Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Blaðsíða 22
22 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981. tæpast gera í dag. Hún hefði orðið allt öðruvísi.” Menn síbreyti/eikans — Munurinn á þeim fjórum plöt- um sem Þeyr hefur gefið út er með ólíkindum. Engar tvœr hafa verulegan svip hvor með annarri. Er það stefnan hjá ykkur að gefa aldrei tvœr plötur út í röð, sem hljóma svipað? „Nei, það er í sjálfu sér ekkert tak- mark, en á meðan menn eru það frjóir er ekki ástæða til annars en lofa öllum hugmyndum að gerjast og vinna úr þeim eins og efni og ástæða þykja til. Það þýðir ekkert að hjakka í sama farinu. Allur þorrinn gerir það — þorir hreinlega ekki að reyna neitt nýtt. Okkar tónlist á tæpast mjög greiða leið ofan í fólk, a.m.k. ekki þessi plata, en það þýðir ekki að horfa i það. Út skal stefnt.” — Þið segið að tónlistin eigi varla greiða leið ofan í fólk. Er þá ekki erfitt að ná endum saman fjárhagslega? „Eðlilega verður dæmið erfiðara fyrir vikið. Við erum með eigið útgáfu- fyrirtæki að baki okkur, Eskvímó, og það er ekki létt að útvega það fjár- magn sem til þarf til að gefa út þrjára plötur á einu og sama árinu eins og við höfum gert. Okkur hefur verið boðið að ganga á mála hjá Steinum eða Fálk- anum, en þeir hefðu aldrei gefið þessa tónlist okkar út. Með því að semja við fyrirtæki eins og Steina og Fálkann eru allir fjárhagsmöguleikar erlendis njörvaðir niður. Við myndum ekki sjá nema brot af kökunni ef svo færi að vel tækist til. Það er sosum ekki ástæða til að vera að taka Steina og Fálkann eitthvað fyrir endilega. Værum við ensk hljómsveit þyrftum við ekki að gera okkur vonir um að EMI eða t.d. CBS myndu gefa þetta út.” Þríraði/ar buðu samning — Við hverja sömduð þið þá? „Samningar tókust við Shout út- gáfufyrirtækið. Það er ekki ýkja stórt bákn, en hefur á sínum snærum mjög færa menn, sem hafa fengið skólun hjá stærri fyrirtækjum í þessum bransa. Reyndar áttum við möguleika á samningi við Cherry Red, sem m.a. hafa gefið út Dead Kennedys, og síðan Armageddon. Ekki sakar að geta þess að við hittum Jello Biafra, söngvara Dead Kennedys. Meiri háttar náungi, Jello, meiri háttar. Hann lýsti því yfir að hann og piltarnir hefðu áhuga á að kíkja á mörlandann og ekki er loku fyrir það skotið að flokkurinn troði hér upp. Ef við víkjum aftur að samningun- um við Shout má eiginlega rekja hann til raðar undursamlegra sannana. Það kom strax undarlegur svipur á okkar mann hjá fyrirtækinu er viö réttum honum eintak af Iðrunum. Á bakhlið umslagsins er mynd af dauðadans- inum. Hvernig svo sem á því stóð höfðu þrír þeirra manna, sem við höfðum hvað mest samskipti við hjá þessum útgáfufyrirtækjum allir notað dauðadansinn í sambandi við einhverj ar hugmyndir sínar á siðustu tveimur vikum. Þá var það hreint undarlegt hversu vel okkur, blámönnum íslands, var tekið þarna úti af öllum.” — / hverju felst þessi samningur ykkar? „Þessi breiðskífa verður gefin út hjá Shout fyrirtækinu í febrúar og við munum þá halda utan til að kynna hana og fylgja eitthvað eftir. Til að byrja með munu 5000 eintök fara af stað, en verið er að semja við dreifing- araðila