Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982.
7
endur______, Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Kalt borð er einnig sígilt i fenningarveizlum. Stundum fylgja þvi einn eða tveir heitir
réttir.
fermingardagurinn er upppantaður, en
enn er hægt að fá á hina ef pantað er
strax.
Kokkhúsið: Hægt er að fá heita rétti
með forréttum og eftirréttum. Verðið
fer eftir aðstæðum, fjölda fólks og því
hvað pantað er. En sem dæmi má
nefna að á dögunum var seldur
hamborgarhryggur með forrétti og
eftirrétti handa 50 manns á 150 krónur
á mann.
Árberg: Hægt er að fá hvers kyns heita
réíti með forrétti eða súpu, eftir því
sem hver vill. svo dæmi sé tekið um
heitan rétt þá kostar marínerað lamba-
læri með súpu 104 krónur á mann.
Vissara er að panta sem fyrst.
Rán: Þar er hægt að fá allar mögulegar
gerðir af heitum mat. Svona til að
nefna dæmi um verð kostar
sitrónusteiktur lambahryggur 92
krónur á mann, grísasteik 120 og
nautalundir 168. Súpa eða forréttur
fylgir ekki með í þessu verði en vita-
skuld er hægt að fá það með. Panta
þarf með fjögurra daga fyrirvara.
Við látum þá lokið þessu matartali.
Auðvitað eru öll hótelin eftir. Það eru
líklega þau sem helzt er hægt að fá mat
hjá úti um land.
-DS.
Neytendablaðið:
Sjónvarpið þver-
brýtur eigin lög
„Eru þessar reglur allt of oft þver-
brotnar,” segir í nýjasta hefti
Neytendablaðsins um reglur þær sem
sjónvarpið og löggjafarvaldið hafa
sett um auglýsingar. Reglur
sjónvarpsins eru frá árinu 1976.
Eínnig eru í gildi lög um
viðskiptahætti frá árinu 1978. Brotið
er í bága við margt af því sem í hvort
tveggja er skipað. Reglur
sjónvarpsins munu í endurskoðun.
í Neytendablaðinu eru nefnd tvö
dæmi um auglýsingar sem brjóta í
bága við reglur sjónvarpsins.
Auglýsing frá útgáfufyrirtækinu
Samhjálp þar sem maður virðist
hrapa til bana eftir að hafa verið eltur
af öðrum. Brýtur þetta í bága við að
auglýsingar mega ekki vekja ótta hjá
áhorfendum og einnig að þær
misbjóði ekki börnum. Hitt dæmið
er um að kveðið er á um að ekki megi
sama vafa auglýst oftar en 52 sinnum
á ári. í Neytendablaðinu er hins vegar
fullyrt að bæði Coke og Pepsi séu
auglýst mun oftar.
Að síðustu er svo nefnt dæmi um
það þegar brotið er i bága við lög um
viðskiptahætti. Það er þegar ryksuga
er auglýst frá Philips. Hún er sýnd
soga upp 3 kílóa lóð. í Neytenda-
blaðinu segir hins vegar að flestum
blandist ekki hugur um að þetta sé
ekki hægt. Því sé hér brotin sú grein
sem í segir að óheimilt sé að veita
rangar upplýsingar í auglýsingum.-DS.
„Ég lœt bankann ávaxta peningana mína."
Bankinn getur ávaxtað peninga þína
án nokkurs kostnaðar eða ánættu!
Þeir hœtta engu sem leggja peninga sína
inn á verðtryggðan bankareikning.
Peningar á verðtryggðum bankareikningi
eru lausir tvisvar á ári. Þœgileg viðskipti,
íullkomið öryggi, engin sölulaun. Á verð-
tryggðum bankareikningi íœrðu auk
vaxtanna íullar vísitölubœtur.
Inneign þín er meira að segja skattírjáls.
Viðskiptabankamir
Því segja nú sífellt fleiri: „Ég lœt bankann
ávaxta peningana mína."