Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 40
Dómur falKnn í máli bónda gegn Póst- og símamálastof nun: Póstur og sími skaða- bótaskyldur vegna eld- ingar í gegnum símtól — maðurinn hlaut alvarleg og varanleg meiðsl vegna eldingar í eyra í gegnum síma Póst- og símamálastofnun hefur verið dæmd til að greiða bónda einum á Suð-Austurlandi 290 þúsund krónur í skaðabætur. Málið var höfðað á hendur stofnuninni vegna slyss er bóndinn varð fyrir á heimili sínu, er eldingu laust niður í símalínu heim aðbænum. Slysið átti sér stað í febrúar 1977. Er talið líklegt að það hafi orðið með þeim hætti, að bóndinn hafi tekið heyrnartól af símtæki, sem var í and- dyri á bænum, og borið að eyra sér. Hljóp þá rafstraumur eldingarinnar gegnum tólið, inn í eyra bóndans, gegnum líkama hans og út í mið- 'stöðvarkerfi í anddyrinu. Missti hann þegar meðvitund. Foreldrar bóndans komu honum til bjargar með lífgunartilraunum. Hann hlaut hins vegar alvarleg og varanleg líkamsmeiðsl við slysið. Var varanleg örorka hans metin 65 í'o. i Höfðaði bóndinn mál á hendur: Póst- og sima og símamálastaofnun- jinni vegna þessa. Voru dómkröfur jþær að stofnunin skyldi greiða honum, 2,2 millj. króna vegna slyssins. Dómur í bæjarþingi ■úrskurðaði, að bóndinn skyldi fá kr. 290.000 í skaðabætur. Var Póst- og símamálastofnun einnig dæmd til að greiða 39.713.12 krónur í máls- kostnað. Forsendur dómsins voru meðal annars þær, að slysið hefði orðið á landssvæði, sem þekkt sé fyrir mikla eldingahættu. Eldingavari á símalín- um þar væri því sjálfsögð varúðar- ráðstöfun. Hins vegar hefðu aðeins tveir eldingavarar verið á simalínunni er liggur að umræddum bæ, sem þótti of lítið. Bóndinn hefði ekki .orðið fyrir slysi hefði öryggisbúnaður á símanum verið í lagi, að mati dóms- (ins. Stofnunin taldist því skaðabóta- pkyld, að því er segir í dómsniður- stöðum. dómari í málinu var Bjarni K. Bjarnason borgardómari. -JSS. Bömin í Melaskólanum vom kát og hmss á Lækjartorgi síödegis í gœr þrátt fyrír kulda og rok. Þau söfnuöust saman á torginu með iuktir og fóru síöan fylktu iiði að skóla sínum þar sem jólaskemmtun fór frem. (D V-mynd Friðþjófur) Glæsileg getraun fyrir áskrif endur DV: ÞRÍR BÍLAR í BOÐI —sá fyrstí dreginn út27. janúar Bókalisti DV: Gunnars- bókin enn söluhæst — ÓlafurThorsog Skrifað í skýin í öðruogþriðja sæti Samtalsbók Gunnars Thoroddsen og Ólafs Ragnarssonar er enn í efsta sæti á bókalista Dagblaðsins og Vísis yfir söluhæstu bækurnar. Að þessu sinni var eingöngu könnuð bóksalan í vikunni sem er að líða. Bókin um Gunnar Thoroddsen var í nokkrum sérflokki að þessu sinni, fékk 82 stig af hundrað mögulegum, en í öðru sæti var bókin um Ólaf Thors eftir Matthías Johannessen og fékk hún 66 stig. Sem fyrr er bókalistinn gerður þannig, að tíu bokaverzlanir um allt land gefa upp.lista yfir tíu söluhæstu bækurnar, og er söluhæstu bókinni gefin tíu stig, þeirri næstuníu o.s.frv. Samanlögð stigatala ræður svo röð bókannaálistanum. „Skrifað í skýin” eftir Jóhannes Snorrason varð í þriðja sæti, „Háska- för á norðurslóðum” eftir Alistair McLean í fjórða sæti og „Lífsjátning” Guðmundu Elíasdóttur, skráð af Ingólfi Margeirssyni.varð í fimmta sæti með 45 stig. Af bókum, sem fengu allmörg stig en náðu samt ekki inn á listann, má nefna „Raupað úr ráðuneyti” eftir Vilhjálm Hjálmarsson, „Ofsögum sagt” eftir Þórarin Eldjárn, „Blöndalsættin” eftir Lárus Jóhannesson, „Af Jökuldals- mönnum og fleira fólki” eftir Þorkel Björnsson, „Við heygarðshornið” eftir Halldór Laxness, „GPU-fangelsið” eftir Sven Hazel og „Öldin sextánda” eftir Jón Helgason. -ATA. Söluhæstu bækurnar vikuna 11.t2.