Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Page 28
28
DV — HELGARBLAÐIЗ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981.
Nokkrir nomonda HaymloysJngjo*kólons tyUa *ér niður í otnum af mörgum básum Dynheima, svona rótt til að
hvUa sig fyrir næsta dans. DVmyndGsai.
Nemendur
Heyrnleys-
ingjaskó/ans
á ferð um
Akureyri
Fyrir um mánuði fóru nokkrir nemendur úr Heyrnleysingja-
skólanum í helgarferð til Akureyrar og kynntu sér bœjarlífið og
atvinnuvegi norðanmanna.
Ferðin var undirbúin á vegum (Jtideildar Reykjavíkurborgar í
samvinnu við kennara Heyrnleysingjaskólans og voru í ferðinni
um þrjátíu krakkar úr skólanum.
Krakkarnir komu víða við, enda var margt að skoða íþessari
höfuðborg norðanlands. Farið var á vinnustaði, í verslanir og
svo að sjálfsögðu í Dynheima, aðal diskóstað akureyrskra ungl-
inga, þar sem krakkarnir stigu dans með jafnöldrum sínum
nyrðra.
Ljósmyndari var með í fórinni og hér á síðunni getur að líta
nokkur sýnishorn úrferðinni.