Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Blaðsíða 5
5
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982.
Starfsmenn BÚR mótmæla blaðaskrifum
Kaupaukinn
settur á til að
halda í fólk
— menn hugleiða uppsagnir
„Þetta er bara lítið mál. Þetta voru
aðeins 15 starfsmenn sem fengu greidd-
an kaupauka frá þvi i ágúst í fyrra og
þar til um síðustu mánaðamót,” sagði
Jón Emilsson í stjórn Starfsmanna-
félags Bæjarútgerðar Reykjavíkur.
Stjórnin hefur sent frá sér yfirlýsinu
þar sem hörmuð er sú umfjöllun sem
átt hefur sér stað í fjölmiðlum um
launakjör hjá BÚR. Greint var frá því
fyrir skemmstu í blöðum að þar hefðu
farið fram yfirborganir án vitundar
borgaryfirvalda. BÚR er eins og flest-
um mun kunnugt í eigu Reykjavíkur-
borgar.
Stjórn Starfsmannafélags BÚR þykir
málið hafa verið blásið upp og málatil-
búningur einkennast af kosninga-
skjálfta og æsingaskrifum einstakra
manna sem virðast eins og segir í yfir-
lýsingunni „sprottin af persónulegum
rótum en ekki málefnalegum”.
„Menn ætla að hugleiða það þennan
mánuð hvort þeir halda áfram hjá
fyrirtækinu eða segja upp. Það er engin
spurning um það að þessi störf eru mun
betur launuð hjá einkafyrirtækjum og
nóga vinnu virðist vera að fá eftir aug-
lýsingum að dæma,” sagði Jón
Emilsson.
Hann bætti því við að kaupaukinn
hefði verið settur á til þess að halda í
þetta fólk. Því hefði alla tið verið ljóst
að hann kynni að vera tekinn af fyrir-
varalaust.
DS
MARGIR VIUA FA
PÓLVERJA í VINNU
Sendinefnd f rá Rauða krossinum utan
i næstu viku til að velja þá sem eiga að
faratil íslands
„Það eru þó nokkrir aðilar sem hafa
haft samband við okkur og lýst yfir
áhuga á að fá einhverja af þeim pólsku
flóttamönnum sem hingað eiga að
koma í vinnu til sín,” sagði Jón
Ásgeirsson framkvæmdastjórii Rauða
krossins í viðtali við DV í gærdag.
Eins og kunnugt er hefur ríkisstjórn-
in ákveðið að taka við 20 til 25 manns
úr þeim fjölmenna hópi pólskra flótta-
manna, sem nú dvelja í Austurríki. Var
Rauða krossi lslands falið að sjá um
alla framkvæmd á því máli og er það
þegar komið vel á veg að sögn Jóns.
Sagði hann að nú í næstu viku færi
sendinefnd frá RK til Austurríkis til að
ræða við þá aðila sem hefðu áhuga á að
fara til Íslands. Margt af því flóttafólki
sem væri í Austurríki væri mjög vel
menntað og því lítil vandræði að út-
vega því atvinnu. Verra gæti verið að
útvega þvi húsnæði. Margir þeirra sem
hefðu haft samband við Rauða kross-
inn og vildu fá Pólverja í vinnu til sín,
byðu þeim einnig upp á húsnæði og
leysti það mikinn vanda...
-klp-
BÆÐISKIPIN ERU
FRÁ STOKKSEYRI
í upptalningu okkar yfir aflahæstu
skipin á vertíðinni, sem birtist í blaðinu
á miðvikudaginn, var heimahöfn
tveggja skipa sem þar voru nafngreind
röng.
Við sögðum þar að Njörður, sem var
í 4. sæti yfir aflahæstu netabátana,
væri frá Þorlákshöfn, og að Surtsey,
sem er aflahæsti dragnótabáturinn,
væri frá Höfn í Hornafirði. Skipin eru
aftur á móti bæði frá Stokkseyri en
leggja afia sinn upp á Höfn og í
Þorlákshöfn.
-klp-
Mæðradagurinn er á sunnudaginn
Mæðradagurinn er á sunnudaginn
kemur. Þá verður Mæðrablómið selt
að venju. Ágóðinn af sölu blómsins
rennur til Mæðrastyrksnefndar sem
notar hann til starfsemi sinnar. Hún er
meðal annars fólgin i sumardvöl fyrir
eldri konur, jólaglaðning til þeirra sem
minna mega sín og ókeypis lögfræðiað-
stoð Ingibjargar Rafnar.
Kaupendur geta fengið blómin hjá
Mæðrastyrksnefnd að Njálsgötu 3, í
nokkrum blómabúðum og víðar um
bæinn. Hvert blóm kostar 20 krónur.
Salan byrjar raunar strax á föstudag.
Opið er á skrifstofu Mæðrastyrks-
nefndar eftir hádegið þann dag og á
laugardaginn.
DS
■Kvenskór — Ný sending
Tog:5046
Litur: hvftt loður >,.■ 365'’
Stærðir: 36-41 V«r° * '
Tog: 5084
Litur: hvftt og
bfátt loður q kr
Stnrðir: 36-41 v®
Tog:5101
,g5,- Litur: hvftt loður 365-
■3Ö Stærðir: 36 41
Tog:4551
Litur: hvftt og
bcigo lcður
Verð k,:
.365.-
Stærðir: 36—41
Tog: 4151
Litur: hvítt og
bcigc lcður
Stærðir: 36—41
Verð kr:
,365'
Tog: 4-873
Litur: hvftt loður . .. 465-'
Stærðir: 36-41 V«rö K '
PÓSTSENDUM
Opiö laugardaga kl. 10—12
rVJoIOtlMUUIVI upiu lauymuaya m. iu— i^.
® STJÖRNUSKÓBÚMN
Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795
MIKLATORGI
Mæðradagurinn
á sunnudaginn
— Þáfá allar mömmur blóm!
OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 21
SlMI 22822
VIÐ TELJUM
að notaðir
VOLVO
bflar
séu betri
en nýir bflar
af ódýrari
gerðum
Volvo 245 GL árg. 1980
ekinn 43 þús. km, beinskiptur, verð kr. 170.000
Volvo 244 GL árg. 1980
ekinn 22 þús. km, sjálfskiptur, verðkr. 160.000
Volvo 244 GLE árg. 1979
ekinn 44 þus. km, sjálfskiptur, verð kr. 160.000
Volvo 244 GLárg. 1979
ekinn 44 þús. km, sjálfskiptur, verð kr. 160.000
Volvo 244 GLárg. 1979
ekinn 76 þús. km, beinskiptur, verð kr. 130.000
Volvo 343 Dc Luxc árg. 1978
ekinn 26 þús. km, beinskiptur verð kr. 90.000
Volvo 244 DLárg. 1978
ekinn 32 þús. km, sjálfskiptur, verð kr. 120.000
Volvo 245 GL De Luxc árg. 1978
ekinn 49 þús. knt,verðkr. 120.000
0)
VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT 16
/