í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Japan. Það er mikið metn- aðarmál okkar manns hjá Shout að eitthvað almennilegt verði úr þessu. Bretar virðast eitthvað vera orðnir þreyttir á sínum nýrri hljómsveitum þannig að vegurinn er e.t.v. ekki eins grýttur hjá okkur og ella. Þeir eru opn- ari fyrir erlendum hljómsveitum en áður og vafalítið myndu mörg útgáfu- fyrirtæki vera til í að gefa eitthvað ís- lenskt út, bara sisona til gamans. Snið- ugt að vera með eitthvað frá íslandi á sínum snærum. Við gerum okkur innst inni vonir um að þetta geti skilað sér og til þess er leikurinn í öndverðu gerður, ekki satt?” úm þessar mundir er það aðeins dagaspursmál hvenær fjórða plata Þeys, Mjötviður mær, lítur dagsins ljós. Upptökur á gripnum fóru fram í haust samhiiða útgáfu plötunnar Iður tii fóta og í fljótu bragði er iitið sam- hengi að finna á milli þeirra platna. Meðlimir flokksins héldu sfðan til Englands f frækilega för f siðasta mán- uði og ennþá hefur litið sem ekkert heyrst af þeirri för. Það var því ærin ástæða til að taka þá drengina tali. „Það var að hrökkva eða stökkva og stökkið varð tvímælalaust til góðs. Okkur var plantað niður i Notting Hill, frægu blámannahverfi í Lundúnaborg, og þar hætta hvítir menn sér yfirleitt ekki inn eftir klukk- an 7 á kvöldin. Hverfið er rómað fyrir dólgshátt og glæpamennsku, en líkast Þeysararí . yfirheyrslu Sé einhver ennþá í vafa við hverja hér er rætt er rétt að leiða það fram i dagsljósið. Það eru drengirnir í Þey sem hér eru í viðtali og umræðuefnið að ofan er Lundúnaferð þéirra pilta í síðasta mánuði. Margt hefur orsakað að ferðar þeirra hefur ekki verið getið sem skyldi. Blaðaverkfallið skall á rétt eftir að þeir sneru heim á ný. Ferð þeirra varð á margan hátt árangursrik- ari en ferðir íslenskra hljómsveita til útlanda þó svo ekki hafi verið um opinbera tónleika að ræða. Þeysarar náðu sér nefnilega í plötusamning er meltur á eðlilegum styrk. Magnús hit- aði okkur kaffi af stakri rausn og þar með var ekki til setunnar boðið. Afþökkuðum tónleika með Cure — Hvað kom til að þið lékuð ekki opinberlega í London eins og ætlunin hafði verið? „Það kom ýmislegt til, aðallega þó það að ekki hafði gefist nægur tími til stuttu spjalli um Þey að hljómsveitin væri einmitt stödd í Lundúnum þessa stundina.” Fanta/ega góður gripur Við gerðum stutt hlé á spjallinu og nýja gripnum, sem ber nafnið Mjöt- viður mær, var rennt undir nálina og m mjtmm þvílíkt og annað eins! Breytingin frá Iðrum til fóta er slik að ólíkindum sætir. Yfirbragð Iðranna var allt öðru- vísi; þyngra og rokkaðra, en synd væri að segja að nýi gripurinn væri ekki taktfastur vel. Trommuleikur Sig- tryggs sem fyrr í forsæti, en gítarleik- urinn meira áberandi og ekki laust við að það komi betur út. Lögin eru 12 að tölu, að hætti eldri íslenskra breiðskifa, og hvert öðru betra. Fjölbreytileikinn geysilega mikill og platan vinnur sífellt á. Mér telst til að nú, þegar þetta viðtal er sett saman á blað, hafi platan vart verið spiluð undir 30 sinnum á 12. hæðinni og enn eru nýir hlutir að renna upp. Þetta er kjörgripur hvernig sem á hana er litið og greinilegt að stúdíótíminn hefur ekki farið til ónýtis. Varla verður því