Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Síða 24
24
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
Jóla-
sveinar
r
a
Strigapoki
fyrir
jólapóstinn
Jólapósturinn fer að berast inn um
bréfalúguna næstu daga. Þeir sem
halda þeim sið að opna ekki jólapóst-
inn fyrr en á aðfangadagskvöld
hljóta að safna póstinum saman á
einum stað. Þá eru pokar úr striga-
efni fyrir jólapóstinn vinsælir. Auk
þess sem póstpokinn hefur notagildi
er líka skemmtilegt að setjast niður
og dunda við að sníða, klippa og
líma. Jólaföndrið er ágætis fjöl-
skylduskemmtun. Börnin, sem eru
oftast dálítið óþreyjufull þessa síð-
ustu viku fyrir jól, kunna vel að meta
stund með fullorðnum við jóla-
föndur. Efnið sem þarf að hafa við
höndina, til að búa til póstpoka er
strigi, skábönd, filt og lím. Á skýring-
armyndum, sem fylgja hér með, sjáið
þið að það þarf eina sex liti af filti,
rautt, hvítt, grænt, svart, brúnt, biátt
og húðlit í andlit litla jólasveinsins.
Teikningarnar lét okkur i té Selma
Jónsdóttir, auglýsingateiknari og
húsmóðir i Fossvoginum. Hún sagði
okkur einnig að verkið ætti ekki að
taka nema eina og hálfa klukku-
stund. Striga og filt er víða hægt að
kaupa, til dæmis í Skiltagerðinni á
Skólavörðustíg.
-ÞG.
CSmit
huröir
Nú ef poki undir jólapóstinn er
þegar fyrir hendi á heimilinu, fengum
við fleiri hugmyndir að jólaföndri hjá
Selmu Jónsdóttur. Til dæmis jóla-
sveinastrák og stelpu úr filti, sem sett
eru á rauðan silkiborða og hengd eru
á hurðir eða veggi til skrauts. Grænt
filt er neðst, en fyrst byrjið þið á því
að sníða jólasveinastakkinn (rautt
filt) og klippið svo græna filtið eftir
honum. Teikningarnar skýra sig
annars sjálfar. Það sem þið þurfið til
að útbúa þessa jólasveina er filt,
fimm litir, skæri, lím, rauður silki-
borði og góður tússpenni. Þá er ykkur
ekkert að vanbúnaði til að hefjast
handa. Við óskum ykkur góðrar
skemmtunar við jólaföndrið.
-ÞG.