Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 36
36 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. íslenzk borðstofusett Veljum íslenzkt veljum vandað Mjög hagstætt verð og góðir greiðsluskilmálar Lítið inn og skoðið okkar mikla húsgagnaúrval Verzliö þarsem úrvaliö er mest og kjörin bezt Trésmiðjan »___________ Dúnahúsinu Síðumúla 23 Sími 39700 MaxEuwe Með dr. Max Euwe er genginn heið- ursmaður sem setti mark sitt á skáksög- una um 60 ára skeið. Fyrst sem ungur upprennandi skákmaður, síðan heims- meistari í skák og loks er honum var trúað fyrir ábyrgðarmesta hlutverkinu innan alþjóðaskáksambandsins, FIDE, forsetastarfi þess. Max Euwe var af hollensku bergi brotinn, fæddur í smábæ skammt fyrir utan Amsterdam. Fljótlega komu í ljós miklir skákhæfileikar hjá pilti, hann var ekki nema 10 ára gamall þegar fyrsti sigurinn vannst, efsta sæti í skák- móti Amsterdam-borgar. Vmsir þótt- ust sjá þarna undrabarn í skáklistinni, en foreldrunum var meira í mun að drengurinn lyki námi sínu ótruflaður, og því voru ekki fleiri mót á dagskrá næstu árin. En um og eftir 1925, þegar Euwe var orðinn doktor í stærðfræði, gat hann snúið sér aftur aðskáklistinni. Hann atti kappi við fremstu meistara þess tíma, tefldi einvígi gegn Alechine 1926 og tapaði naumlega 4 1/2:5 1/2. Árið 1931 tefldi hann einvígi gegn Capablanca sem tapaðist 4:6, en hélt síðan jöfnu gegn Flohr i einvígi 1932. Á þessum tíma stóð Euwe í skugga jötn- anna tveggja, Alechines og Cpablanca. Margir töldu hann skorta herslumun- inn gegn þessum tveim, enda taldi Alechine sig ekki í neinni hættu er hann mætti Euwe í einvígi um heimsmeist- aratitilinn árið 1935. En margt fer öðruvisi en ætlað er. Eftir 30 skáka baráttu stóð Euwe uppi sem sigurveg- ari, 15 1/2:14 1/2 og heimsmeistara- titillinn hafði skipt um eigendur. Fram til þessa höfðu heimsmeistararnir hald- ið dauðahaldi í titil sinn, og helst ekki viljað hætta honum í keppni við hættu- legustu andstæðingana. En Euwe gaf Alechine færi á öðru einvígi tveim ár- um síðar og flestum á óvart náði Alechine að sigra. „Allir töldu víst að Euwe myndi tapa einvíginu 1935, en þá vann hann. En þegar flestir töldu hon- um sigurinn vísan 1937, tapaði hann,” sagði bandaríski stórmeistarinn R. Fine síðar meir. Eftir síðara einvígið gegn Alechine komst Euwe aldrei aftur í færi við heimsmeistaratitilinn. Alechine tók enga áhættu, forðaðist Laugavogi 89. Simi 22453. Austurstræti 6. Sími 22450. Póstsendum Teg.5127 Loöfóöraöir meö hrágúmmísóla Litir svart, dökkblátt rauöbrúnt ogkaki StærðirL: 40-46 \ 430. Teg. 100 Randsaumaðir (Goodyear) Leöur kúrekastígvól með ieöursóla. Stæröir 40—48 Leöurlitur Verðkr. 880,- ÞORSTEINN MA TTHÍASSON i DAGSiNS JL0 _ __ _ Rætt við nokkra áT% samferðamenn %*rMWMW I dagsins önn Þorsteinn Matthíasson skráði Nú er komið f jórða bindið af þessum fróðlegu ævi- þáttum. I þessa þætti er ekki valið eftir vegtyllum eða mannvirðingum. Hér eru alþýðumenn og konur að segja sögu sina en þó sumt þeirra landsþekkt fólk. Sagnir af lifsbaráttu til sjávar og sveita á liðn- um árum. Þessar bækur eru fróðleiksnáma um þau erfiðu og fjölbreyttu kjör sem eru að verða okkur hulin fortið. Sögumenn: Friðgeir Þorsteinsson, útgerðarmaður, sjómaður og oddviti á Stöðvar- firði. _____ Hallgrimur Egilsson, garðyrkjumaður, Hveragerði. Haraldur Kristinsson, frá Núpi, sjómaður, bóndi og smiður. Hinrik Vilhjálmur tvarsson I Höfnunum, útgeröarmaður, formaður og refaskytta og