Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Side 3
3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982.
Ársel liggur
undir
skemmdum:
{ Allt á flot
r efrígnir
—tvisvar skipt um parket með skömmu millibili
„Það hafa orðið miklar
valnsskemmdir á húsinu í vetur, því er
ekki að leyna, og fyrir skömmu var
alveg skipt um parket á dansgólfi, en
það er í annað sinn á stuttum tíma sem
það verður fyrir skemmdum,” sagði
Valgeir Guðjónsson, forstöðumaður
Ársels, hinnar nýju félagsmiðstöðvar í
Árbæ, í samtali við DV.
Félagsmiðstöðin nýja er rúmgóð og
glæsileg, enda var engu til sparað við
byggingu hennar, en galli er á gjöf
Njarðar, þar sem frágangi utanhúss er
mjög ábótavant. Ef gerir rigningu
eða frost stiflast öll niðurföll og allt fer
á flot innanhúss.
„Ástæðan fyrir því, að frágangi
utanhúss er svo ábótavant er að til
stendur að byggja bókasafnsálmu á
lóðinni, svo að ekki þótti taka því að
ganga frá lóðinni aðeins til að rífa allt
upp aftur.”
— Er þetta mikill fjárhagsbag^i á
ykkur?
„Fjárhagslega séð kemur þetta ekki
niður á starfseminni i húsinu, það er
Reykjavikurborgar að sjá um
kostnaðarhliðina. Hins vegar þykir
okkur starfsfólkinu örðið harla hvim-
leitt að byrja alltaf á alls kyns tilfæring-
um og vatnsaustri, þegar við komum til
vinnu á morgnana,” sagði Valgeir
Guðjónsson. __
Viðamikil kynning
á íslandi í Luxemborg
Á morgun hefst í Luxemborg
íslandskynning sem Flugleiðir, Ferða-
málaráð, Útflutningsmiðstöð iðnað-
arins og Ferðaskrifstofa rikisins standa
að. Sýningin mun standa í hálfan
mánuð.
— umkaup ogkjör
Samningar um kaup og kjör starfs-
manna hjá íslenzka álfélaginu hf.
tókust aðfaranótt sunnudagsins, en
þeir höfðu verið lausir frá 1. febrúar.
Þessir nýju samningar eru nú til
athugunar i stéttarfélögum starf-
mannanna, en þau félög eru 10 talsins.
Er stefnt að undirritun samninganna
undir miðjan mánuð.
Sendiherra íslands ntun opna
hátíðina í Hótel Aerogolf Sheraton og
síðan mun verða þar tízkusýning,
hljómsveitin Mezzoforte mun leika og
sýnd verður 15 mínútna land-
kynningar-kvikmynd sem Ferðamála-
Ekki hefur verið greint frá því í
hverju nýju kjarasamningarnir felast,
en samkvæmt heimildum DV eru breyt-
ingar i svipuðum farvegi og í
almennum kjarasamningum sem gerðir
hafa verið undanfarið. Hins vegar eru
kjör hjá fsal taliri allmiklu betri en á
almennum vinnumarkaði.
ráð og Flugleiðir hafa látið gera í sam-
einingu. Um kvöldið verður síðan
borinn fram íslenzkur matur.
Næsta dag verður efnt til happ-
drættis með ókeypis miðum og verða
íslandsferðir i verðlaun. Þá mun Jónas
Guðmundsson opna málverkasýningu
og Mezzoforte kemur fram í Radio
Luxembourg.
Efnt verður til íslenzkrar kvik-
myndahátíðar og verða sýndar mynd-
irnar Útlaginn.Land og synir og Óðal
feðranna.
Af öðrum atriðum má nefna að efnt
verður til sérstakrar barnahátíðar, sett
verður upp sýning á íslenzkum skart-
gripum úr silfri og sýndar verða stækk-
aðar ljósmyndir Gunnars Hannessonar
ljósmyndara sem eru í eigu Flugleiða. .
Að sögn Svein Sæmundssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, verður þetta
ein viðamesta íslandskynning sem efnt
hefur verið til í seinni tíð.
-ÓEF.
HERB.
