Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
3
Vigdís Finnbogadóttirforseti ts-
lands eyðir jólunum með jjöl-
skyldu sinni og dansar í kringum
jólatré á aðfangadagskvöld með
börnunum.
D V-mynd Einar Ólason.
Vigdís Finnboga-
dóttir forseti
Islands:
ÁIÓL-
UNUM
ER|G
ÞJONN
BARN-
ANNA
— oggeriallt
semþeimþykir
skemmtilegast
ogbezt
,,Á jólunum er ég fyrst og síðast
þjónn barnanna í mínu umhverfi. Ég
geri allt sem þeim þykir skemmtilegast
og bezt, jafnvel spila ég rommí og það
voðalega spil marías fram eftir
kvöldum,” sagði forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, er við spjölluðum við
hana um jólin á forsetaheimilinu.
, ,Við förum alltaf í kirkju á aðfanga-
dag og á eftir borðar fjölskyldan
saman. Við höfum venjulega haft
rjúpur eða reykt svínakjöt á aðfanga-
dag,” sagði Vigdís. Síðar um kvöldið
förum við í heimsókn til annarra í fjöl-
skyldunni, þar sem eru yngri börn, og
veitum þeim þá gleði að dansa í
kringum jólatré. Það hefur verið hefð
hjá mínu fólki í þrettán ár.
Á jóladag fer ég alltaf i heimsókn til
vinafólks i Mosfellssveit og dvel þar
allan daginn. Hjá því er sundlaug og ef
snjór verður er margt fyrir börnin að
gera þar.
Á annan dag jóla fer ég á frumsýn-
ingu i Þjóðleikhúsinu. Það líður varla
sá dagur að ég líti ekki eitthvað í bók og
jólin eru þar engin undantekning. Auk
þess finnst mér engin jól án tónlistar.
Þá hef ég sérstakt yndi af barrokk-tón-
list og flautukonsert finnst mér ein-
hvern veginn alltaf tilheyra jólunum.
Áramótin eru hefðbundin hjá mér.
Ég eyði kvöldinu með fjölskyldunni.
Við fylgjumst með brennu Leikfélags
Reykjavíkur á Grímsstaðaholtinu og
rennum síðan um bæinn ogskoðum
aðrar brennur. Það er alltaf farið
snemma að sofa hjá mér á nýársnótt.
Mér þykir gott að njóta fyrsta dags árs-
ins í hvíld og i góðu skapi,” sagði for-
seti íslands. -ELA.
’ '
GUÐHÚN A. símonar
BESSIBJARNASON
segir sögur og syngur fyrir börnin
Y“.