siðast en ekki sist faðir söngstjarnanna okkar Elliar og Vilhjálms. ------ Jónas Pétursson, fyrrverandi alþingismaður, bóndi, bústjóri á Skriðu- klaustri og verslunarstjóri. Marinó Guðfinnsson, Seyðfirðingur, sjómaöur og vaktmaður. Páll Einarsson, Mýrdælingur, sjómaður og bóndi, lengi fjósamaður á Vifilsstöðum og Bessastöðum. Þorbjörg Árnadóttir, hjúkrunarkona, hefur unnið ómetanleg störf^k I sjúkdómsvörnum og hjúkrun, auk þess skrifað nokkrar bækur. þá sem honum gat staðið ógn af og það var ekki fyrr en eftir dauða hans 1946, að fastmótaðar reglur voru settar um heimsmeistarakeppnina í skák. En þá var Euwe kominn af léttasta skeiði, Sovétmenn héldu innreið sina í sali Caissu og Botvinnik varð heimsmeist- ari árið 1948. Árið 1953 gerði Euwe lokatilraunina, er hann tefldi um áskorendaréttinn gegn Botvinnik á millisvæðamótinu i Ztirich. Fimmtán fremstu skákmenn heims tefldu tvö- falda umferð, enda reyndi mjög á út- hald keppenda. Hinn 52ja ára gamli Euwe byrjaði mjög vel, vann Kotov í 1. umferð og Geller á stórglæsilegan hátt í 2. umferð. En síðan fór aldurinn að taka sinn toll. Fimmti klukkutíminn er erkióvinur eldri skákmanna og margar skákir Euwe enduðu einmitt á sorgleg- an hátt, þegar inn á þetta hættusvæði var komið. Að millisvæðamótinu loknu lét Euwe sér nægja minni háttar skákmót, svo og ólympíuskákmót, en þar stóð hann sig jafnan mjög vel. Euwe var fremstur hollenskra skákmanna um langt árabil. í viðtali sem haft var við Euwe áttræðan var ekki um neina minnimáttarkend að ræða hjá gamla manninum: „Ég tel mig geta náð jafn- Skák Jóhann Örn Sigurjónsson tefli gegn flestum hollensku skákmönn- unum, jafnvel enn þann dag í dag, en ég get ekki náð frumkvæðinu gegn þeim.” Þegar Euwe hætti þátttöku í opinberum skákmótum, sneri hann sér af fullum krafti að uppbyggingu FIDE. Erfiðasta hlutverkið var honum lagt á herðar þegar Fischer og Spassky tefldu hér á landi um heimsmeistaratitilinn ár- ið 1972. Hvað eftir annað virtist „Ein- vígi aldarinnar” ætla að sigla í strand, en Euwe stýrði fram hjá öllum skerjum og kom fleyinu í örugga höfn. Skákir Euwe einkennast af rök- hyggju visindamannsins. Þar ræður engin ævintýramennska ríkjum, heldur nákvæmni í öllum útreikningum. Skák- ir hans eru jafnan hreinar og tærar. Ekki treysti ég mér til að velja eina þeirra fremur en aðra, heldur dreg nán- ast blint úr fjársjóði skákasafns Euwe. Hvítur: Euwe Svartur: Speyer SKÁKÞING HOLLANDS 1924. Drottningarpesðbyrjun. 1. d4 d5. 2. RD Rf6 3. e3 c6 (Einfaldast og best er 3.. Bf5.) 4. c4 e6 5. Rb-d2 (Eftir 5. Rc3 dxc4 6. Bxc4 b5 er komin upp Merans vörn.) 5.. c5 6. Bd3 Rb-d7 7. 0-0 b6? (Betra var 7.. Be7. Hinn gerði leikur er einungis tíma- sóun.) 8. cxd5 exd5 9. e4! Bb7 10. exd5 Bxd5 11. Hel+ Be7 12. dxc5 Rxc5 (Eða 12.. bxc5 13. De2 og svartur nær ekki að hróka. Með hinum gerða leik splundrar svartur þó ekki peða- stöðu sinni.) 13. Bb5+ Kf8 14. b3 Bb7 15. Bb2 Rd3 16. Bxd3 Dxd3 17. Ha-cl Hd8? (Svartur varð að leika 17... Hc8. Nú fær hvítur færi á fallegri leikfléttu.) abcdefgh 18. Hxe7! Bxf3 (Ef 18...Kxe7 19. Ba3 + Ke8 20. Del + Re4 21. Hc7 Hd7 22. hxb7 Hxb7 23. Rxe4 og hvítur hefur vinningsstöðu.) 19. Ba3! (Ef nú 19... Bxdl 20. He3 + Kg8 21. Hxd3 og hvit- ur vinnur mann.) 19.... Da6 20. Hc-c7! Dxa3 21. Hxf7 + Ke8 22. Del + Gefið. Svartur bjargar sér ekki frá máti. Ef 22... Re4 23. Rxe4 Hdl 24. Rd6+ Kd8 25. Hd7 mát. Jóhann Örn Sigurjónsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.