Manntalið gengur vel
SAMIÐ HJÁ ÍSAL
SJrAnton DoSrt, ekm frmgaatíniáHandl fuKtrúidanstistarinnar.
DV-mynd Eirikur Jónsson.
Tækifærí fyrír ballettunnendur:
Sir Anton Dolin
rabbar um Giselle
— í Þjóðleikhúskjallaranum annað kvöld
Sir Anton Dolin rabbar um ballett-
inn Giselle og sögu hans i Þjóðleik-
húskjallaranum annað kvöld,
ftmmtudag, kl. 20.30. Dolin er sem
kunnugt er hér á landi á vegum Þjóð-
leikhússins til þess að setja upp
þennan fræga ballett.
Sir Anton Dolin er einn frægastj
núlifandi fulltrúi danslistarinnar,
enda spannar ferill hans ýmis mestu
blómaskeið dansins á þessari öld.
Hann er einnig kunnur rithöfundur
og hefur skrifað þrjú bindi endur-
minninga auk margra annarra bóka
um danslist og ævisagna.
Dolin var nýlega aðlaður fyrir
framlag sitt til danslistarinnar. Hann
fæddist á Englandi en er af írsku
ættum. Hann hóf dansnám barn að
aldri.
Giselle hefur verið sett upp í fjöl-
mörgum löndum og hefur Dolin
stjórnað mörgum þeirra uppfærslna.
Hann kemur hingað til lands frá
París þar sem hann setti upp hinn
frægasta af eigin dönsum, Pas de
Quatre í Parisaróperunni. Dolin
hefur komið til íslands áður, en þá
selti hann einmitt upp Pas de Quatre
fyrir íslenzka dansflokkinn.
Dolin hefur því frá mörgu að segja
og gefst fólki tækifæri til þess að
kynnast einu helzta nafninu í ballett-
heimi þessarar aldar. .j j|
„Þetta hefur allt saman gengið mjög
vel og raunar alveg samkvæmt áætlun.
Það vinna í úrvinnslunni þetta 5 til 7
manns á dag og sem fyrr var ætlað, þá
er niðurstaðnanna að vænta árið ’84”,
sagði Guðni Baldursson á Hagstofunni
þegar hann var inntur eftir því hvernig
gengi að vinna úr manntalinu fræga
sem gert var í janúar á fyrra ári.
„Niðurstöðurnar verða gefnar út í
bókarformi þegar þær liggja fyrir, eins
og raunar hefur verið gert við fyrri
manntalsniðurstöður. Auk þess munu
allar itarlegar tölur sem ekki verða í
bókinni látnar liggja frammi á Hag-
stofunni”, sagði Guðni. —SER.
Þjófurinn fór illa
á lyf jaþjófnaðinum
Brotizt var inn í Heilsugæzlustöðina
á Bolungarvik aðfaranótt fimmtudags
og aftur á sunnudag. Þar var peningum
og lyfjum stolið og talsverðar skemmd-
ir unnar á húsi og innbúi.
Innbrotsþjófurinn fór illa á pillu-
stuldinum, því að hann var fluttur
þungt haldinn á sjúkrahúsið á ísafirði
eftir pilluátið. Hann kom til kunningja
sins og var þá langt leiddur. Kunning-
inn hringdi þegar á lækni og var mann-
inum komið á sjúkrahús. Hann var síð-
an fluttur með sjúkraflugvél til Reykja-
víkur.
Maður þessi er aðkomumaður á
Bolungarvík, en hefur verið þar við
vinnu. Hann hefur áður verið tekinn
fyrir afbrot. —Kristján, Bolungarvík.
Fururúm nýkomin
MIKIÐ
ÚRVAL
Opið:
mánud,—miðvikud. til kl. 18
fimmtudaga til kl. 20
f östudaga til kl. 22
laugardaga kl. 9—12
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Húsgagnadoild
Símar: 10600 og 28601.
HHHHHHHHHHHHHHrlrl
dier pepsi
SYKURLAUST 1
SYKURLAUST
í línurnar
og drekktu
PEPSI jd
MINNA EN EIN KALORIAI FLOSKU