Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Þingmaðurinn smyglaði hassi á þing Norður- landaráðs — Segir auðvelt að ná í hassallsstaðar á Norðurlöndunum. EinnigíReykjavík Gunnlaugur A. Jónsson frá Sviþjóð: „Þetta var bara hugsað sem uppákoma,” sagði danski þing- maðurinn Ole Henriksen eftir að hafa smyglað hassi inn á þing Norð- urlandaráðs sem nú stendur í Helsinki. Var ekki um annað meira rætt á þinginu í gær en þetta hasssmygl danska þingmannsins og mæltist það yfirleitt illa fyrir. Henriksen kvaðst hafa keypt hassið á Sergelstorgi í Stokkhólmi og hafði það ekki tekið hann meira en hálftíma að útvega hassið. í sjónvarpsviðtali í gær sagði Henriksen að hann hefði smyglað hassínu með sér á þing Norðurlanda- ráðs til að vekja athygli á, að það væri ekki bara í Kristjaníu, sem auðvelt væri að kaupa hass. Það sama ætti líka við um allar höfuð- borgir Norðurlanda, og tók hann sér- staklega fram, að Reykjavík væri ekki undanskilin. Hann sagði það tvöfeldni hjá Svíum að krefjast þess að Kristjaníu yrði lokað á sama tima og hass væri selt fyrir opnum tjöldum í Stokk- hómi. — Svíar og Norðmenn hafa haldið því fram að Kaupmanna- höfn væri fíkniefnamiðstöð Norður- landa. Ýmsir fulltrúar á þingi Norður- landaráðs urðu til þess að gagnrýna Henriksen. Meðal þeirra fyrrum félagsmálaráðherra Svíþjóðar, Rune Guttormsson, sem sagðist þeirrar skoðunar að Danir ættu að senda Henriksen heim af þinginu, þar sem hann hefði brotið lög með því að kaupa hass og smygla því síðan inn í Finnland og inn á þing Norðurlanda- ráðs. Sorsa, forsætisráðherra Finnlands, benti á að þar sem Henriksen nyti pólitískrar friðhelgi á þinginu væri tæpast að vænta nokkurra aðgerða gegn honum. Jörgensen, forsætisráðherra Dan- merkur, reyndi að bera í bætifláka fyrir danska þingmanninn og sagði að Danir hefðu ekki í hyggju að senda hann af þinginu. Henriksen er þingmaður sósíalíska þjóðarflokksins. Hann hélt blaða- mannafund til þess að upplýsa að hann hefði smyglað hassinu óáreittur í gegnum tollinn, og hefði gert þetta til að sýna fram á hve auðvelt væri að verða sér út um hass annars staðar en í Kjöben. ________ Vilja afnema skólabfla- skylduna í Bandaríkjunum Öldungadeild Bandaríkjaþings sam- þykkti i gær lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir að endi verði bundinn á þá aðferð skólayfirvalda til þess að jafna hvítum og hörundsdökkum niður á skólana að aka skólabörnum úr heima- hverfum þeirra í skólabílum til fjarlæg- ari skóla. Frumvarpið á þó eftir að fara fyrir fulltrúadeildina og þykir litill mögu- leiki á að það hljóti samþykki þar öðru- vísi en mikið breytt. — Fulltrúadeildin hefur nýlega samþykkt frumvarp um svipað efni sem ekki gengur eins langt til afnáms þessum skólareglum. Afgreiðsla frumvarpsins í öldunga- deildinni þykir mikill sigur íhalds- manna sem gera sér vonir um að knýja í gegn á þessu ári frumvörp er banni fóstureyðingar og ógildi úrskurð hæstaréttar um bann við bænaleiðslum í opinberum skólum. Frjálslyndir höfðu tafið afgreiðslu skólabílafrumvarpsins með málþófi sem þeir héldu uppi í sjö mánuði. Skólabílareglurnar mæltust misjafn- lega fyrir þegar þær voru settar á sínum tíma og mörgum þykir sem þær hafi alls ekki orðið að því gagni sem ætlazt var til. TVEIR RAÐHERR- AR SEGJA AF SÉR í S-AFRÍKU Tveir óánægðir ráðherrar í stjórn S- Afríku sögðu af sér í gær. Er afsögnin talin boða klofning í stjórnarflokkn- um, Þjóðarflokknum. í dag á að halda fund í þingnefnd sem ákveður örlög 22 uppreisnar- gjarnra þingmanna sem hafa ráðherr- ann Andries Treurnict að leiðtoga. Hann neitaði í síðustu viku að styðja Botha forsætisráðherra í leynilegri