neitað öllu lengur að Þeyr hefur tekið forystu i islenskum popp- heimi. — Eruð þið ánægðir með plötuna? „Þetta er nokkuð sem dálítið erfitt ei að svara. Upptökur fóru fram sam- hliða útgáfu Iðranna. (og með tilliti til þess er munurinn á gripunum hreint með ólíkindum — innsk. -SSv.). Eðli- lega erum við ánægðir með útkom- una, en það er ekki gott að meta það núna. Þróunin hjá okkur er það ör að núna, nokkrum mánuðum síðar, erum við farnir að hugsa út I aðra hluti. Þetta er plata, sem við myndum, t.d. 60% fíokksins mænir hér á b/aðamann í spjaHinu. Frá vinstri: Sigtrygt ur, Magnús og Hi/mar örn DV-mynd Einar Ó/ason. lendis og það er meira en hægt er að segja um mörg stórmenni íslenska poppheimsins. Við tókum okkur stöðu á heimili Magnúsar Guðmundssonar söngvara við Dunhagann og flokkurinn mætti í heilu lagi til spjallsins ásamt tveimur ómissandi fylgifiskum, þeim Guðna Rúnari Agnarssyni og Hilmari Erni Hilmarssyni. „Það er öruggara að setja nýju plötuna á fóninn fyrr en síðar því ekki er víst að sú gamla á efri hæðinni sætti sig við styrkinn er líður á kvöldið, skaut Magnús að okkur. Klukkan var rétt gengin ellefu er við hófum spjallið og þetta reyndust orð að sönnu. Sú gamla meðtók ekki styrkinn svo lækka varð í fóninum áður en gripurinn hafði verið frum- að auglýsa okkur upp. Reyndar var búið að útvega staði til að spila á en við hefðum þá orðið að vera sem eins konar þriðja hljómsveit og okkur fannst það ekki alveg nógu sniðugt. Reyndar bauðst okkur að leika með Cure á tónleikum í ZigZag-klúbbnum, en það var tæpri viku eftir áætlaðan brottfarardag svo að við vildum hrein- lega ekki taka þá áhættu að vera eftir. Peningarnir voru af skornum skammti svo útilokað var í raun að framlengja dvölina.” — Lítið þið þá á ferðina sem mis- heppnaða að einhverju leyti? „Nei, á engan hátt. Ferðin var ævintýri líkust og við komumst í sam- band við menn, sem vafalitið eiga eftir að reynast okkur betri en engir I fram- tíðinni. Það sem mestu máli skiptir er að við komumst á plötusamning hjá Shout útgáfufyrirtækinu. Það er hvorki stórt né þekkt fyrirtæki, en hefur þaulvana menn á sínum snærum. Við munum fara út á ný í febrúar og þá verða tónleikar skipu- lagðir og annað í þeim dúr. Það vakti geysilega athygli okkar að ótrúlega margir virtust vita af komu okkar og dvöl í London þennan stutta tíma. John Peel, vinsælasti útvarpsmaður Breta, gerði sér t.d. lítið fyrir og lék tvö lög með okkur í þætti sínum, m.a. Te- drukkinn, sem hann reyndar bar fram sem Ted Rukkin. Þáttur hans er geysi- lega vinsæll og hann lét þess getið í til hefur það verið fyrir tilstuðlan Jass- arans (Jaz í Killing Joke) að við gátum gengið þarna um eins og hverjir aðrir blámenn. Blámenn norðursins mætti því með réttu nefna okkur. Þetta varð okkur ógleymanleg ferð þó ekkert hafi orðið af því að við spiluðum opinber- lega að þessu sinni. Það kemur bara síðar. Jassarinn reddaði okkur um æf- ingarhúsnæði við hliðina á opinberri’ þjónustumiðstöð þarna í hverfinu og það var skrýtin tilfinning að sjá blá- mennina hlamma sér niður fyrir utan hjá okkur og hlusta á æfingamar.” Popp Popp Popp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.