Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Blaðsíða 5
5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982.
Samþykkt Fræðsluráðs:
Óbreyttur rekstur
Vogaskóla næsta vetur
„Það var ákveðið að reka skólann
áfram við óbreyttar aðstæður næsta
vetur, en hvað þá tekur við hefur ekki
verið ákveðið enn,” sagði Kristján
Benediktsson, formaður fræðsluráðs, í
samtali við DV í morgun, en á fundi
Fræðsluráðs Reykjavikur i gær var
ákveðið að fresta fyrirhuguðum breyt-
ingum á Vogaskóla, þeim að færa
kennslu 4. til 9. bekkjar yfir í Lang-
holtsskóla.
„Það liggur þó ljóst fyrir, að innan
nokkurra ára kemur LangholLsskóli til
með að geta tekið við öllum nemendum
Vogahverfis.”
— Þýðir þetta, að fyrirhuguðum
breytingum hefur aðeins verið frestað?
„Engin' ákvörðun hefur verið tekin
um það ennþá. Hugsanlegt væri að
reka Vogaskóla áfram með einni
bekkjardeild í hverjum árgangi. Þar
sem skólinn þyrfti þá ekki að nýta allt
sitt húsnæði mætti ef til vill nýta það
undir annan skóla, borgina eða eitt-
hvað annað. Hins vegar verður tekin
upp samvinna strax næsta vetur við
Langholtsskóla og munu nemendur 9.
bekkjar Vogaskóla sækja þangað tíma
i ýmsum valgreinum.”
— Eru allir ánægðir með þessi mála-
lok?
„Það held ég, allir fræðsluráðsmenn
greiddu þessu atkvæði nema Bragi
Jósepsson, sem sat hjá. Þá voru skóla-
stjórinn og tveir fulltrúar foreldra við-
staddir og virtust þeir sætta sig vel við
þetta. Hins vegar er málinu ekki lokið,
það þurfa allir að leggjast á eitt um að
finna skynsamlega lausn þar á,” sagði
Kristján Benediktsson.
-KÞ
Framsókn á Seyðisf irði:
Fjögur efstu sætin bundin
Ellefu frambjóðendur voru í fram-
boði vegna prófkjörs Framsóknar-
flokksins á Seyðisfirði, sem fram fór á
laugardag. Þátttakendur í prófkjörinu
voru 137.
Efstur var Þorvaldur Jóhannsson,
sem hlaut 80 atkvæði í fyrsta sæti og
alls 128. Annar varð Birgir Hallvarðs-
son með 49 atkvæði í 1.—2. sæti og 105
atkvæði alls og í þriðja sæti varð Þór-
dís Bergsdóttir með 54 atkvæði í 1.—3.
sæti og 106 atkvæði alls. í fjórða sæti
varð Friðrik Aðalbergsson með 70 at-
kvæði í 1.—4. sæti og 117 atkvæði alls.
Þessi fjögur sæti voru bindandi.
í fimmta sæti varð Björn Á. Ólafs-
son og i sjötta sæti Hreggviður M.
Jónsson. Framsókn á nú 3 fulltrúa i
bæjarstjórn Seyðisfjarðar.
-JH/JG Seyðisfirði
Alþýðubandalagið Seyðisf irði:
57 tóku þátt í opnu próf kjöri
Opið prófkjör var hjá Alþýðubanda-
laginu á Seyðisfirði á laugardag. Fram-
bjóðendur voru alls 22 en þátt tóku 57 í
prófkjörinu. Fjögur efstu sætin eru
bundin eftir prófkjörið en þau skipa:
I. Hermann Guðmundsson, með 37
atkvæði i I. sæti en 47 alls. 2. Gisli
Sigurðsson nteð 45 atkvæði i I.—2.
sæti og 49 alls. 3. Jóhanna Gísladóttir
með 42 atkvæði í 1.—3. sæti og 48 alls
og i 4. sæti Ljósbrá Guðntundsdóttir
með 25 i 3.-4. sæti og 30 alls.
Alþýðubandalagið á Seyðisfirði á nú
einn fulltrúa í bæjarstjórn.
-JH/JG Seyðisfirði
Myndin sem símsend varmeðhraði tíl Helsinki
Mjór er mikils vísir
Það lá mikið á að símsenda þessa
mynd til finnska sjónvarpsins í gær-
morgun vegna viðtals sem sjónvarpa
átti þar í landi um kvöidið. Viðmæl-
andi hefur að vísu elzt töluvert síðan
hún var tekin og margt drifið á daga
hans á löngum stjórnmálaferli, en
litli drengurinn sem lítur tilveruna
svo alvarlegum augum af myndinni
er enginn annar en forsætisráðherra
okkar, Gunnar Thoroddsen. Hann
situr nú fund Norðurlandaráðs i
Helsinki.
Það var Ljósmyndaþjónusta Mats
Wibe Lund sem sá finnska sjónvarp-
inu fyrir myndum í sambandi við við-
talið, en einhverra hluta vegna kom-
ust þær sem póstsendar voru ekki á
leiðarenda i tíma.
Myndin er tekin af konunglegum
hirðfótógraf P. Brynjólfsson árið
1912.
829 þús-
undílaun
Aflaverðmæti Jóns Kjartanssonar
frá Eskifirði á siðasta ári var 14.227
milljónir króna. Alls skilaði skipið
28.316 lonnum af loðnu á land og 1554
tonnum af kolmunna.
Úthaldsdagar skipsins voru 206. Til
gamans má geta þe.ss að laun skip-
sljórans, Þorsteins Kristjánssonapvoru
829 þúsund. -Emil, Eskifirði
Sendibfíar
Ford Transit, árg. 1982, disil, ckinn
9000 km.
Ford Transit árg. 1977, bensin,
stöðvarpláss.
Toyota Hi-Ace árg. 1977.
Toyota Hi-Ace árg. 1980.
Datsun E 20 árg. 1980.
Mitsubishi — pick-up L 300 árg. 1981.
Opið virka daga kl. 9—19
Opið laugardaga kl. 10-18
OQ
QP
BÍLASALAN
BUK
SÍÐUMÚLA 3-5-
105 REYKJAVÍK
SÍMI: 86477
FORD TAUNUS1600 GL
Kostar aöeins krónur
135.000,-
Hvarfœrö þú meirafyrir peningana?
Ford Taunus — Þýzktír gæðabfll
Sveinn Egi/sson hf.
SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100