at- kvæðagreiðslu. Dr. Treurnicht og ráðherra sá er fjallar um menntamál blökkumanna, Ferdie Hartzenberg, afhentu Bohta Kjötkveðjuhátíð I Rio de Janero: Græskulaust gaman á yfirborðinu en í kjölfar hennar fyigja morð og ofbeldisverk. Kjötkveðjuhátíð kostar mannslíf í Ríó de Janeiro Nýlega lauk hinni árlegu kjöt- kveðjuhátíð Brasilíumanna. Stóð hún að venju yfir i fjóra daga og að henni lokinni lágu 300 manns í valn- um. þykir þetta óvenju lág dánartala í samanburði við fyrri kjötkveðjuhá- tíðir. í Rio de Janeiro voru framin 39 morð á meðan á kjötkveðjuhátíðinni stóð, en 30 morð í Sao Paulo. Eru þetta mun færri morð en árið áður eða 30% færri í Rio de Janeiro. í allt létust 150 manns í Rio í sambandi við kjötkveðjuhátíðina, en 11.489 voru fluttir slasaðir á sjúkrahús. afsögn sína. Var það rétt áður en sá frestur rann út sem Botha hafði gefið þeim til að velja um tvo kosti: Annað- hvort að styðja hann eða sæta brott- rekstri úr flokknum sem setið hefur við völd í S-Afríku i rúmlega 30 ár. Er nú mikið spáð í það hvort dr. Treurnicht, sem einnig hefur verið leystur frá störfum sem leiðtogi Þjóðarflokksins í Transvaal, muni mynda nýjan flokk ásamt 17 öðrum þingmönnum. Dr. Treurnich tilkynnti fréttarit- urum sl. mánudag að hann væri skilinn aðskiptum við þjóðarfiokkinn. Skæruliðum El Salvador stjórn- að frá Managua — segja Haig utanríkisráðherra og Casey, forstjóri CIA Tannpína svo um munar Ffll: Ekkert tannpfnu. gamanspaug að fá Fíllinn Holmuy, sem á heima í dýragarði í S-Afríku, leið hræðilegar þjáningar. Hann grét af kvölum þegar hann átti að éta, því að hann hafði fengið svo hræðilega tannpínu. En það þurfti svo sannarlega öfiugt hjálparlið til að lina þján- ingar vesalings fílsins. í allt unnu 17 tannlækuar, læknar, dýra- læknar og tæknimenn að því að hjálpa honum og þvílíkt magn þurfti af deyfilyfi að það hefði nægt til að drepa 70 manns. Þetta er í fyrsta sinn sem slík aðgerð er gerð á fíl og í öryggis- skyni fylgdust læknar stöðugt með hjartslætti Holmys og tóku úr honum margar blóðprufur á meðan hann var meðvitundar- laus. Við rannsókn á tönnum Holmys kom í ljós gat í einni þeirra, á stærð við krepptan hnefa. Enda kannski ekki að furða þar sem Holmy er sextugur að aldri. Bandarikin hafa óhrekjanlegar sannanir fyrir því að vinstrisinna skæruliðum í • Hl Salvador sé stjórnað erlendis frá, eftir því sem Alexander Haig utanríkisráðherra segir. En hann útilokar að bandariskt herlið verði sent til E1 Salvador, jafnvel þótt skæruliðarnir kynnu að ná yfir- höndinni í baráttu sinni gegn herfor- ingjastjórninni, sem Bandarikin hafa stutt. Haig utanríkisráðherra sagði utan- ríkisnefnd fulltrúadeildarinnar í gær að Mið-Ameríka væri mjög mikilvæg öryggi Bandaríkjanna en vísaði alfarið á bug sérhverri samsvörun sem menn reyndu að finna með E1 Salvador og Víetnam. Hann vildi ekki upplýsa nánar um sannanir Bandaríkjastjórnar á að skæruliðunum væri stjórnað erlendis frá og alls ekki ljóstra upp hvernig þær upplýsingar væru fengnar. Skýrði hann nefndinni svo frá, að leyniþjónustu- nefnd fulltrúadeildarinnar hefði verið skýrt frá málinu í einstökum smáatrið- um í síðustu viku. Sagði hann að þessar sannanir væru bæði yfirþyrmandi og óhrekjanlegar. William Casey, forstöðumaður leyniþjónustunnar (CIA), sagði í við- tali fyrr í vikunni að skæruliðunum væri stjórnað frá Managua (höfuðborg Nicaragua) af atvinnumönnum, þraut- reyndum i skæruhernaði. Haig ráðherra sagði utanríkisnefnd- inni að Kúba og hinir nýju bandamenn hennar í Nicaragua væru vaxandi ógnun við innanlandsfrið landanna við Karíbahafið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.