Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Blaðsíða 13
11
idur
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1981.
Klukkan 3 til 5 1 dag mun
JÓN SIGURBJÖRNS
SON _
leikari lesa úr eftirtöldum
bókum:
Með reistan makka
eftir
ERLING DAVÍÐSSON
ritstjóra
Bóndi er bústólpi
eftir
GUÐMUND JÓNSSON
frá Hvanneyri
Undur ófieskra
cftir
ÆVAR KVARAN
leikara
Neytendur
Neytendur
Guðrún Helgadóttir við nokkrar skreytingar úr sokkablómum. Hún heldur á lítilli fresiu úr gulum og grænum sokkum. Þaö
er synd að myndin er ekki i litum þvi að litskrúðið var hreint ótrúlegt. Myndir: Kristján Örn.
„Ég hef bókstaflega'ekki haft undan
við að flytja efnið inn. Námskeiðin
hafa líka alltaf verið yfirfull,” sagði
Guðrún Helgadóttir, blómakaupmaður
í Garðabæ. Við heyrðum fyrir
skemmstu í útvarpinu auglýst námskeið
í gerð sokkablóma. Það var Guðrún
sem fyrir auglýsingunni stóð. Okkur
lék hugur á að vita hvað það væri, sem
nefnt væri sokkablóm og höfðum við
samband við hana í blómabúðinni
Fjólu, sem hún á og rekur.
„Sokkablóm eru ekki blóm sem
ntenn setja í sokkana sína,” sagði
Guðrún hlæjandi. „Sokkablóm eru
búin til úr sokkum.” Og það reyndist
rétt vera.
Úr silfurþræði, plastfræjum og mis-
litum nælonsokkum eru búin tilundur-
fögur blóm sem líkjast ekta blómum
um margt. Reyndar þarf sá sem býr til
blómin að vera nokkuð handlaginn og
lipur í fingrum og ntikil vinna er fólgin
'í því að búa til eitt fallegt blóm.
Blómin eru notuð til skreytinga, t.d.
á trjálurkum, í vösum og til að skreyta
með pakka. Þau eru mikið ódýrari en
ekta blóm og endast miklu lengur. En
það vantar vitaskuld af þeim ilminn.
Efni í eina stóra skreytingu kostar
svona um 100 krónur. Þegar einu sinni
hefur verið keypt efni tínast alltaf af-
gangar til þess að búa til lítið blóm á
pakka, ef skyndilega þarf. Hægt er að
nota venjulega nælonsokka sem fást í
búðum í þetta, en auk þess flytur
Guðrún inn alla vega lita sokka sem
sérstaklega eru ætlaðir í þetta.
Blómin eru búin til á þann hátt, að
búinn er til hringur úr silfurþræðinum.
Það fer eftir því hvað krónublað
blómsins á að vera stórt, hversu hring-
urinn er stór. Síðan er sokkurinn
strekktur utan um þráðinn og hann lag-
aður til í hendinni eftir því hvernig
hann á að vera. Margir svona hringir
mynda síðan eitt blóm. Hægt er að
kaupa hverja frumeiningu blómsins
sér, sokkana, þráðinn og fræin, sem
koma í miðju blómsins.
Efnið er flutt hingað inn frá Dan-
mörku. Það er mjög hátollað og reynd-
ar sagði Guðrún, að í hvert einasta sinn
sem hún hefur flutt það inn hafi fræin
lent í nýjum tollflokki. Einnig eru fiutt-
ar inn bækur með leiðbeiningum og
kosta þær um 60 krónur stykkið.
-DS.
Ekta fresía og önnur úr sokkum.
Æsku- og flugsaga Jóhannesar R. Snorrasonar
flugstjóra rituð af honum sjálfum.
Jóhannes R. Snorrason býður okkur fram í flugstjórnarklefa. Og það er
ekki einn flugstjórnarklefi, heldur margir, og við fljúgum ýmist í sólskini
eða kolsvörtum skýjum og illviðrum. Nú er flugtæknin háþróuð, en í
upphafi flugferils Jóhannesar var hún það ekki. Þá var flugið ævintýri
líkast.
Þessi bók er fyrri hluti flugsögu Jóhannesar. Fyrst segir hann frá viðburða-
ríkum bernskuárum á Flateyri við Önundarfjörð og svo ehn viðburðaríkari
unglingsárum norður á Akureyri. Síðan hefst flugsagan sjálf í miðju stríði
og endar í þessu bindi 1946, þegar Jóhannes er nýbúinn að fljúga fyrstu
farþegaflugin frá íslandi til Skotlands og meginlandsins og ferja tvo Kata-
línubáta hingað frá Ameríku yfir Grænland í illviðrum um hávetur.
Almenna bókafélagið
AUSTURSTRÆTI 18 - SKEMMUVEGI 36.
m
Höfundar verSa í versluninni a
sama tíma og árita bækurnar.
EYMUNDSSON
Austurstræti 18
Blóm búin til úr nælon-
sokkum
— hefst ekki undan
með innf lutning
áefni
■FÆST HJÁ NÆSTA BÓKSALA----
SKRtFAÐ I SKÝIN