-17.12. 1. Gunnar Thoroddsen 2. ÓlafurThors 3. Skrifað I skýin 4. Háskaför á norðurslóðum 5. Lífsjátning Guðmundu Elíasd. 6. Stóra bomban 7. -8. Möskvarmorgundagsins 7.-8. Ástarsaga úr fjöllunum Áskrifendur Dagblaðsins & Vísis eiga þess kost að taka þátt i getrauna- leik þar sem keppt er um þrjá glæsilega bíla að heildarverðmæti 319 þúsund krónur. Fyrsti vinningurinn, Isuzu Gemini verður dreginn út 27. janúar næstkomandi. Suzuki jeppi verður dreginn út 28. apríl og Opel Kadett 28. júlí. Nýir áskrifendur öðlast rétt til þátttöku en aðeins verður dregið úr svarseðlum skuldlausra áskrifenda. Út hafa verið gefnir þrír getrauna- seðlar vegna Isuzu bílsins og birtust þeir í Vísi fyrir sameiningu blaðanna. Raunar átti að draga um þann bíl í lok nóvember en drætti var frestað vegna prentaraverkfalls og síðar sameiningu Dagblaðsins og Vísis. Þessir seðlar eru að sjálfsögðu i fullu gildi, en fjórði og síðasti getraunaseðillinn verður birtur i DV miðvikudaginn 30. desember. Áskrifendur fylla seðilinn út, með réttu svari, og senda síðan seðilinn í umslagi merktu: Dagblaðið & Visir, DV-get- raunin, Þverholti 11, 105 Reykjavik. Hér er um að ræða einn glæsiiegasta getraunaleik sem efnt hefur verið til hérlendis. Sjá nánar um vinningsbílana ábls.8. -SG. frfálst, óháð dagblað LAUGARDAGUR19. DES. 1981. Ellefuárameð falsaða ávísun Ellefu ára drengur var tekin í vörzlu Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar eftir að hann reyndi að selja Samvinnubankanum falsaða ávísun upp á 500 krónur. Bankinn neitaði að taka við ávísuninni þar sem hún var þannig úr garði gerð. auk þess sem drengurinn þótti í yngra lagi. Eyðublaðið var úr hefti frá Sam- vinnubankanum á Akranesi. Ekki fannst ávísanahefti í fórum drengsins. Drengurinn hefur margoft áður komið við sögu hjá lögreglunni vegna innbrota og ýmissa smábrota. Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær færist á- vísanafals nú mjög í aukana og ættu verzlanir að vera á varðbergi gagnvart því. -ELA. Rjúpnaskyttumar: Biðu íbílnum „Við létum fyrirberast í bilnum frá því klukkan þrjú í fyrradag. Björgunarsveit Slysavarnarfélagsins á Selfossi fann svo bilinn laust fyrr há- degi í gær. Við vorum við ágæta heilsu, enda vel búnir,” sagði einn rjúpna- veiðimanna í samtali við DV. Eins og blaðið skýrði frá í gær var þriggja rjúpnaskytta leitað i fyrrinótt og framundir hádegi í gær. Þá fannst bíll þremenninganna í Heiðardrögum við Leirá. „Við létum vita að þarna myndum við leggja áður en við fórum af stað. Vegna veðurs var ekki hægt að ná fyrr til okkar, og ekki var viðlit að koma bílnum í gang. Við biðjum fyrir kærar þakkir til allra leitarmanna,” sagði skyttan. -SG. Þingiðíjólaleyfi Lokafundur sameinaðs þings fyrir jólaleyfi hefst kl. 10 fyrir hádegi í dag, laugardag. Náðist um það samkomulag í þingflokkunum. Lokaatkvæðagreiðsa um fjárlögin verður á fundinum. Afgreiðslu lánsfjár- laga hefur hins vegar verið frestað fram yfir áramót. -KMU/HERB. Þingmenn munu halda litiu jólin I dag og þá fer ríkis- stjómin að pakka inn jóla- gjafaá/ögunum. c ískalt Sevenup. T>r hressir betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.