Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Síða 12
12 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981. Þyrlur ís lendinga dugaað meðaltali íþrjúár áður en þær farast Þyrlur eru hin gagnlegustu farar- tæki, enda eru þær notaðar með góð- um árangri vítt og breitt um heims- byggðina, við björgunarstörf, leitar- og eftirlitsflug, fólks- og vöruflutninga, byggingarvinnu og fleira og fleira sem of langt yrði upp að telja. Við höfum líka séð mörg dæmi um gagnsemi þyrlna hér á landi; það liður varla svo mánuður að einhver af björg- unarþyrlum varnarliðsins fari ekki í sjúkra- eða leitarflug við erfið skilyrði. Þau eru ófá mannsltfin sem þær hafa bjargað. íslendingum sjálfum virðist hinsveg- ar ætla að ganga illa að nýta sér þennan farkost. Þær þyrlur sem fslendingar hafa eignast, hafa yfirleitt farist tiltölu- lega fljótt eftir að þær komu til lands- ins. Alls hafa, frá upphafi, verið skráð- ar þrettán þyrlur hér á landi. Af þeim hafa níu farist. Sú tíunda var hér aðeins í þrjá mánuði og flaug örfáa tíma áður en hún var endursend til Bandaríkj- anna. Af þeim þrem sem eftir eru komu tvær til landsins 1980 og ein i lok síðastliðinsoktóber. Sú þyrla sem lengst hefur lifað í eigu íslendinga var TF-DIV, lítil þyrla af Brantley gerð sem Andri Heiðberg átti. Hún dugði í ein átta ár. Nú kunna átta ár að virðast ekkert ægilega iítið. En þess ber að gæta að þyrlum er yfirleitt ekki fiogið nema þrjú til fimmhundruð tíma á ári hér á iandi. Litlu þyrlunum er jafnvel lagt alveg yfir veturinn, þótt Landhelgisgæslan haldi sínum út allt árið. Það þarf líka að muna að hér eru til fjölmargar venjulegar flugvélar sem hafa veriðá ferðinni f áratugi. Slysasagan Fyrsta þyrlan sem skráð var hér á landi var smávél af gerðinni Bell-47. Hún var skrásett 10. júní 1949, en skil- að aftur til Bandaríkjanna í september sama ár. Númer tvö var einnig Bell-47. Það var TF-EIR sem var i eigu Slysavarna- félags íslands og Landhelgisgæslunnar. Hún var skrásett 30. apríl 1965. TF- EIR brotlenti á Rjúpnafelli 29. septem- ber 1971 og gjöreyðilegðist. Um borð voru flugmaður og einn farþegi sem báðir sluppu ómeiddir. Líklegast var talið að misvindar hefðu verið orsök slyssins. Númer þrjú var Brantley þyrlan TF- DIV, í eigu Andra Heiðberg. Hún brot- lenti eftir hreyfilbilun, í Fáskrúðsfirði, Skilyrðin eru ekkert erfiðari en víða ann- arsstaðar Texti: Óli Tynes TF-DIV dugði iengst allra þyrlna á íslandi eða íátta ár. Hún brotlenti eftir hreyfilbil- un I Fáskrúðsflrði I septem- ber 1975. og slapp ómeiddur, en flak vélarinnar var selt til Bretlands. Númer sjö var TF-LKH. Það var meðalstór Sikorsky þyrla, S-55, í eigu Þyrluflugs hf. Hún var skrásett hér 6. janúar 1975 og fórst við Hjarðarnes í Hvalfirði aðeins 11 dögum síðar. Flug- maður og sex farþegar biðu bana. Lik- leg orsök er talin misvindi og röng hleðsla vélarinnar. Númer átta var Brantley þyrlan TF- DEV, í eigu Andra Heiðberg. Hún var skráð hér 3. febrúar 1975. TF-DEV eyðilagðist í nauðlendingu eftir bilun stélskrúfu, við Urðarhólmavatn sunn- an Arnarvatnsheiðar, 31. janúar 1978. Flugmaðurinn, sem var einn um borð, slasaðist. Númer níu var TF-GRO. Hún var af gerðinni Hughes 369 og í eigu Landhelgisgæslunnar. Hún var skráð hér á landi 7. apríl 1976. Þessi þyrla flaug á loftlínu, við Búrfellsvirkjun, og eyðilagðist, 17. nóvember 1980. Flug- maðurinn slapp ómeiddur, en farþegi sem með honum var meiddist nokkuð. Númer tíu var svo smáþyrla af gerð- inni Hughes 269. Hún bar stafinu TF- AGN og var í eigu Hitatækja hf. Vélin ÚF HUFRIIIFÚRÚ QT Jr%r 11 w£iU(# ■ AlflMwi ALLAR ÞYRLURNAR? 29. september 1975. Flugmaðurinn, sem var einn um borð, slapp ómeiddur en þyrlan var ónýt. Númer fjögur var TF-GNÁ, stór Sikorsky þyria i eigu Landhelgisgæsl- unnar. Hún var skrásett 21. febrúar 1972. TF-GNÁ eyðilagðist í nauðlend- ingu á Skálafelli 3. október 1975 eftir að drifkassi í stéli brotnaði. Flugmaður og einn farþegi voru um borð og sluppu báðir ómeiddir. Þyrlan var við vinnu utan í fjallinu. Númer fimm var TF-HUG sem var af gerðinni BeIl-47 og í eigu Landhelg- isgæslunnar. Hún var skrásett 29. mars 1973. Þessi þyrla skemmdist í nauð- lendingu, eftir hreyfilbilun í grennd við Kópavogshæli, 13. febrúar 1977. Flug- naður og einn farþegi voru um borð og sluppu báðir ómeiddir. Flakið af þyrl- unni var selt til Bretlands. Númer sex var TF-MUN. Hún var einnig af gerðinni Bell-47 og einnig í eigu Landhelgisgæslunnar. Hún skemmdist i nauðlendingu, vegna hreyfilbilunar, í grennd við Vogastapa árið 1975. Flugmaður var einn um borð var skrásett hér 19. nóvember 1976. Hún flaug f jörðina og eyðilagðist, þeg-; ar fiugmaðurinn reyndi sjónflug í vondu veðri á Mælifellssandi norðan Mýrdalsjökuls. Það var 25. apríl 1977. Flugmaðurinn og einn farþegi urðu úti á leiðinni til byggða. Þynlur númer ellefu, tólf og þrettán eru svo nýjar, sú „elsta” þeirra var Níunda þyrlan sem kom til landsins var TF-GRO I aprU 1976. Þessi þyrla fíaug á ktftíínu við Búrfellsvirkjun og eyðMagðist í nóvember 1980.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.