undantekningu frá þeirri
ákvörðun sinni. En hann gat ekki hugs-
að sér aðra leikkonu í hlutverkið.
Ingrid Bergman heimsótti ísrael í
febrúar og var þá á báðum áttum.
— Ég get ekki ímyndað mér mig sem
Goldu Meir, sagði hún við komu sína
þangað, en daginn eftir bað hún um að
fá að sjá handritið.
Nokkrum vikum siðar afþakkaði
hún hlutverkið bréflega og framleið-
andinn flýtti sér á fund hennar í
London. Þá bætti hún við þeirri nýju
afsökun að hún yrði að leika hlutverkið
með ótal lög af farða á andlitinu, en
það hefði hún aldrei fyrr gert. Herve
fullvissaði hana um að allt sem til
þyrfti væri stækkun á nefi hennar,
þykkar augabrýr og hárkolla.
— En ég er sænsk og ekki einu sinni
af gyðingaættum, sagði Ingrid.
— Varstu kannski frönsk og
kaþólsk þegar þú lékst Jeanne d’Arc?
spurði framleiðandinn á móti.
Þessa röksemd fékk Ingrid ekki
staðizt og þáði hlutverkið.
Sagt er að Ingrid Bergman hafi m.a.
verið svo treg til að taka að sér hlut-
verkið vegna þess hún þjáist af krabba-
meini. Hún let þó engan bilbug á sér
ftnna við upptöku myndarinnar og má
því segja að þær Golda hafi átt það
sameiginlegt að vera báðar óvenju
sterkar og mikilhæfar konur.
Ingrid var nýlega tilnefnd sem ein af
100 stærstu stjörnunum í sögu kvik-
myndanna. Hafa þessar stjörnur verið
beðnar um að koma fram á hátiðarsýn-
ingu i Radio City í New York í tilefni
hundrað ára afmælis Actor’s Fund of
America. Á sýningin að heita Kvöld
hinna 100 stjarna. Heiðrinum deilir
Ingrid m.a. meðstjörnum eins og Bette
Davis, Myrnu Loy, Robert Preston,
m-----------►
Ingríd Bergman í hlutverki
Goldu Meir — Yossi Graber i
hlutverki Moshe Dayans.
Mary Martin, Ethel Merman og Liv
Ullman.
Robert Wagner við kistu eiginkonu sinnar.
V€RZlUNARBflNKINN
MOSFELLSÚTIBð Vlfi ÞVERHOU $:660D0