Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Síða 17
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982. 17 > Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Stóri bróðir og íþróttakennaramir — „er leikf imin þeirra nógu góð?” Hallgrímur Marinósson skrifar: Mjög virðist það fara fyrir brjóstið á iþróttakennarastéttinni hversu miklar vinsældir vaxtarræktar eru orðnar hér á landi. Hafa þeir að undanförnu reynt hvað þeir geta til að stöðva framgang vaxtarræktarinnar og í því skyni málað skrattann á vegginn. Nú siðast svarar Sigurjón Elíasson formaður íþrótta- kennarafélags Islands Gunnari Ólafs- syni kraftlyftingamanni hér i dálknum á heldur ósmekklegan hátt. Að sjálfsögðu er það út af fyrir sig skiljanlegt að lærðir íþróttakennarar verði afundnir þegar fólk leitar til ann- arra en þeirra til að verða sér úti um hoila hreyfingu og áreynslu. En hafa þessir góðu menn fylgst með tímanum? Er leikfimi þeirra nógu góð? Margir segja að iþróttakennsla skólanna sé fremur til þess fallin að fæla ungt fólk frá iþróttum en að örva það til dáða. Ekkert fullyrði ég um það en ljóst er að íþróttir njóta ekki nægilegrar hylli inn- an skólanna. íslensktrit um vaxtarrækt á döfínni Sigurjón kvartar undan því í bréfi sínu að ekkert sé til af islensku efni um vaxtarrækt. Því er til að svara að það er rétt að lítið er til skrifað á íslensku um vaxtarrækt. En þetta stendur til bóta. Á döfinni er útgáfa blaðs vaxtarrækt- armanna. Þar verða margar ágætar greinar um innlenda vaxtarrækt og er- lenda. Þar verða greinar eftir fræga er- lenda lækna og vísindamenn sem fylgst hafa betur með en islenskir leikfimi- kennarar. Mun blaðið án efa varpa skýru ljósi á ágæti vaxtarræktarinnar. Vörurfrá Heimavali Þá talar Sigurjón um einhver „töfra- efni” frá Heimavali og reynir að gera lítið úr þeim vörum sem fyrirtækið býður. Því er til að svara að þar er um viðurkennda vöru að ræða, m.a. er þar um að ræða próteinduft. Prótein eða Halgrimur Marinósson skrifar að slysatfðni sé óviða minni en i lyftingum og að ekki sé þörf á neinu eftirliti f vaxtarræktar stofnunum. eggjahvítuefni eru viðgerðar- og uppbyggingarefni líkamans og ljóst er að nútima-íslendingur þarfnast meiri eggjahvítu en hann fær úr sinni daglegu fæðu. Hér er hvergi um neina „töfra” að ræða. Öll sú vara sem Heimaval býður upp á er framleidd að ráði fær- ustu manna í ýmsum vísindum. Fram- Ieiðandinn er stórt bandarískt fyrir- tæki, Weider, og er það mjög virt í sinni grein. Að tala um notkun á próteini, vítamínum og steinefnum sem vafasama, eins og Sigurjón gerir í grein sinni, gerir manninn í meira lagi undar- legan í augum lesandans. Og snúum okkar síðan að líkams- ræktarstöðvunum sem eru á stuttum tíma orðnar svo vinsælar hér á landi að þúsundir manna stunda vaxtarræktina. Greinilega svíður íþróttakennurum það að slík starfsemi fari fram án fólks „meðpróf”. Reynsla mikils virði í þessari starfsemi, eins og víðast hvar í hinu almenna íþróttastarFi, kom- ast menn mæta vel af án íþróttakenn- ara með próf upp á vasann: menn eins og Guðmundur Sigurðsson, Gústaf Agnarsson, Óskar Sigurpálsson, Friðrik Jósepsson, Sverrir Hjaltason, allir með langa reynslu að baki og hafa unnið til stórra verðlauna á erlendum vettvangi í lyftingum. Eða Viðar og Sveinbjörn Guðjonsen, þekktir út fyrir landsteinana í júdóíþróttinni. Þessir menn hafa orðið að þjálfa án leiðsagn- ar iþróttakennara en náð árangri samt og það undarlega: Þessir menn hafa ekki slasast t sinni íþrótt heldur hafa þeir alla tíð notið þess að stunda holla íþrótt. Slysatíðni í lyftingum er mjög lág miðað við aðrar greinar, er því næst í núlli hér á landi eftir því sem best verður séð. Sama er að segja um þá sem leita til líkamsræktarstöðvanna og þjálfa þar. Þeir fá sérfræðinga til leiðsagnar og þar hafa engin slys orðið. í þessu, eins og flestu öðru, reisir einstaklingurinn sér ekki hurðarás um öxl, hann fer var- lega og ofbýður sér ekki, helst að unga fólkinu sé hætt við því en með því er haft vakandi auga á hverri stofnun. Sumir menn virðast fæddir með þá áráttu að hið opinbera sé með eftirlit um allar trissur. Þetta minnir á bókina „1984”, þar sem Stóri Bróðir fylgist með öllu og öllum, sér inn í hvern af- koma. Það er stutt í árið 1984. Við skulum vona að spá Orwells í bók þess- ari rætist aldrei. Reyndar hefur borgar- læknir svarað fyrir sig. Það er ekki þörf á neinu eftirliti í vaxtartæktar- stofnunum. Það eftirlit er innt af hendi af þeim sem þær reka, af mönnum sem vita nákvæmlega hvað fólk má bjóða sér. ÞeO verður lengi i mktnum hmft frábmrt þorrablót sem hóteisljóri Hóte/ Borgamess hólt fyrir Bfeyrisþega, seglr bréfHtori. Frábært kvöld á Hótel Borgarnesi — þegar Jóhannes hótelstjóri bauð lífeyrisþegum á þorrablót Ellilífeyrisþegi skrifar: Mig langar til að senda Jóhannesi hótelstjóra Hótel Borgarness beztu þakkir fyrir frábært kvöld er hann bauð öllum lífeyrisþegum, 67 ára og eldri, og mökum þeirra á þorrablót 17. febrúar síðastliðinn, einnig hljómsveit og öllu starfsfólki. Þetta kvöld verður lengi í minnum haft. Hafið öll beztu þakkir fyrir. XEROX* Leiðandi merki í Ijósritun HOLLAND IERA Frystikista AFC Frystiskápur AFE Frystiskápur AFE Kæliskápur ARC Kæliskápur ARC Kæliskápur ARC Kæliskápur ARC Kæliskápur ARC Kæliskápur ARF Kæliskápur ARF Kæliskápur ARF LÁGMÚLA 7 REYKJAVÍK SI'MI 85333 HÆÐ BREIDD DÝPT LTR. 172 - - 85 — 95 — 64 — 260 523 - - 85 — 55 — 60 — 140 567 - - 144 — 60 — 64 — 300 268 - - 144 — 60 — 64 — 340 271 - - 160 — 59 — 60 — 350 272 - - 160 — 68 — 60 — 410 355 - - 105 — 48 — 60 — 180 356 - - 114 — 55 — 60 — 220 805* - - 139 — 55 — 59 — 265 806* - - 159 — 55 — 59 — 310 874 - - 134 — 55 — 60 — 270 Unnrabyröi úr áli VERÐ SJÓNVARPSBÚDIN STAÐGR. 8.240 7.830 5.845 5.550 7.725 7.340 5.670 5.390 7.645 7.260 8.190 7.780 4.290 4.070 4.555 4.330 6.510 6.180 6.995 6.650 5.035 4.780

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.